Spássían - 2013, Blaðsíða 8

Spássían - 2013, Blaðsíða 8
8 konungsríkja. Við mælum mikið með honum ef fólk er að leita að einhverju öruggu og vill kynnast fantasíuheiminum.“ NÚ NÆR FANTASÍAN YFIR BREITT SVIÐ OG FÓLK GETUR HAFT ÁHUGA Á ÖLLU EÐA BARA ÞRÖNGU SVIÐI INNAN HENNAR. „Já, algjörlega. Fyrir utan stórbrotnu fantasíurnar hafa „urban“ fantasíur verið mjög vinsælar og sér ekki fyrir endann á því. Fólk heldur alltaf öðru hvoru að vinsældirnar séu farnar að dala eins og í skvísubókageiranum en svo er ekki. Við höfum leitað að góðri þýðingu á „urban fantasy“ og okkur finnst bein þýðing ekki passa – stórborgarfantasía – þannig að við höfum kallað þær nútímafantasíur. En innan þess geira eru fantasíur sem eru meira í ætt við ástarsögur, spæjarasögur, „noir“ sögur, o.s.frv., þannig að fólk getur haldið sig við mjög afmarkaðan geira ef það vill. Það sem stendur upp úr í nútímafantasíu eru „kick-ass“ kvenhetjur sem vaða þar uppi. Þær eru galdramenn, hamskiptar eða vampírur eða tengjast töfrum á einhvern annan hátt. Þótt til séu vinsælir bókaflokkar innan nútímafantasíunnar með karlhetjum eru kvenhetjurnar miklu vinsælli. Konur eru stærsti lesendahópurinn en þó les fjöldi karlmanna þær líka. Ég lenti reyndar í því um daginn að það kom til mín strákur í búðina að leita sér að nýrri nútímafantasíu. Hann taldi upp það sem hann var búinn að lesa sem reyndust allt vera bækur eftir karlhöfunda og um karlhetjur. Ég benti honum á eina vinsæla seríu og hann sagði: „Nei ég er ekki kominn svo langt ennþá að geta lesið bæði eftir kvenhöfund og um konu.“ Það kom mér á óvart því ég hafði alltaf haldið að fólk sem les vísindaskáldskap og fantasíu væri ögn víðsýnna en annað og með opinn huga fyrir ýmsu. Vinsælasta serían í nútímafantasíugeiranum um karlmann og eftir karlmann er Dresden files eftir Jim Butcher og ber hún höfuð og herðar yfir allt annað. En það er einfaldlega meira úrval af bókum með kvenhetjum. Svo er það gufupönkið („steampunk“) sem flokkast líka sem nútímafantasía og þar eru margir góðir höfundar. Ég er hrifin af Gail Carriger og Cherie Priest en þær skrifa báðar gufupönk sem gerist á Viktoríutímanum. Þeir sem lesa hins vegar stórbrotnu fantasíurnar halda sig mikið við þær, finnar þar geira sem hentar þeim og leita ekki út fyrir hann. Ég held að flestir geri það, ég líka.“ ERUÐ ÞIÐ LÁTIN LESA ÞAÐ SEM ER TIL Í BÚÐINNI? „Við bara lesum það sem okkur langar til að lesa. Stundum kemur bók í sölu til okkar sem er búin að fá góða dóma og þá lesum við hana eða þá að forvitni okkar vaknar ef bók selst vel. Þegar Twilight var sem vinsælust kom mikið af foreldrum, ömmum og öfum sem spurðu: „Eru þetta góðar bækur? Barnabarnið mitt er 15 ára og hún er svo voðalega hrifin af þessu og hana langar til að lesa þetta á ensku.“ Þannig að ég las bókina en ég hefði ekki átt að gera það því ég gat ekki selt hana með sannfæringu eftir það: „Já hún er mjög vinsæl en mér finnst þessi skemmtilegri“, sagði ég kannski og greip einhverja aðra vampírubók. Unglingabækurnar eru mjög vinsælar í fantasíunni og allir aldurshópar kaupa þær.“ FYNDIÐ AÐ KALLA ÞÆR UNGLINGABÆKUR ÞEGAR ÞÆR ERU GREINILEGA BÆKUR FYRIR ALLA ALDURSHÓPA. „Þetta er auglýsingabragð hjá bókaútgefendum. Margar vísindaskáldsögur og fantasíur getur maður tekið úr hillunum og sett í unglingabækurnar. Mér finnst frekar óþægilegt þegar fólk spyr mig um aldursflokka – þetta er svo misjafnt eftir einstaklingum. Mér finnst fólk gera of mikið af því að reyna að njörva niður eitthvert aldursbil í sambandi við bækur. Unglingafantasíurnar eru samt aðeins annars eðlis en hinar. Efnistökin eru öðruvísi. Þær hafa verið mjög dystópískar upp á síðkastið og maður þarf að hafa sig allan við til að finna eitthvað annað. Þar er lítið af klassískri fantasíu („high fantasy“).“ KOMA UNGLINGAR TIL YKKAR AÐ KAUPA ÞESSAR FANTASÍUR? „Já, bæði úr unglingahillunni og fantasíudeildinni. Einnig nokkuð af foreldum og ömmum og öfum en það er aðallega í desember. Þau eru reyndar svolítið uppekin af því hvort þetta sé við hæfi barna, en jafnvel þótt bækurnar séu merktar fyrir unglinga geta þær verið svakalegar. Krakkarnir sjálfir hafa engar áhyggjur af þessu. Unglingadeildin hefur stækkað hjá okkur undanfarin þrjú, fjögur ár og það er bara út af eftirspurn. Það komu svo margir krakkar sem vildu fá eitthvað annað en það sem er í boði annars staðar. Mér finnst ofboðslega gaman hvað þau eru dugleg að bera sig eftir bókum og fylgjast með, t.d. á netinu. Þau eru oft á undan okkur.“ HAFA DIVERGENT BÆKURNAR EFTIR VERONICU ROTH VERIÐ VINSÆLAR HJÁ YKKUR? Mjög svo. NÚ VAR SÚ FYRSTA AÐ KOMA ÚT Á ÍSLENSKU HJÁ BÓKAÚGÁFUNNI BJÖRT SEM ER FREKAR NÝTT FORLAG. MÉR FANNST SKRÍTIÐ AÐ STÆRRI FORLÖG SKYLDU EKKI FALAST EFTIR BÓKAFLOKKNUM. „Þau fylgjast ekki nógu vel með. Það er oft sorglegt að sjá að vinsælustu bækurnar, og bækur sem okkur þykja góðar, koma aldrei út á íslensku nema þá hjá einnar bókar útgefanda. Kápan er stundum ljót því hann hefur ekki efni á að kaupa réttinn á upprunalegu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.