Spássían - 2013, Side 71

Spássían - 2013, Side 71
71 átt hefur glatt þennan leikhúsgrúskara meira en þau tíðindi að búið væri að hleypa af stokkunum ritröð þar sem íslenskir leikstjórar gera grein fyrir afrekum sínum. Fyrir utan sagnfræðigildið þá eru ótrúleg verðmæti í því fólgin að okkar besta fólk hleypi sporgöngumönnum sínum og öðrum áhugasömum inn á verkstæðið, ljóstri upp leyndarmálum og skýri ætlanir sínar. Velti jafnvel upp skýringum á því af hverju sumt tekst ekki alveg sem skyldi – það má alltaf vona. Rökrétt líka að hefja seríuna á Sveini Einarssyni. Eitt er nú að ferillinn er orðinn langur og er æði fjölbreyttur. Svo er væntanlega leitun að íslenskum leikstjóra með umtalsverða afrekaskrá sem hefur lagt sig jafn mikið eftir því að skrifa um leikhús, fræðilega jafnt sem „sjálfsævisögulega“. Fyrir utan stórvirkið um íslenska leiklistarsögu liggja eftir Svein tvær bækur sem rekja leikhússtjóraferil hans hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Þjóðleikhúsinu. Þar er að vonum dvalið allnokkuð við þau verk sem hann sviðsetur sjálfur, svo Sveinn er alvanur að „greina sjálfan sig“, eins og hinn nýi bókaflokkur krefst. Reyndar sker Sveinn sig svo afgerandi frá kollegum sínum hvað þetta varðar að þó þessi bók sé komin út gefur hún í sjálfu sér engar vísbendingar um að auðvelt verði að fylla framhaldið. Hver af tíu köflum bókarinnar tekur fyrir eða leggur út af einni eða tveimur uppfærslum þó vitaskuld hlaupi höfundur út undan sér með það, setji sýningarnar í samhengi við aðrar úr eigin smiðju og þann tíma sem sýningin er unnin á. Sveinn velur að fara ólíkar leiðir að þeim sýningum sem hann fjallar um. Það er líka ljóst að hann nýtir sér af skyn- og útsjónarsemi það sem hann hefur áður skrifað um efnið og því er ekki að neita að fyrir mann sem er jafn handgenginn leikhússtjórabókum höfundar og ég er þá sæta sumir kaflarnir í þessari nýju bók engum ógurlegum tíðindum. Sveinn er hins vegar laginn að nýta tilefnin sem viðfangsefnin gefa til að víkka sjónarhorn sitt, velta fyrir sér menningarástandinu, leiklistarsögunni, leikbókmenntum og fleiru. Þetta er ekki síst áberandi í fyrri köflum bókarinnar, þar sem má ímynda sér að helst hafi „snjóað yfir“ minningarnar um vinnuna sjálfa. Þannig verður fyrsti kaflinn, um uppsetninguna á Yvonne Búrgundarprinsessu eftir Gombrowicz (Leikfélag Reykjavíkur 1968) að mjög áhugaverðu og gagnlegu yfirliti yfir landnám framsækinnar leikritunar af absúrdskólanum á Íslandi og tilraunir ýmissa hópa til að færa út landamæri leiktjáningarinnar. Litlu bætir hann kannski við frásögn Iðnóbókarinnar af uppfærslu verksins sjálfs en kaflinn er skemmtilegur – og mikilvægur. Eins verða frásagnir af uppfærslum á Galdra-Lofti (RÚV 1970) og Útilegumönnum Matthíasar (LR 1972) kveikjan að hugleiðingum um hið þjóðlega, séríslenska og klassíska í okkar leikbókmenntum og leikhefð, sem verður að teljast mikill fengur að. Leitin að hinu íslenska er Sveini mjög hugleikin, bæði á þessum tíma, en Útilegumannasýningin er stór varða í þessu tilliti, og ekki síður síðar þegar grúsk hans í forsögu leiklistar á landinu hefur getið af sér tilraunir á borð við Amlóðasögu (Bandamenn 1996) og Edda.ris (Bandamenn 2000)  fyrir utan leiklestra á „týndum verkum“ á borð við Álf í Nóatúnum (Bandamenn 1996) og Bjarglaunin eftir Geir Vídalín (Bandamenn 2010). Það er ekki laust við að manni finnist, við lestur þessarar bókar og annarra úr smiðju Sveins, að á þessu sviði hafi Sveinn reist sér óbrotgjörnustu minnisvarðana. Kaflinn um Kristnihald undir jökli (LR 1970) er síðan frábært innlegg í einhverja mest þreytandi umræðu í íslensku leikhúsi - stöðu leikgerða. Að höfundi frátöldum er söguhetja bókarinnar klárlega Helgi Hálfdanarson. Sveinn nýtur þess greinilega að lýsa þessum vini sínum og afreksmanni í íslenskri menningu. Apótekarinn orðhagi kemur við sögu í hvorki meira né minna en fjórum köflum bókarinnar: Antígónu (LR 1969), Pétri Gaut (Leikfélag Akureyrar 1998), Hamlet (LA 2002) og Fedru (Þjóðleikhúsið 2002), og tekur í þeim öllum allnokkurt pláss á sinn (uppgerðar)hógværa hátt. Það gleður Helgahálfaaðdáendur á borð við undirritaðan. Í síðari köflum bókarinnar fer að bera meira á vangaveltum um hvers konar leikstjóra bókarhöfundur telur sig vera orðinn, hver sé nálgun hins fullþroska Sveins Einarssonar. Það er býsna áhugavert þó það fái kannski ekki alveg eins mikið pláss og þessi lesandi hefði kosið. Í stuttu máli sýnist mér Sveinn kappkosta að nálgast viðfangsefni sín úr þremur áttum. Með sálfræðilegu raunsæi sem kenna má við hefðbundna vestræna leikhúsaðferð nútímans, með spuna og sameiginlegri leit með leikurunum og með agaðri nákvæmni í endanlegri mótun látbragðs og sviðshreyfinga. Þetta finnst mér skynsamleg leið. Svo skynsamleg að það liggur við að hún sé ekki í frásögur færandi, nema mun ítarlegar væri farið í aðferðafræðina. vinnustaðar- heimsókn Eftir Þorgeir Tryggvason Sveinn Einarsson. Af sjónarhóli leikstjóra. Ritstjóri: Trausti Ólafsson. Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands. 2012. F

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.