Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Síða 2
Þið eruð bölvaðir plebbar!
Hvað er að frétta?“ hugs-aði Svarthöfði í síðustu viku þegar Ekki-Júró-
gleðin svonefnda hófst á RÚV.
Hvers konar gúrkutíð er í
gangi í samfélaginu okkar
þegar við erum farin að halda
upp á að það sé ekki Eurovis-
ion-keppni?
Þarna fékk þjóðin að kjósa
um hvaða lag hefði fengið 12
stig frá Íslandi, hefði Euro-
vision-keppnin verið haldin,
og að sjálfsögðu var rukkað
fyrir hvert atkvæði. Þetta
hlýtur að vera nýtt met í
plebbaskap.
Til að kóróna þetta allt
grenjuðu landsmenn sig svo
í svefn, því Daði okkar og
Gagnamagnið unnu viðlíka
plebbakeppni á öðrum Norð-
urlöndum.
Um ókomna tíð verður 2020
minnst sem ársins þar sem Ís-
land hefði átt að vinna Euro-
vision. Enginn mun sannfæra
okkur um neitt annað.
Ætli RÚV fari að gera þetta
með fleiri hluti? „Hringdu
inn þitt atkvæði til að kjósa
um hvern þú hefðir kosið ef
það væru Alþingiskosningar
í dag.“ „Hringdu inn þitt at-
kvæði um hver hefði átt að
fara heim í nýjasta þættinum
af Bachelor.“ „Hringdu inn
þitt atkvæði ef þú vilt styrkja
ríkisrekinn fjölmiðil um 150
krónur af því bara.“ Svart-
höfði gæti vel hugsað sér
að eigna sér álíka gullgæs:
„Hringdu inn þitt atkvæði um
hvaða skyndibita Svarthöfði
ætti að fá sér, ef hann væri
svangur.“
Annar plebbaskapur var
biðröðin fyrir utan sundlaug-
arnar þegar klukkan sló mið-
nætti þann 18. maí. Frábær
hugmynd, Íslendingar. Troðið
ykkur í smithættu í þéttri bið-
röð til að troða ykkur saman
í sameiginlegar sturtur og
sameiginlegt sýklabað.
Eru til lyf við svona vit-
leysu? Það getur ekki verið
svona nauðsynlegt að fara í
sund, að fórna megi þar heilsu
samfélagsins fyrir að liggja í
klórmettuðu bleyti í hálftíma,
er fólk ekki almennt með bað-
kar eða sturtu heima hjá sér?
Það er eina skýringin sem
Svarthöfði gæti sætt sig við,
ef þessir plebbar í sundröð-
inni höfðu beðið í tvo mánuði
eftir alþrifum.
Svo verða líkamsræktar-
stöðvarnar opnaðar eftir
helgi og Svarthöfði getur rétt
ímyndað sér maníuna sem
mun eiga sér stað þar. Sem
er sjúklega fyndið því áður
en samkomu bannið var hert í
það form sem það hefur verið
undanfarið var árið bara rétt
byrjað. Þá mátti varla sjá
hræðu í ræktinni því allir
voru að tapa sér úr hræðslu.
Núna hins vegar, í nánast
sambærilegu samkomubanni,
því það er jú enn samkomu-
bann, þá eru allir bara svo
sjúklega graðir í gamla lífið
sitt að þeir eru tilbúnir að
nánast hanga á hestbaki á
næsta manni í þéttri röð til
að lyfta lóðum upp úr svita
annarra.
Getum við ekki bara fokkin
tjillað og haldið áfram að
hamast með ketilbjöllurnar
og jógadýnurnar sem við
hömstruðum hérna í upphafi
samkomubannsins, aðeins
lengur? Svona áður en við
dröslum þeim í Góða hirðinn
og höldum áfram að slefa í
hnakkann á næsta manni.
Ekki vera plebbi! n
SVART HÖFÐI
Aðalnúmer: 550 5060
Auglýsingar: 550 5070
Ritstjórn: 550 5070
FRÉTTA SKOT
550 5070
abending@dv.is
Nálægðin við aftökusveitina
D
V birtir oft umdeildar fréttir. Það er
hluti af starfi okkar. Að gelta þegar
grunsamleg lykt berst. Kalla til at-
hygli og athugunar. Við slíkar fréttir
logar oft athugasemdakerfið. Oft
svo að ritstjórnin lokar fyrir komm-
entakerfið, til að koma í veg fyrir ómálefnalegar og
níðandi athugasemdir.
Það er magnað að fylgjast með sýrunni sem vellur
upp úr fólki á kostnað annarra. Eins og það gleymist
að það er frekar líklegt að sá sem hatursorðræðan
beinist gegn lesi hana. Vegalengdirnar eru engar á
veraldarvefnum. Eitt klikk og sjálfsmyndin getur
mölv ast við lestur athugasemda, sé fólk ekki með
breitt bak eða undirbúið undir árás.
Samfélagsmiðlarnir eru annað dæmi um þessa ná-
lægð. Ég man þegar ég sá komment við mynd af mér
á Facebook, en undir henni stóð: „Oj. Mér finnst hún
alltaf svo skrítin. Er hún kynskiptingur?“
Ég starði lengi á athugasemdina.
Það toguðust alls konar tilfinningar á
í mér.
Er ég oj? Skrítin, já. Kynskiptingur,
nei. Og af hverju er kynskiptingur
niðrandi?
Ég lækaði athugasemdina til þess
að minna höfundinn á að ég er líka
með internet, þó að ég sé oj.
Fyrir stuttu sá ég umræðu um
mig þar sem spurt var: „Er hún
ekki í fangelsi fyrir að kúga
Sigmund Davíð?“
Ahh, elsku Ísland með
hálfu sögurnar sínar. Það
fer mjög mikill tími okkar
blaðamanna í að elta hálf-
sagðar sögur á borð við
þessar, þar sem ég er
kynskiptingur á leið í
fangelsi fyrir að kúga ráð-
herra.
Fyrir nokkrum árum
fékk ég svo símtal frá fjölmiðli
þar sem mér var óskað til ham-
ingju með að vera ólétt eftir
þekkt an, giftan fjölmiðlamann.
Það fannst mér fyndið. Eigin-
maður minn hló mikið og sagðist skyldu ala barnið
upp sem sitt eigið. En sjáðu til, að taka símtalið er svo
þakk látt. Eðlilegt að spyrja, ef hugsanleg frétt er að
baki.
Það er þessi nálægð við aftökusveitina í gegnum
sam félagsmiðla og athugasemdakerfi sem þarf að
hafa í huga. Þegar síminn er ekki tekinn upp og málin
rædd, heldur lyklaborðið hamrað með hálfsagðar sög-
ur í fingrunum.
Athugasemdakerfið er góð viðbót við fjölmiðil og
þar á að geta blómstrað umræða, uppbyggileg og
gagn rýnin. Skítkast er afþakkað. Skítadreifarar verða
bann aðir með tilheyrandi „block“ aðferðum, sem gera
þeim ókleift að taka þátt í athugasemdakerfinu. Gangi
það ekki verður kerfinu lokað.
Það er synd og skömm að fullorðið fólk geti ekki
stillt sig um að fá opinberlega hatursuppköst.
Aðgát skal höfði í nærveru sálar. n
UPPÁHALDS
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir
RITSTJÓRI: Þorbjörg Marinósdóttir, tobba@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Erla Hlynsdóttir, erlahlyns@dv.is AUGLÝSINGAUMSJÓN: Ruth Bergsdóttir, ruth@dv.is
PRENTUN: Torg prentfélag DREIFING: Póstdreifing | DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. DV, Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík Sími: 550 7000.
MYND/GETTY
Svala Björgvinsdóttir tón-
listarkona er um þessar
mundir að klára EP-plötuna
sína sem kemur út í sumar
og er að undirbúa útgáfu og
myndband fyrstu smáskíf-
unnar af plötunni.
„Þetta er í fysta sinn sem
ég gef út frumsamið efni
á íslensku, en ég hef alltaf
samið áður á ensku.“
Hún deildi með DV fimm
uppáhaldsveitingastöðunum
sínum á Íslandi.
1 Austur-Indíafjelagið
„Ég bara elska indverskan
mat og þessi staður hefur
alltaf verið í miklu uppháldi
hjá mér. Ég hef borðað ind-
verskan mat úti um allan
heim og Austur-Indía nær
alltaf að vera besti matur-
inn. En á eftir að ferðast til
Indlands og borða þar, býst
við að þar sé besti indverski
maturinn, lol.
2 Fabrikkan
Ég verð að viðurkenna að
mér finnst hamborgarar og
franskar alltaf mega-gott.
Stórir djúsí borgarar með
frönskum og jarðarberja-
sjeik er alveg draumur. Ég
er með minn eigin hamborg-
ara á Fabrikkunni sem heitir
Svalan og hann er sjúllað
góður þó svo ég segi sjálf
frá. Fíla líka hvað maður fær
matinn fljótt og starfsfólkið
er dásamlegt.
3 Fjallkonan
Mér finnst þessi staður æði,
kósí og skemmtilegt vibe
þarna og góður matur. Ég er
mikil eftirréttakona og Fjall-
konan er með svo girnilega
og góða eftirétti. Elska að
fara þarna með hópi af vin-
konum og borða saman og
hafa gaman saman.
4 Sushi Social
Einfaldlega besta sushi á
Íslandi! Ét alltaf yfir mig
þegar ég fer þarna.
5 Tapas barinn
Þessi staður hefur lengi
verið í uppáhaldi, elska smá-
rétti og finnst gaman að geta
pantað alls konar mat saman,
fisk og kjöt. Þessi staður er
líka bara orðinn svo klass-
ískur og mikill partur af
matarmenningu á Íslandi.“
VEITINGASTAÐIR
2 22. MAÍ 2020 DV