Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Side 4
1 Jóhanna er látin: „Góða ferð, fallegi engill“ Jóhanna Erlings-
dóttir, sem rak Dillonshús í Árbæjar-
safni, lést þann 14. maí eftir ellefu ára
baráttu við krabbamein.
2 Lögreglan varar við ákveðinni tegund af svindli Lögreglan á
Suðurnesjum varar við svindlurum
sem þykjast selja farsíma, taka við
greiðslu, en afhenda aldrei vöruna.
3 Sunneva er þakklát fyrir stuðninginn – „enginn sann-
leikur á bak við þetta“ Sunneva
Einars áhrifavaldur var gagnrýnd
fyrir að borða of lítið eftir að hún
birti mynd af mat sínum á Insta gram.
Töldu einhverjir að myndin ýtti undir
óheilbrigt samband við mat. Íþrótta-
konan og þjálfarinn Edda Falak kom
henni til varnar.
4 „Mér leið eins og ég væri lítið ljótt leyndarmál sem enginn
mátti komast að.“ Dagbjört Rúriks,
söngkona og áhrifavaldur, sigraðist
á ofbeldi og hóf að byggja heilbrigða
sjálfsmynd á ný.
5 Þetta eru dýrustu hótel landsins – enn lokuð og enginn afsláttur
Helgarblað DV tók saman dýrustu
hótel landsins sem eru lokuð sökum
COVID-19 ástandsins.
6 Lagleg á lausu – Anna Lilja og Grímur hætt saman Athafna-
konan Anna Lilja Johansen og
Grímur Alfreð Garðarsson eru hætt
saman.
7 Er þetta raunverulega ástæðan fyrir hörkunni í kjaraviðræðum
Icelandair? Hækkandi einingakostn-
aður gæti átt þátt í þeirri hörku sem
Icelandair beitir í kjaraviðræðum við
flugfreyjur.
8 Hættan á smiti í sundi er þessi að mati vísindamanns Sökum
þess að fólk er ekki alveg ofan í vatni
í sundi er enn um smithættu að ræða,
jafnvel þótt klór sé í laugum.
9 Málið sem skekur Svíþjóð – dularfullt hvarf 17 ára stúlku
Wilma Anderson hvarf sporlaust
þann 17. nóvember.
MEST LESIÐ
Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST...
Fyrirspurnir um fyrirspurnir
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur feng-
ið nóg af fyrirspurnaflóðinu á Alþingi frá Birni Leví Gunnars-
syni, þingmanni Pírata. Vegna þessa hefur Brynjar lagt inn
fyrirspurnir á Alþingi um kostnað vegna fyrirspurna Björns
sem hann telur nema milljónum, auk þess að vera við það að
sliga starfsmenn ráðuneyta og stofnana sökum álags.
Pipar kærir Ríkiskaup
Auglýsingastofan Pipar hefur kært Ríkiskaup vegna ákvörð-
unar stofnunarinnar um að taka tilboði bresku auglýsinga-
stofunnar M&C Saatchi í markaðsátakið „Ísland – saman í
sókn,“ sem stjórnvöld ætla að ráðast í til að markaðssetja Ís-
land til ferðamanna. Pipar átti næstbesta tilboðið í verkið og
hefur nú farið fram á að ákvörðun Ríkiskaupa um að semja við
M&C Saatchi verði felld úr gildi og verkefnið úthlutað Pipar.
Meðal raka Pipars fyrir þessari kröfu er að breska auglýs-
ingastofan sé nú til rannsóknar hjá breska fjármálaeftirlitinu
sökum gruns um rangfærslur í bókhaldi fyrirtækisins. Því
geti stofan varla uppfyllt skilyrði útboðsins.
Icelandair hafnar ásökunum
Mikil harka er í kjaraviðræðum Flugfreyjufélags Íslands
(FFÍ) við Icelandair. Í fréttum vikunnar kom fram að Icel-
andair væri farið að líta til möguleikans á að ráða inn flug-
freyjur sem ekki eru í FFÍ. Icelandair hefur hins vegar þver-
tekið fyrir þær ásakanir og segja þær fréttur uppspuna.
Kynbundinn launamunur hjá Stjörnunni
Samkvæmt ársskýrslu Stjörnunnar er sláandi launamunur á
þjálfurum kvenna og karla hjá félaginu. Konurnar í meistara-
flokki fá aðeins brotabrot af því sem karlarnir fá. Harpa Þor-
steinsdóttir, fyrrverandi leikmaður félagsins og bæjarfulltrúi
í Garðabæ, segir sláandi að sjá launamuninn svart á hvítu með
viðlíka hætti og í skýrslunni.
Myrkur og meinlegir skuggar
yfir efnahag Mýrdalshrepps
Byggðastofnun vann saman-
tekt fyrir samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytið um
áhrif COVID-19 faraldursins
á efnahag sveitarfélaga lands-
ins. Samkvæmt samantektinni
munu flest sveitarfélög finna
fyrir einhverju höggi, en Mýr-
dalshreppur kemur til með að
finna hvað mest fyrir því. Þor-
björg Gísladóttir, sveitarstjóri
Mýrdalshrepps, segir að um hamfarir sé að ræða sem enginn
hefði getað séð fyrir eða búið sig undir og stjórnvöld verði að
bregðast við vanda sveitarfélaganna.
Samherjabörnin
Eigendur Samherja framseldu nánast allan hlut sinn í félag-
inu til barna sinna í vikunni. Börn forstjórans, Þorsteins Más
Baldvinssonar, fengu við þetta 43 prósenta hlut í fyrirtækinu.
Tilfærslan var rökstudd með fyrirframgreiddum arfi og sölu
hlutabréfa. Hefur þessi gjörningur sætt harðri gagnrýni, þá
einkum að mögulegt sé að framselja kvóta milli kynslóða með
þessum hætti.
G
Ö
N G U K ORT
H
I K I N G M
A
P
GÖNGUM INN Í SUMARIÐ
Göngusérkortin með grænu
röndinni sýna leiðir sem síminn
þinn veit ekki einu sinni um og
koma þér örugglega á áfangastað
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–16
4 FRÉTTIR 22. MAÍ 2020 DV