Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Blaðsíða 8
00000
www.veidikortid.is
Gleðilegt
veiðisumar!
Fæst hjá N1 - OLÍS og veiðiverslunum
Staðan á Íslandi er ekki góð. Það byrjaði að votta fyrir kókaínskorti
snemma á árinu, fyrir COVID.
Svo þegar COVID skall á var
það fljótt að klárast. Verðið
hefur tvöfaldast síðan um
áramót. Kókaín er allavega
af mjög skornum skammti og
verður það fram eftir sumri.“
Þetta kemur fram í samtali
DV við einstakling sem er um-
svifamikill á íslenskum fíkni-
efnamarkaði. Karl Steinar
Valsson, yfirmaður miðlægr-
ar rannsóknardeildar lög-
reglunnar, segir að um tíma-
bundið ástand sé að ræða.
Til samanburðar má nefna
að á síðasta ári lagði lög-
reglan hald á mun meira af
sterkum fíkniefnum á fyrstu
10 mánuðum ársins, en allt
árið 2018. Met var slegið í
kókaíninnflutningi til lands-
ins. Á síðasta ári hafði verð
á kókaíni lækkað frá 2017 og
innlögnum á Vog vegna kóka-
ínfíknar fjölgað.
Sífellt fleiri háðari kókaíni
Í maí greindi DV frá því að
innflutningur kókaíns til Ís-
lands færi ört vaxandi, efnið
væri sterkara en oft áður og
tölur gæfu til kynna að neysla
þess færi vaxandi. Þá kom
fram að greiningum kókaín-
fíknar hefði fjölgað hratt hjá
íslenskum meðferðaraðilum.
Talið væri að erlendir glæpa-
menn væru stórtækir á ís-
lenskum kókaínmarkaði.
„Upplýsingar frá því í
janúar 2019 gefa til kynna að
neysla kókaíns fari vaxandi á
Íslandi. Verð á efninu lækkaði
árið 2018, um allt að fjórðung
frá árunum þar á undan,“ kom
fram í skýrslu greiningar-
deildar ríkislögreglustjóra.
Á öðrum stað í skýrslunni
segir: „Aukinn hreinleiki efna
á markaði felur í sér hættu,
þar eð neytendur fá þá sterk-
ari efni en þeir eru vanir og
taka því inn of mikið magn.“
Í september í fyrra komu
þriðjungi fleiri á bráðamót-
töku Landspítalans vegna
fíkniefnaneyslu, en gera í
venjulegum mánuði. Í sam-
tali við RÚV sagði yfirlæknir
bráðalækninga að aukin
kókaínneysla væri áberandi
og hún væri ekki bundin við
neinn einn þjóðfélagshóp.
Þá sagði Víðir Sigrúnarson,
læknir á Vogi, í samtali við
Vísi í fyrra:
„Þegar framboðið er mikið
þá lækkar verðið, þá komast
fleiri í þetta. Það eru sífellt
yngri að nota þetta og fólk
sem hefði aldrei notað þetta
ef það væri ekki verið að
bjóða þetta alls staðar. Fólk
fer á klósettið á skemmtistað,
þá er fólk þar með kókaín í
lyklinum að bjóða hvert öðru.
Þegar verðið er að lækka þá
geta krakkar með litlar tekjur
allt í einu haft efni á að kaupa
kókaín.“
Meiri harka á meðal fíkla
Einstaklingur sem DV ræddi
við, sem þekkir vel til í fíkni-
efnaheiminum, segir mikinn
skort á morfínskyldum lyfjum
á landinu, eins og oxycodone.
8 FRÉTTIR 22. MAÍ 2020 DV
LEIFSSTÖÐ ER FYRIR AMATÖRA SEM
ERU AÐ STÍGA SÍN FYRSTU SKREF
COVID-19 faraldurinn hefur haft mikil áhrif á kókaínneyslu í landinu, en á síðasta ári
fjölgaði mjög innlögnum vegna kókaínfíknar og met var slegið í innflutningi á efninu.
Myndatexti- mynd af Karli Steinari. Karl Steinar segir að skortur sé á aðgengi en ekki sé hægt að
tala um skort á efninu sjálfu.
Myndatexti- mynd af Valgerði. Valgerður segir mikilvægt að hafa puttann á púlsinum næstu
mánuðina.
Dóp mynd 1: Á seinasta ári fór neysla kókaíns ört vaxandi hér á landi og að efnin væru sterkari nú
en áður
Dóp mynd 2: Einn viðmælandi DV sagði smásala innan fíkniefnaheimsins finna helst fyrir
ástandinu þessa dagana.
Auður Ösp
Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Allar stéttir þjóðfélagsins
nota kókaín, allt frá úti-
gangsmönnum upp í stjórn-
málamenn. Háttsett fólk í
atvinnulífinu notar það mjög
reglulega.
Á síðasta ári fór neysla kókaíns ört vaxandi hér á landi og efnin eru sterkari nú en áður. MYND/HARI