Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Síða 11
Landspítalans þegar hann flutti heim eftir sérnám, en þar var ekki laus staða. Úr varð að honum var boðið starf á lyflækningadeild. „Sigríður Þórdís Valtýs­ dóttir vildi fá mig á almennu lyflækningadeildina. Hún er besti yfirlæknir sem ég hef haft. Hún er mögnuð. Hún er rosalegur nagli. Saman erum við búin að gera allan fjárann. Við erum búin að opna bráða­ lyflækningadeild, setja upp sýklalyfjamóttöku þar sem fólk getur komið við og fengið sýklalyf í æð. Við höfum end­ urbætt ýmislegt verklag og gert margt ótrúlega spenn­ andi. Þetta hefur verið rosa­ lega gaman.“ Ragnar skiptir tíma sínum á milli Landspítalans og Klíník­ urinnar í Ármúla sem hann starfar á, en þar sinnir hann gigtlækningum. Í byrjun COVID­farald­ ursins voru Ragnar og fjöl­ skylda sett í sóttkví, þar sem þau höfðu verið í Austurríki á skíðum. „Ég ætlaði að nýta tímann í að skrifa uppskriftir og elda eitthvað gott en þá hringdi Ólafur Guðlaugsson, yfirlæknir sýkingavarnadeild­ ar, og spurði hvort ég væri til í að taka að mér að hringja í sjúklinga sem voru í sóttkví. Ég var á launum og gat ekki sagt nei,“ segir Ragnar léttur, lagði frá sér nautasteikina og tók upp símann. Nokkrum dögum síðar var hann orðinn yfirlæknir á COVID­göngu­ deild Landspítalans. „Þetta var 10. mars og það voru kannski 60 veikir og bara örfáir starfsmenn í verkefn­ inu. Þetta er á miðvikudegi. Daginn eftir er talan komin upp í 90 og þar á eftir 120. Þá er ég búinn að hringja í al­ veg rosalega margt fólk. Það kveikti fjölda hugmynda og ég fór að senda út tölvupósta til formanns farsóttarnefndar, framkvæmdastjóra lækninga og fleiri aðila og við förum að kasta á milli okkar hugmynd­ um um hvernig væri best að framkvæma þetta. Við ákváðum þá frá byrjun að gera þetta mjög skipu­ lega. Allir voru strax áhættu­ flokkaðir, einkennin vigtuð og hannað var staðlað form sem reyndist okkur mjög dýr­ mætt til að safna miklum upp­ lýsingum.“ Símtölin voru lykillinn „Við sáum bara strax að það var þarna gífurlegt tækifæri fólgið í því að hringja í fólk. Þú heyrir þegar því versnar. Þá er nauðsynlegt að gera eitt­ hvað. Við vissum bara ekki hvað þetta „eitthvað“ var.“ Ragnar tekur við COVID­ göngudeildinni á sunnudegi. „Á mánudegi er búið að stofna níu manna stýrihóp, það eru 40 hjúkrunarfræðingar mætt­ ir til vinnu sem hjálpa okkur að hringja. Við það bætast 30 læknar og á miðvikudeginum er búið að ákveða að búa til nýja göngudeild. Sú deild var standsett á viku í Birkiborg, sem var innréttuð á mettíma af iðnaðarmönnum Landspít­ ala. Þetta var í raun alveg galið. Heil deild var byggð á átta dögum. Símaverið var í gangi á meðan og var opið allan sólarhringinn. Við þróuðum líka snjallforrit sem var til­ búið fyrir páskana, þar sem sjúklingar voru beðnir um að skrá einkenni og fengu einnig leiðbeiningar um hvað ætti að borða, drekka, leiðbeiningar Það hefði verið glatað að sitja uppi sem föðurlegur fantur úr Grey’s Anatomy. Á milli vakta er læknirinn vinnusami mikill nautnaseggur og leggur mikið upp úr vönduðu víni og góðum mat. Smjör og rjómi eru millinafn hans enda er hann annálaður fyrir lystisemdir í eldhúsinu. MYND/ANTON BRINK FRÉTTIR 11DV 22. MAÍ 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.