Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Page 14
22. MAÍ 2020 DV E ftirspurn eftir, og sala á, sumarbústöðum hefur aukist töluvert á síðustu vikum umfram fyrri ár, sé miðað við sama árstíma. Þetta er álit fasteignasala og er ástæðan rakin til áhrifa kórónaveirunnar. Sigurður Gunnlaugsson er framkvæmdastjóri og eigandi Torgs fasteignasölu. „Við fáum yfirleitt sumarhúsafyrir- spurnir strax í febrúar, og síð- an eykst áhuginn eftir því sem nær dregur sumri. Í ár var annað uppi á teningnum, þá dró nokkuð úr fyrirspurnum í mars vegna kórónaveirunnar, samhliða fækkun þinglýstra kaupsamninga í aprílmánuði á almenna íbúðamarkaðnum. En síðan hefur þetta tekið kipp. Hvort þessi mikli áhugi skili sér í kaupsamningum er ekki hægt að fullyrða um á þessu stigi, en áhuginn er vissulega til staðar.“ Aukinn áhugi á lóðum Þorsteinn Magnússon er lög- giltur fasteignasali hjá Ár- borgum fasteignasölu, sem hefur meðal annars milli- göngu um sölu byggingarlóða undir sumarbústaði fyrir Landsbankann á Suðurlandi og Vesturlandi, hvar finna má vinsælustu sumarhúsasvæði landsins. Hann segir áhugann fyrir lóðakaupum einnig hafa aukist hjá sér: „Þetta byrjaði strax í mars og má færa rök fyrir því að þetta sé vegna kórónaveirunnar, það fær enginn að fara í sumarhúsin á Spáni og því verður væntan- lega til aukinn áhugi hér.“ EKKI ALLTAF ÓDÝRARA AÐ BYGGJA Dýrasta eignin á sumarhúsafasteignavef mbl.is er 170 fermetra hús við Kambsbraut í Öndverðarnesi, en ásett verð er 89 milljónir. MYND/FRETTABLADID.IS Trausti Salvar Kristjánsson traustisalvar@eyjan.is Verð á sumarbústöðum hefur ekki hækkað síðastliðin ár, en nú gæti orðið breyting þar á þegar eftirspurnin eykst sökum tak- markana á utanlandsferðum. 14 EYJAN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.