Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Qupperneq 21
Nánari upplýsingar má nálgast á
jensenbjarnason.is
Ármúli 31, 108 Reykjavík
Sími: 588-7332
Tölvupóstfang: i-t@i-t.is
Opið alla virka daga frá 9–18.
Lokað á laugardögum í sumar.
INNRÉTTINGAR OG TÆKI ERU MEÐ
LAUSNIRNAR FYRIR SUMARHÚSIÐ
Sumarbústaðir eru jafn misjafnir og þeir eru margir. Furan var áberandi í húsasmíð-
inni á tímabili en fær nú að víkja fyrir nýtískulegri efnum, svo sem steypu og gleri.
Litapallettan hefur sömuleiðis breyst og víkur nú krómið og hvíti liturinn fyrir möttum,
gráum og svörtum litatónum. „Tískan
í hreinlætistækjum er virkilega
spennandi í dag, hvort sem á við
sumarhús eða bara heimili almennt.
Litir eru að koma sterkar inn og fjöl-
breytnin er mikil,“ segir Íris Jensen,
sem rekur fyrirtækið með eiginmanni
sínum, Grétari Þór Grétarssyni.
Sérvöruverslunin Innréttingar og
tæki byggir á eldri grunni, frá því
þegar umboðs- og heildsöluversl-
unin Jensen, Bjarnason & Co var
stofnuð árið 1945. „Frá árinu 1993
höfum við sérhæft okkur í sérvörum,
smáhlutum, innréttingum og hrein-
lætistækjum fyrir baðherbergið frá
Spáni og Ítalíu. Þá seljum við mikið
til einstaklinga og iðnaðarmanna sem
og fyrirtækja og stofnana, enda er
vöruúrvalið afar breitt og við erum
með umboð fyrir ýmis spennandi
merki. Þá eigum við meðal annars
frábært úrval af bæði innréttingum
og hreinlætistækjum fyrir sumar-
húsaeigendur.“
Vinsælir sturtuklefar
Innréttingar og tæki er með fjölda
hentugra sturtuklefa fyrir sumar-
húsið. „Við byrjuðum að flytja inn
glæsilega matta, svarta sturtuklefa
í desember í fyrra sem seldust upp
á einni viku hjá okkur. Þessi týpa
hefur verið mjög vinsæl í bæði Sví-
þjóð og Noregi. Nú er von á stórri
sendingu hjá okkur af þessum fal-
legu sturtuklefum. Einnig eigum við
gott úrval af öðrum sturtuklefum á
breiðu verðbili sem henta sérlega vel
í sumarbústaði af öllum stærðum og
gerðum.“
Spænskir gæðasturtubotnar
Vinsældir Gala sturtubotnanna frá
Innréttingum og tækjum fara hvergi
þverrandi. „Þetta er virkilega flott
og stílhrein lausn fyrir þá sem hafa
úr aðeins meira plássi að moða. Um
er að ræða sterkbyggða og endingar-
góða sturtubotna úr granít/stonex/
resin-efni. Botnarnir koma í fimmtán
litum og eru sérstaklega gerðir fyrir
opnar sturtur sem hægt er að ganga
inn í. Botnarnir eru afar einfaldir og
þægilegir í uppsetningu og koma til-
búnir í einu stykki með innbyggðum
halla. Þá er til dæmis sérlega einfalt
að setja þá upp á trégólfi sem prýðir
margan bústaðinn. Engin þörf er
heldur á fúgu þar sem engar flísar
eru, sem einfaldar öll þrif til muna.
Botnarnir eru þaktir stamri gelkvoðu
sem gerir þá að stöðugu undirlagi
fyrir fólk að ganga á og athafna sig.
Þá eigum við líka mikið úrval af
glerveggjum í ýmsum stærðum og
gerðum, sem passa með sturtubotn-
unum góðu. Við erum til dæmis með
fasta glerveggi með lausum væng
fyrir minni rými svo þau nýtist til
fullnustu.“
Forláta handklæðaofnar sem prýða
Undanfarin ár hafa dúkkað upp
skemmtilegar nýjungar í hönnun
baðherbergja og er verslunin Innrétt-
ingar og tæki ávallt með puttann á
púlsinum þegar kemur að spennandi
og fallegum baðherbergislausnum.
„Við eigum til að mynda mikið úrval
af flottum handklæðaofnum sem
ganga fyrir rafmagni og henta sér-
staklega vel í sumarhús á landi þar
sem heitavatnsrennsli er af skornum
skammti. Þeir fást í öllum litum af
Ral litakortinu, allt frá látlausum
gráum eða króm upp í appelsínugulan
og jafnvel bleikan.“ n
Íris Jensen tók við rekstri fyrirtækisins ásamt eiginmanni sínum árið 2014. MYND/VALLI
Mattur og svartur sturtuklefi er flott viðbót í sumarbústaðinn. Litskrúðugir handklæðaofnar, skemmtilegir í sumarbústaðinn. Gala sturtubotnarnir eru vinsælir.
SUMARHÚS KYNNING SÉRBLAÐ 3 DV 22. MAÍ 2020