Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Qupperneq 28
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is
Þ að eru ýmsar leiðir til þess að borða dýrindis-mat fyrir minna. Gott
ráð er að kaupa til dæmis
frosið lambaprime í Bónus
og láta það marínerast inni
í ísskáp í tvo til þrjá daga
og fá þá dýrindis grillkjöt
fyrir mun minna en ófrosið
marínerað kjöt kostar, en alls
ekki síðra. Toppurinn er svo
að tína unaðslegt, íslenskt
blóðberg úti í móa og krydda
kjötið með.
Undrakrydd sem
vex um allt
Blóðberg er lágvaxinn smá-
runni með litlum lillabláum
blómum. Blóðberg er mest
áberandi í júní og júlí þegar
plantan er í blóma og má
þá stundum sjá heilu blóð-
bergsbreiðurnar. Plantan
hefur öldum saman verið
notuð bæði til heilsubótar og
sem krydd. Blóðbergste er
til dæmis sagt vera gott við
flensu, kvefi og ýmsum melt-
ingarsjúkdómum. Það er gott
krydd, til dæmis á grillað
lambakjöt, og minnir bragðið
á tímían sem kallast einnig
garðablóðberg á íslensku og
er af náskyldri plöntu. n
LAMBAPRIME – UNAÐSLEGT OG
ÓDÝRT HRÁEFNI SEM SLÆR Í GEGN
Það er gott og gaman að grilla en dýrindismáltíð þarf ekki að kosta mikið. Frosið kjöt
og krydd úr haga er til dæmis algjör bomba sem hægt er að fá fyrir lítinn pening.
HEIMILD: FLÓRA ÍSLANDS
Lambaprime með villtu blóðbergi og hvítlauk
Fyrir 4
800 g frosið lambaprime – látið
þiðna í ísskáp yfir nótt
2 msk. blóðberg – helst villt, ís-
lenskt, grófsaxað
3 hvítlauksrif
2 greinar rósmarín, gróft saxað
2 dl ólífuolía
Skolið kjötið og þerrið með pappír.
Setjið í lokað box ásamt hinum hrá-
efnunum og látið liggja í tvo sólar-
hringa í maríneringu inni í ísskáp.
Hristið boxið til að blanda þessu vel
saman.
Takið út og látið ná stofuhita áður
en grillað er.
Best er að nota kjöthitamæli og ná
55°C kjarnhita, en almennt er fínt að
miða við að grilla á meðalheitu grilli
í 10 mínútur. Snúið kjötinu reglu-
lega. Saltið og piprið rétt áður en
kjötið er tekið af grillinu.
Sætkartöflusalat með
vorlauk og spínati
Fyrir 4
500-600 g sætar kartöflur
150 g spínat
1 dós sýrður rjómi
2 litlir vorlaukar
1 tsk. hunang
1 tsk. dijon-sinnep
2 msk. ferskt kóríander, saxað
2 msk. olía
½ tsk. sjávarsalt
Afhýðið kartöflurnar, skerið í
teninga og bakið í ofni með smá
olíu og salti, uns teningarnir eru
mjúkir í gegn. Setjið til hliðar og
kælið niður. Hrærið sýrðum rjóma,
sinnepi, hunangi og smá salti
saman. Skolið spínatið og skerið
niður vorlaukinn. Hrærið saman
kartöflum, spínati, vorlauk og
sósunni. Toppið með kóríander.
Villisveppasósa á 5 mínútum
200 g blandaðir sveppir eftir
smekk, t.d. kastaníu- og flúða-
sveppir
200 ml matreiðslurjómi
½ villisveppaostur
½ piparostur
1 msk. fljótandi kjötkraftur
1 msk. smjör
Steikið sveppina upp úr 1 msk. af
smjöri. Setjið sveppina til hliðar,
skerið ostinn í bita og bræðið við
lágan hita í rjómanum. Bætið kjöt-
krafti við. Að lokum fara svepp-
irnir út í.
10 SÉRBLAÐ SUMARHÚS 22. MAÍ 2020 DV
Aðalskrifstofa - Borgarbraut 74 - 310 Borgarnes
Söluskrifstofa - Lynghálsi 2 - 110 Reykjavík
Netfang - sala@limtrevirnet.is
Aðalnúmer: 412 5300 | Söludeild: 412 5350
limtrevirnet.is
Bjóðum vætuna
velkomna
Hjá Límtré Vírnet færðu hinar traustu
og fallegu Lindab þakrennur.