Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Blaðsíða 44
32 STJÖRNUFRÉTTIR 22. MAÍ 2020 DV
Þetta eru
raddir Íslands
Á hverjum degi dynja á okkur auglýsingar í
útvarpi og sjónvarpi sem segja okkur hvað
við eigum að kaupa, hvert við eigum að fara
og hvað við eigum að gera. Og það er ekki
sama hverjir það eru sem þylja upp slagorðin.
Sumar raddir þekkjum við strax, en aðrar ekki.
Þetta eru andlitin á bak við raddirnar.
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON
„Kóngurinn“ Björgvin Halldórsson hefur verið einn dáðasti tónlistar-
maður Íslands í áratugi. Það er ekki gó fyrr en Bó segir gó, eins og sumir
segja. Hann er rödd Stöðvar 2 og hefur gegnt því hlutverki í áraraðir.
ARNAR JÓNSSON
Ferill Arnars Jónssonar spannar
hátt í sex áratugi. Hann hefur lesið
inn á auglýsingar fyrir verslunina
Betra bak, og eflaust selt ófáar
Tempur-heilsudýnur með sinni
djúpu og seiðandi röddu. Hann
hefur auglýst páskaegg um árabil
með setningunni: Bíðið eftir mér!
ÓLAFUR DARRI
Ólafur Darri Ólafsson hefur skap-
að sér sess sem einn vinsælasti
leikari þjóðarinnar. Rödd hans
getur selt hvað sem er. Áskrifend-
ur heyra rödd hans hljóma milli
dagskrárliða Sjónvarps Símans.
SVEINN ÓLAFUR
Þeir sem hafa séð auglýsingar
Póstsins ættu að kannast við
rödd Sveins Ólafs Gunnarssonar
leikara, sem meðal annars sló
í gegn í sjónvarpsþáttaröðinni
Pabbahelgar á síðasta ári.
DAVÍÐ GUÐBRANDSSON
OG ATLI ÞÓR ALBERTSSON
Davíð Guðbrandsson leikari hefur
selt ófáa hamborgara og samlokur
með því að lesa inn á auglýsingar
Grill 66 á Olís. Á meðan hefur Atli
Þór Albertsson leikari, sem á sínum
tíma kom fram í Strákunum á Stöð 2,
séð um auglýsa Domino’s-pitsur.
JÓHANNA VIGDÍS
Jóhanna Vigdís Arnardóttir leikkona hefur verið ein
aðalstjarna Borgarleikhússins undanfarin ár og farið
með fjölmörg burðarhlutverk. Hún leysti þulurnar á
RÚV af hólmi og hefur undanfarin ár séð um að kynna
sjónvarpsdagskrána fyrir landsmönnum.
EGILL ÓLAFSSON
Egil Ólafsson þarft vart að kynna,
en hann er einn dáðasti tónlistar-
maður þjóðarinnar. Það er ekki
ofsögum sagt að rödd Egils er
eins og blautt gull. Hann hefur
lesið inn á auglýsingar Toyta og
verið glæsilegur fulltrúi bílafram-
leiðandans.
SALKA SÓL
Söngkonan Salka Sól Eyfeld hefur verið áberandi í ís-
lensku tónlistar- og leikhúslífi og er hæfileikarík með
eindæmum. Hún les inn á auglýsingar fyrir Subway og
gætir þess að Íslendingar séu með það á hreinu hver
bátur mánaðarins er hverju sinni.
HALLDÓRA GEIRHARÐS
Halldóra Geirharðsdóttir er í hópi
virtustu leikkvenna landsins og
hefur hlotið mikið lof gagnrýn-
enda, ekki síst fyrir frammistöðu
sína í kvikmyndinni Kona fer í
stríð. Halldóra, eða Dóra Wonder
eins og hún er stundum kölluð, er
rödd Kringlunnar.
ÆVAR ÞÓR BENEDIKTSSON
Ævar Þór Benediktsson, leikari
og rithöfundur, hefur átt stóran
þátt í að efla áhuga yngstu kyn-
slóðarinnar á lestri, vísindum og
leikhúsi og er einnig þekktur sem
Ævar vísindamaður. Þess á milli
hefur hann lesið inn á auglýsingar
fyrir Öryggismiðstöðina.
BJÖRN HLYNUR HARALDSSON, VALUR FREYR OG GÍSLI ÖRN
Björn Hlynur Haraldsson leikari hefur notið mikillar velgengni undanfarið en hann fer meðal annars með hlutverk
í þáttunum Witcher á Netflix og leikur í Eurovision-kvikmynd Wills Ferrell. Hann er einnig eigandi raddarinnar
sem hljómar í auglýsingum Íslandsbanka, sem þykir með eftirsóttari „giggum“ í bransanum. Annar íslenskur
leikari, Valur Freyr Einarsson, er síðan röddin sem svarar þegar hringt er í þjónustuver bankans. Björn Hlynur
er ekki eini íslenski leikarinn sem ljær fjármálafyrirtæki rödd sína, en kollegi hans úr leiklistinni og mágur hans,
Gísli Örn Garðarsson, hefur lesið inn á auglýsingar fyrir Landsbankann.
MYND/ANTON BRINK MYND/SIGTRYGGUR ARI
MYND/AÐSEND