Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2020, Qupperneq 6
6 31. janúar 2020FRÉTTIR
É
g meina – þetta er endalaust kjafts-
högg alltaf hreint. Það er alveg sama
hvert þú leitar, þú færð aldrei al-
mennileg svör. Enginn virðist vita
neitt í sinn haus hvernig maður eigi að
snúa sér í sambandi við hlutina,“ segir ör-
yrki á sjötugsaldri sem stendur í ströngu
við skattinn. Maðurinn, sem við skulum
kalla Jón, skuldar skattinum rúmlega tvær
milljónir króna vegna skattaákvörðunar
fyrir árið 2014, þrátt fyrir að hann hafi verið
lýstur gjaldþrota árið 2016.
Lokaðar dyr
Jón er í dag öryrki vegna ýmissa kvilla,
meðal annars vegna slit- og vefjagigtar eft-
ir langa ævi af erfiðisvinnu. Hann harkaði
þó lengi af sér á vinnumarkaði en í kjölfar
hrunsins fóru fjármálin í ógöngur. Hann sá
sig því nauðbeygðan til að lýsa sig gjald-
þrota árið 2016.
„Þá var ég með skattaskuld og mér var
sagt að allt færi inn í gjaldþrotið. En ég
er ekki enn kominn almennilega út úr
þessu þroti. Ég er enn á svörtum lista eft-
ir öll þessi ár, það er árið 2020 núna. Eftir
tvö ár átti ég að vera frjáls til að byrja lífið
upp á nýtt. En það fór aldeilis ekki þannig.
Það er kannski vegna þess að ég er öryrki
og hef ekkert bolmagn til að berjast fyrir
mínum rétti. Það hlustar enginn á mig og
það er alveg sama hvert ég sný mér, ég kem
alls staðar að lokuðum dyrum. Það hefur
enginn tíma til að hlusta eða veita einhver
ráð. Það er eins og maður sé ekki til í þjóð-
félaginu.“
Skattaskuldinni var lýst í þrotabúið sem
reyndist eignalaust. Ári eftir gjaldþrotið
barst tilkynning frá skattinum. Skattar
vegna tekjuársins 2014 höfðu verið endur-
ákvarðaðir. Þar með væri komin ný skuld,
sem ekki félli undir gjaldþrotið, þrátt fyrir
að eiga rætur að rekja til sömu skuldar og
lýst var í búið.
Afturvirk skuld
„Já, þetta kom mér svolítið á óvart. Að
fá svona bréf. Svo fór ég að spyrjast fyrir
um hvað þetta væri og þá var mér sagt að
ég gæti ekki borgað krónu inn á þetta, þá
fengi ég alla skuldina, líka það sem lýst var í
þrotabúið, aftur í andlitið. En það hvarflaði
aldrei að mér að þetta færi svona.“
Sjónarmið skattsins er að við endur-
ákvörðun sem þessa þá stofnist krafan í
reynd við endurákvörðunina, en miði ekki
við tekjuárið sem hún verður til vegna. Þar
sem fyrningartíma krafna í þrotabúi Jóns
var ekki lokið þá var Jóni bent á að ef hann
færi að greiða inn á þessa nýju skuld, eða
semja um hana, ætti hann á hættu að rjúfa
fyrningu eldri kröfunnar og þar af leið-
andi gæti skatturinn haldið áfram að rukka
hana.
Jón kærði ákvörðun Ríkisskattstjóra til
fjármála- og efnahagsráðuneytisins, en
niðurstaðan var sú sama. Hann þyrfti að
greiða þessa endurákvörðuðu skuld. Jón
kom því skuldugur út úr gjaldþroti.
„Ég fékk bara bréf. Sem ég skildi ekki og
fór með til lögmanns sem var svo yndisleg-
ur að fara yfir þetta fyrir mig og senda þeim
bréf. Þá fékk ég þessa skýringu; að það var
gerð afturvirk skattabreyting árið 2017 á
skattaákvörðun frá 2014. Ég hélt að þetta
væri bannað, en ég fæ hvergi svör um það
hvernig megi breyta hlutunum svona á aft-
urábak.“
Mistök endurskoðanda
Endurákvörðunina má rekja til mistaka
sem áttu sér stað við framtal. Jón hins
vegar gerði framtalið ekki sjálfur. Á þeim
tíma hafði hann verktakalaun og treysti sér
ekki til að sjá sjálfur um skattamálin.
„Ég taldi ekki eitt né neitt fram. Ég fór
bara með allt mitt til endurskoðanda. Ég
treysti því bara 100% að það væri allt rétt
sem kæmi frá endurskoðandanum. En lög-
maðurinn segir að þarna hafi einhver mis-
tök verið gerð. Það sem kemur mér mest
á óvart er að það sé hægt að gera þessa
breytingu svona á afturábak og koma fólki í
fangelsi skulda. Mér finnst þetta virka eins
og einhver geðþóttaákvörðun hjá þessu
fólki. Ég verð bara í sama fangelsinu það
sem ég á eftir ólifað því ég á engan pen-
ing til að borga þetta. Ef ég ætti pening til
að fara aftur í þrot myndi ég skoða að gera
það. En ég á hann ekki til.“
Má éta það sem úti frýs
Jóni fannst þessi ákvörðun skattsins engan
veginn geta staðist og leitaði til starfsfólks
skattsins eftir ráðum. En fékk hann þar ein-
hverjar leiðbeiningar, einhver ráð?
„Nei, ég fékk engin önnur svör en þau
að ég yrði bara eltur. Þeir mega svo sem
koma heim til mín og taka það sem ég á
þar. En ég á ekkert í mínu innbúi. Dóttir
mín á einn sófa og vinur minn annan.
Ein vinkona mín á sjónvarpið, strákurinn
minn á þrjá gítara sem eru þarna. Það eina
sem ég á er rúmið og þeir mega bara taka
það. Það er það eina sem ég á.“
Nýja lífið sem átti að taka við eftir gjald-
þrotið kom aldrei. Nú hefur skatturinn
gert árangurslaust fjárnám hjá Jóni vegna
skuldarinnar, og hann sér ekki fram á að
komast nokkurn tímann af svörtum láns-
hæfislistum.
„Af því að ég er öryrki þá svona eiginlega
má ég bara éta það sem úti frýs. Mér finnst
ég bara vera útskúfaður ræfill. Fyrir öllum.
Ég fæ það á tilfinninguna að ég sé ekki þess
virði að segja hæ við. Það er það viðhorf
sem mætir mér þegar ég þarf að leita mér
aðstoðar einhvers staðar í kerfinu. Ég vona
bara að þetta blessaða fólk verði aldrei full-
orðið eða veikist.“ n
Rekstrarumsjón ehf. • Dalshrauni 11, 220 Hafnarfirði • S: 571 6770 • www.rekstrarumsjon.com • umsjon@rekstrarumsjon.com
LÁTIÐ OKKUR UM REKSTUR
HÚSFÉLAGSINS
Við sérhæfum okkur í umsjón með rekstri húsfélaga
og bjóðum trausta og faglega þjónustu á góðu verði
Hafðu samband og fáðu tilboð strax í dag!
„Ég vona bara að þetta
blessaða fólk verði
aldrei fullorðið eða veikist
Erla Dóra
erladora@dv.is
„Mér finnst
ég bara vera
útskúfaður
ræfill“
n Hundeltur af skattinum vegna endurákvarðaðra skatta n Á ekkert nema rúmið sitt