Íþróttablaðið - 01.05.1981, Side 23
Úrleik Alianza Lima við FC Santos í meistarakeppni Suður-Ameríku árið
1964. Perúbúinn Tenemas sparkar í brjóstið á brasilíska markverðinum
Giimar, áðuren Peie og aðrir leikmenn brasiliska liðsins koma til hjálpar.
sem stjórnmálamenn hafa
gert að henni undanfama
áratugi.
Ekki fer á milli mála að íþrótt-
um og stjórnmálum er rækilega
blandað saman. Segja má að allt
að því sjúklegur metnaður sem
stundum mætti fremur flokka
undir þjóðemishroka birtist í
íþróttunum, og þær eru óspart
notaðar til þess að sanna að eitt
þjóðfélagskerfi sé öðrum betra.
Þannig hafa t.d. Austur-Evrópu-
þjóðirnar talið það þjóðskipulagi
sínu til ágætis hve vel íþróttafólk
þessara þjóða hefur staðið sig á
alþjóðlegum vettvangi, og ekkert
hefur verið til sparað til þess að
ná árangri. Eru næsta óhuggu-
legar lýsingar á því hvernig börn
eru bókstaflega tekin frá foreldr-
um sínum og alin upp á ríkis-
stofnunum til þess að verða síðan
afburða íþróttafólk.
En þessi mál hafa líka bjartari
hliðar. Flestum mun sennilega í
fersku minni að Bandaríkin og
Kína notuðu á sínum tíma
íþróttafólk, borðtennisleikara, til
þess að opna bambustjaldið.
íþróttafólk ruddi þar brautina til
friðsamlegri sambúðar.
En það er ekki bara hjá stjórn-
málamönnunum sem ófriður
ríkir þegar íþróttir eru annars
vegar. í sumum ríkjum eru
íþróttamenn nánast hermenn
sem sendir eru í stríð, ýmist til
þess að sigra landa sína í öðrum
liðum, eða þá útlendinga. Það
gleymist að íþróttimar eru í eðli
sínu leikur, sem eiga að veita
þátttakendum hvort sem er á
íþróttavöllunum eða á áhorf-
endapöllunum gleði og ánægju.
Hatrið er haft í fyrirrúmi, og oft
sjást ótrúlegustu bolabrögð og
illmennska á keppnisvöllunum.
íslenskir íþróttaáhugamenn
heyrast t.d. oft kvarta yfir því hve
knattspyrnan á íslandi sé gróf og
ruddaleg, og víst er að margir
knattspymumenn meiðast árlega
vegna þess að andstæðingar
þeirra gleyma sér í hita leiksins
og sýna af sér óþarfa bellibrögð.
En það sem gerist á völlunum á
íslandi er hreinn barnaleikur
miðað við það sem tíðkast víðast
annars staðar — ekki síst í hinum
harða heimi atvinnuknattspyrn-
unnar, þar sem leikmenn velja
stundum þann kost frekar að
misþyrma andstæðingnum en að
láta í minni pokann.
23