Íþróttablaðið - 01.05.1981, Page 62
r
A útivelli
AFREKSMANNAHLJÓMSVEITIN
Tríóið sem virðist þama
leika af hjartans list er þekkt
fyrir annað en hljóðfæraleik.
Það er nefnilega Bjöm Borg
sem sveiflar um sig bassagít-
amum, kona hans, Mariana
Simoneco-Borg er með sóló-
gítarinn og maðurinn á
trommunum er enginn annar
en Jody Scheckter, sá er varð
heimsmeistari í kappakstri ár-
ið 1979. Það fylgir ekki sög-
unni hvernig áheyrendum
geðjaðist að tónlistinni, eða
hvort hún var yfirleitt nokkur.
Dómarínn
hafði sam-
úð með
áhugamanninum
Ungverski knattspymu-
áhugamaðurinn Nikilai Hor-
vath var nýlega kallaður fyrir
rétt í heimalandi sínu, og hon-
um gefið að sök að hafa kastað
múrsteini gegnum rúðu í stór-
verslun. Hann gaf þá skýringu
á framferði sínu að hann hefði
misst stjóm á sér vegna þess
að félag hans tapaði knatt-
spyrnuleik 2-8. Dómarinn
sagði: „Ég sá þennan leik
sjálfur, og ég skil tilfinningar
þínar. Þú sleppur með aðvör-
un, en ég vil gefa þér þá
ábendingu að gerast stuðn-
ingsmaður annars félags í
framtíðinni.“
Menotti reynir
fyrir sér í
golfinu
Cesar Luis Menotti þjálfari
og stjómandi argentínska
knattspyrnulandsliðsins er nú
farinn að leika golf. Það er þó
sagt að ekki gangi of vel hjá
honum í þeirri íþróttagrein,
mest vegna þess að hann þarf
að leggja frá sér sígarettuna í
hvert skipti sem hann slær
boltann.
„ÉG SÉ BARA HVERGI MARKIÐ FYRIR ÞEIM”
„Hvað á ég að gera — ég sé
hreinlega ekki markið,“ gæti
hinn frægi þýski handknatt-
leiksmaður Erhard Wunder-
lich verið að segja, þegar hann
lítur hálf ráðleysislega til
bekkjarins áður enn hann átti
að taka aukakast í landsleik
Vestur-Þjóðverja og Sovét-
manna sem fram fór í vetur.
Sovétmennimir mynda vegg,
sem erfitt virðist að koma
knettinum framhjá, enda tókst
Wunderlich það ekki þótt
snjall væri.
62