Íþróttablaðið - 01.04.1989, Blaðsíða 17
hundleiðinlega leiki en þeir eru færri
núna að ég held. Mjög margir stór-
skemmtilegir leikir fara fram árlega
og leikmenn eru fjölhæfari en áður.
Varnarmenn skila betur frá sér bolt-
anum og það hefur keðjuverkandi
áhrif."
— Hvað með gleðina í leikjum,
brosa leikmenn of sjaldan og ræðast
við í góðu tómi?
„Þaðferallteftirþvíhverstaðan er
í leiknum," sagði Gullit hlæjandi og
bætti við að menn væru yfirleitt létt-
ari þegar annað liðið væri öruggt
með sigur."
— Veltirðu því stundum fyrir þér
mataræði þínu?
„Stundum, en oftast borða ég það
sem mig langar f. Og mér þykir ákaf-
lega gott að borða."
— Ertu kominn á toppinn sem
knattspyrnumaður eða áttu enn eftir
að bæta þig töluvert?
„Ég ætla rétt að vona að ég sé ekki
staðnaður og vonandi get ég bætt
mig töluvert. í það minnsta stefni ég
að því að verða betri leikmaður í
framtíðinni."
Þrátt fyrir að hafa verið grýttur með
bönunum í síðasta leik sínum með
Feyenoord segist Gullit ekki muna
eftir því að hafa lent í vandræðum
vegna litarháttar síns. í raun rifjaði
þýska tímaritið DER SPIEGEL það
upp í viðtali við Gullit fyrir tæpu ári
að hann hefði 15 ára gamall orðið
fyrir barðinu á lögregluþjóni vegna
litarháttar síns. Gullit var þá á leið
heim úr skólanum með skólatöskuna
sína, mætti lögregluþjóni sem greip í
handlegginn á honum og sagði:
„Geta niggarar líka lært að lesa?"
Um það leyti sem Ruud Gullitvar
borinn í heiminn var Nelson Mand-
ela fangelsaður fyrir skoðanir sínar á
misrétti gagnvart lituðum og hefur
hann setið í fangelsi æ síðan. Gullit
segist fyrst hafa lesið um Mandela í
skóla en síðan fylgst grannt með ölI-
um hans málum og segist alla tíð
munu berjast gegn aðskilnaðarstefn-
unni. Þegar hann var kjörinn knatt-
spyrnumaður Evrópu tileinkaði hann
Mandela verðlaunin og aðspurður
sagðist hann vonast til að jafnrétti
milli svartra og hvítra yrði að veru-
leika íframtíðinni. Gullit sagðist ekki
vera hræddur um að þriðja heims-
styrjöldin myndi skella á en hann
taldi þaðsamtekki útilokað. En hvað
með Guð? Er hann til?
Leikmenn AC Milan eru gripnir af
fjölmiðlamönnum eftir hverja eina
einustu æfingu og þurfa að svara
fjölda spurninga. Hér er Frank Rijka-
ard í sjónvarpsviðtali.
„Guð er ekki til“
„Nei, fyrir mér er ekkert til sem
heitir Guð. Spurningin um líf eftir
dauðann gerir mig forvitinn en ég er
ekki sannfærður um að það sé til."
— Hvað gerir þig hamingjusam-
an?
„Lífið yfirhöfuð og gott veður. Ég
hef tvisvar komið til íslands og ég
man að þar var allskonar veður. Og
þar voru heldur engin tré; það fannst
mér skrýtið."
— Hvernig sérðu sjálfan þig sem
gamlan mann?
Gullit hló dátt að spurningunni en
svaraði svo: „Ég hef aldrei hugleitt
það en úr því þú nefnir það þá er ég
strax orðinn forvitinn. Ég hef í raun
aldrei hugsað mjög langt fram f tím-
ann. Mér finnst svo gaman að lifa að
það dugar mér fullkomlega."
Gullit segir að ef knattspyrnan
hefði ekki heillað hefði hann hugsan-
lega unnið að einhverju í tengslum
við músík. Félagar hans eru í reggae
hljómsveit og hefur hann fengið að
syngja með þeim á tónleikum annað
slagið. „Ég er ekkert meira hrifinn af
reggae en annars konar tónlist. Til
dæmis hef ég sérstaklega gaman af
hljómsveitinni TalkTalk. Án tónlistar
væri lífið mér einskis virði. Ég nýt
ekki dagsins nema hlusta á tónlist
nokkra klukkutíma á dag."
— Hvers vegna hefur litað fólk
þennan takt í sér?
„Ég veit það ekki. Kannski vegna
þess að þegar við leikum músík döns-
um við við börnin okkar. Stelpurnar
mínar mega t.d. ekki heyra músík þá
eru þær komnar af stað."
— Hvert er mikilvægasta augna-
blik lífs þíns?
„Þegar litlu stúlkurnar mínarfædd-
ust."
Varnardúkkurnar léku stórt hlutverk
á æfingu.
Pétur Pétursson fór ekki með neitt
fleipur þegar hann sagði að Gullit
væri áreiðanlega enn sami góði
drengurinn og hann var áður en hann
fórtil Ítalíu. Þráttfyrirfrægðogframa
er hann laus við hroka og sjálfs-
ánægju. Hann lifir fyrir knattspyrn-
una og fjölskylduna sína og segist
vera hlynntur algjöru frelsi á öllum
sviðum. Það sést greinilega á hár-
greiðslunni sem eru hans helstu ein-
kenni.
Rauði Escortinn með blæjunni
beið fyrir utan æfingasvæðið en
þegar hann renndi úr hlaði með dýr-
mætustu fætur veraldar, fætur Ruud
Gullits, varð mér hugsað til orða
Franz Beckenbauers: „Gullit er full-
komnasti knattspyrnumaður heims."
17