Íþróttablaðið - 01.04.1989, Blaðsíða 23
„Unga karate-fólkið á íslandi er mjög áhugasamt og bind ég miklar vonir við
það."
sem hafa náð mjög góðum árangri á
mótum í Evrópu. Eg vona að í fram-
tíðinni muni fleiri standa sig það vel á
alþjóðlegan mælikvarða að ísland
skapi sér nafn í karate-heiminum. Og
ég er bjartsýnn á að það takist."
— Hvernigerað kenna íslending-
um karate?
„Það er mjög þægilegt því þeir eru
mjög kurteisir og áhugasamir um að
bæta sig. Þeir vilja virkilega læra það
sem fyrir þá er lagt. Einn stór kostur
þeirra er þolinmæði en án hennar
næst aldrei árangur. Þolinmæði er
lykillinn að þvíað náárangri íkarate.
Gerry Flemming leiðbeinir ungum
karate-iðkendum á Unglingameist-
aramóti íslands.
Eins og ég sagði áðan er unga fólkið
mjög áhugasamt og ég bind miklar
vonir við það. Unga fólkið verður
bæði að læra að sigra og tapa því
aðeins þannig verður það tilbúið
undir átökin síðar meir.
Ég er mjög bjartsýnn hvað framtíð-
inni viðvíkur því hér vilja allir leggja
sig fram um að ná langt í karate. Á
Norður-írlandi kvörtuðu margir und-
an erfiðum og of mörgum æfingum
en á íslandi vilja allir æfa eins mikið
og hægt er. Og það er ekkert verið að
dútla á æfingum því allir leggja sig
100%fram. Slíkt hugarfar skiptir máli
þegar menn setja markið hátt."
unglingana að etja kappi við erlenda
jafnaldra og öðlast reynslu því annars
er hætta á að þeir verði fyrir áföllum
seinna. ísland er mjög einangrað
land og það er dýrt að ferðast þannig
að erfitt verður fyrir unglingana að
öðlast fyrrgreinda reynslu."
— Hvað þarf, að þínu mati, að
gerast meðal karateiðkenda á íslandi
til að þeir taki skjótari framförum?
„Hugarfar þeirra þarf fyrst og
fremst að breytast. Hér eru margir
sem hafa ekki nægilega mikið sjálf-
straust og efast um eigin hæfileika.
Auk þess bera þeir of mikla virðingu
fyrir erlendum keppendum. Það er
að vissu leyti í mínum verkahring
sem landsliðsþjálfara að sjá til þess
að hugarfarsbreyting verði á meðal
þeirra sem ég þjálfa. Og ég ætla mér
líka að gera þá að betri íþróttamönn-
um. Eðli íþróttarinnarerþannigaðtil
þess að ná árangri þarf að æfa á fjöl-
breyttan hátt. Karateiðkun getur líka
verið ákjósanlegur undirbúningur
fyrir aðrar íþróttagreinar."
— Er ekki erfitt að vera landsliðs-
þjálfari en dvelja aðeins í 4-5 daga
hér á landi mánaðarlega?
„Vitaskuld fylgja því ákveðin
vandamál en ég reyni að leysa þau á
farsælan hátt. Landsliðshópurinn æf-
ir samkvæmt ákveðinni æfingaátlun
sem ég legg fyrir en auðvitað væri
æskilegast að geta stjórnað öllum æf-
ingunum."
— Hefurðu hugleitt það að dvelja
hér á íslandi á meðan þú ert lands-
liðsþjálfari?
„Karate-iðkun er ákjósanlegur und-
irbúningur fyrir aðrar íþróttagrein-
ar," segir Flemming.
„Auðvitað hefur það komið til tals
en það er nánast óframkvæmanlegt.
Ég hef ákveðnum skyldum að sinna í
Skotlandi auk þess sem eiginkona
mín er ekkert sérlega spennt fyrir því
að flytja. Ef ég segði upp starfi mínu í
Skotlandi væri alls óvíst hvort ég
fengi jafn góða vinnu þegar ég flytti
heim aftur. Hins vegar gæti ég vel
hugsað mér að búa hér til skamms
tíma því ísland er rólegt og hreint
land og fólkið ákaflega vingjarnlegt."
— Hver er, besti karatemaður
sem ísland hefur átt, að þínu mati?
„Það er ómögulegt fyrir mig að
dæma um það því það er þó nokkrir
23