Íþróttablaðið - 01.04.1989, Page 33
„Ha! Fleygustu orð? Örvhentir eld-
ast ei."
HVER ERU FLEYGUSTU ORÐ
SEM ÞÚ HEFUR HEYRT? „Örvhentir
eldast ei."
HVERNIG FERÐ ÞÚ AÐ ÞVÍ AÐ
VERA SVONA FYNDINN? Siggi hlær
og segir: „Eg tel mig ekki mjög fynd-
inn, ég er fyrst og fremst eðlilegur."
HVAÐA ÁLIT HEFUR ÞÚ Á ÞEIM
ÍÞRÓTTAMÖNNUM SEM DÆLA í
SIG LYFJUM TIL AÐ NÁ BETRI ÁR-
ANGRI í ÍÞRÓTTUM? „Satt best að
segja vorkenni ég jaeim því lyfjanotk-
un er það versta sem íþróttamaður
kemst í. Fallið af toppnum hlýtur að
vera gífurlegt þegar upp kemst um þá
sem eru dópaðir eins og sannaðist á
Ben Johnson."
ERT ÞÚ HLYNNTUR BJÓRNUM?
„Já, ég held ég verði að segja það.
Sérstaklega þessum þýska."
HELDURÐU AÐ BJÓRINN HAFI
ÁHRIF Á ÍÞRÓTTAMENN? „Ekki
nema þeir fái bjórdollu í hausinn."
HVER ER BESTI HANDKNATT-
LEIKSMAÐUR HEIMS? „Ætli það séu
ekki nokkrir markmenn sem leika í
Þýskalandi. Ég nefni sem dæmi And-
reas Thiel."
HVERNIG ER AÐ VERA í LANDS-
LIÐINU? „Þú meinar hvernig var að
vera í landsliðinu. Á heildina litið var
þetta ánægjulegur tími. Við fórum í
margar stórkostlegar keppnisferðir
en einnig í nokkrar miður skemmti-
legar eins og gengur."
HVER ER BESTI VINUR ÞINN í
LANDSLIÐINU ? „Ég hef nú ekki tek-
iðneinneinn leikmannframyfirann-
an en auðvitað myndast alltaf litlir
hópar innan hóps eins og landsliðs-
hópurinn er."
FINNST ÞÉR AÐ BOGDAN ÆTTI
AÐ HALDA ÁFRAM AÐ ÞJÁLFA
LANDSLIÐIÐ? „Mín persónulega
skoðun er sú að hann ætti ekki að
gera það."
HVERNIG LEIÐ ÞÉR EFTIR LEIK-
INN GEGN PÓLVERJUM í FRAKK-
LANDI? „Mjög vel. Það var einstök
tilfinning að sjá íslenska fánann bera
hæst."
VARST ÞÚ SÁTTUR VIÐ DÓM-
CÆSLUNA í LEIKJUNUM í FRAKK-
LANDI? „Á heildina litið var ég það
en annars hafa dómarar allt of mikið
að segja á svona stórmótum."
HELDUR ÞÚ AÐ VESTUR-ÞJÓÐ-
VERJAR HAFI MÚTAÐ DÓMURUN-
UM OG RÚMENUM? „Ég er ekki svo
viss um það. Upphaflega var ég á
þeirri skoðun en þegar ég skoða mál-
ið betur er ég ekki viss. Það er og
verður alltaf einhver mafía í gangi á
„Rauði liturinn getur vart verið
óhappalitur."
svona stórmótum og það verður að
viðurkennast að Vestur-Þjóðverjar
hafa ansi mikil ítök."
ER ÞAÐ RÉTT AÐ ÞIÐ LÉKUÐ
BARA EINU SINNI í RAUÐUM
BÚNINGUM í FRAKKLANDI OG
ÞAÐ í TAPLEIKNUM Á MÓTI RÚM-
ENUM? GETUR ÞAÐ VERIÐ
ÓHAPPABÚNINGUR? „Það man ég
ómögulega. Ég held að það skipti
ekki máli í hvers konar búningum við
leikum. Rauði liturinn getur vart
verið óhappalitur því hann er svo fal-
legur. Enda Valsliturinn."
HVAÐ SKORAÐIR ÞÚ MÖRG
MÖRK í B-KEPPNINNl? „Um 20, að
ég held."
ÆTLAR ÞÚ AÐ HALDA ÁFRAM
MEÐ LANDSLIÐINU EFTIR B-
KEPPNINA? „Keppnin er búin og ég
hef ákveðið að draga mig í hlé. Enda
kominn tími til að sinna öðrum
áhugamálum."
HVAÐ VERÐUR UM BIKARINN
SEM ÞIÐ FENGUÐ í FRAKKLANDI?
„Ætli hann verði ekki geymdur á
skrifstofu HSÍ eða heima í stofu hjá
Guðjóni Guðmunds. Annars var
þetta krystalsvasi en ekki bikar."
FINNST ÞÉR AÐ ÞÚ HEFÐIR ÁTT
AÐ FÁ FLEIRI TÆKIFÆRI TIL AÐ
SPILA MEÐ LANDSLIÐINU Á FERL-
INUM? „Þegar ég hugsa til baka tel
ég svo vera. Sérstaklega vegna þess
að á svo mörgum stöðum voru vara-
mannabekkirnir ansi slæmir!"
LÍKAR ÞÉR VEL í VAL? „Mjög vel."
HELDUR ÞÚ AÐ ÞIÐ VINNIÐ
AFTUR TVÖFALT í ÁR? „Við ætlum
að selja okkur dýrt til þess að halda
báðum titlunum."
33