Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1989, Qupperneq 37

Íþróttablaðið - 01.04.1989, Qupperneq 37
Linda Steinunn íbyggin á svip fyrir æfingar á jafnvægisslá. Þjálfarar hennar, Hlín Árnadóttir og Chen Jain eru aldrei langt undan. Linda Steinunn hlaut samtals 71,712 stig í fjölþraut, Fjóla varð í 2. sæti með 69,275 stig og Bryndís með 69,013 stig Í3. sæti. ífrjálsu æfingun- um sýndi Linda mikið öryggi og fór áfallalaust í gegnum þær. Linda er 14 ára gömul og hefur stundað fimleika frá sex ára aldri. „Við byrjuðum saman fimm vinkon- ur og höfum haldið hópinn nokkuð vel síðan. Á þeim tíma voru þær Brynhildur og Karólína fremstar í flokki í Björku og vitaskuld voru þær mín fyrirmynd." Linda hefur ekki komist slysalaust í gegnum íþrótt sína því á Norður- landamótinu í Finnlandi ífyrra hand- leggsbrotnaði hún og varð að hætta keppni. Hún var þá í 2. sæti í fjöl- þraut og átti góða möguleika á verð- launasæti. „Jú, vitanlega var hrika- lega svekkjandi að meiðast á þessum tíma en maður eflist bara við mótlæt- ið." Það eru orð að sönnu hjá Lindu því síðastliðið haust ökklabrotnaði hún svo illa að fæstir bjuggust við að hún myndi ná sér fyrir íslandsmótið. „Ég gat farið að reyna almennilega á fót- inn að nýju upp úr síöustu áramótum en ég þarf enn að „teipa" mig á æf- ingum og í keppni því ég er ekki alveg búin að ná upp fyrri styrkleika. Það sem var kannski erfiðast við þetta íslandsmót var hve stuttan tíma við höfðum til að ná tökum á skyldu- æfingunum. Eftir Ólympíuleikana í Seoul voru teknar upp nýjar æfingar sem voru kynntar fyrir okkur í janúar síðastliðnum. Fyrirvarinn var þvíekki mikill." — Undirbjóstu þig öðruvísi fyrir þetta mót en önnur? „Nei, ég æfði bara vel og passaði upp á svefninn og mataræðið. Það sem skiptir hvað mestu máli á svona móti er að vera yfirvegaður því það þarf svo lítið út af að bera til þess að allt fari úrskeiðis. Örlítil mistök geta skipt sköpum. Vitanlega var ég dálít- ið stressuð fyrir mótið en um leið og ég var komin af stað fann égekki fyrir því. Ég á tiltölulega auðvelt með að útiloka áhorfendur og annað sem getur haft áhrif á einbeitinguna. Mótið var líka erfitt vegna þess að það spannaði tvær helgar og voru keppendur orðnir dauðþreyttir í lok- in. Auk þess er gólfið í Laugardals- höllinni mun verraen keppendureru vanir á æfingum því það gefur ekki nægilega mikinn kraft. Ég hætti til að mynda við að taka tvöfalt heljarstökk vegna þess að ég treysti mér ekki til þesságólfinu. En sem beturferstend- urtil að fá nýttgólfá næstunni." Linda Steinunn sagði að tvísláin hefði verið henni erfið í gegnum árin og því væri hún að vinna að því að bæta sig þar. „Bestfinnst mér ég ráða við gólfæfingarnar og stökkið." Þetta er greinilega spurning um að nota „réttu græjurnar" í fimleikum. Linda undirbýr sig fyrir æfingar á tvíslá. 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.