Íþróttablaðið - 01.04.1989, Blaðsíða 40
En það er Ijóst að ég verð að bæta mig
á honum í framtíðinni."
Guðjón er á nítjánda ári, fæddur í
desember og hefur lengst af búið í
Reykjavík. Hann hefur verið í Ar-
manni allan sinn íþróttaferil og segir
aðstöðuna til fimleikaiðkunar þar
góða. „Við það að fá íþróttahúsið
nánast út affyrirokkurermjög þægi-
legt að geta gengið að öllum áhöld-
unum á sínum stað úti á gólfi. Aður
þurftum við að byrja allar æfingar á
því að koma þeim fyrir. Það stendur
til að setjagryfju í húsið og þá loksins
fara hlutirnir að gerast. Viðbrigðin
verða væntanlega mjög mikil því
maður verður mun öruggari í æfing-
unum við að vita af gryfju undir sér.
Þá verður líka hægt að æfa atriði sem
okkur reynist ókleift í dag."
Fimleikadeild Ármanns hlaut 10
gull af 10 mögulegum þegar keppt
var um íslandsmeistaratitilinn á
hverju áhaldi fyrirsigog þakkarGuð-
jón það mikilli grósku í félaginu og
góðum þjálfurum. „Breiddin í karla-
flokki er ekki mikil en hins vegar er
töluverður fjöldi stúlkna sem æfir
fimleika ásamt nokkrum öðrum fé-
lögum. Eftir 5-6 ár verða væntanlega
margir góðir fimleikastrákar í Ár-
manni því í dag æfir fjöldinn allur af
litlum peyjum mjög vel."
Guðjón æfir íþrótt sína 30 klukku-
stundir á viku og gefst því lítill tími til
annars en að æfa og glugga í náms-
bækur en hann er í Verslunarskóla
íslands. „Vitanlega kemur stundum
Svifið um Laugardalshöllina í af-
stökki af svifránni.
leiði í mig þegar ég æfi svona mikið
en þá skiptum við yfirleitt yfir í
þrekæfingartil að yfirvinna þreytuna.
Hlutur þrekæfinga í fimleikum hefur
aukist mjög mikið á síðastliðnum ár-
um og lætur nærri að 1/3 af öllum
æfingum sé þrekæfingar."
— Hvernig undirbjóstu þig fyrir
nýafstaðið íslandsmót?
„Ég reyni ávallt að einbeita mér að
því að líta á mót eins og hverja aðra
æfingu. Á æfingum tekst mér að gera
alla þá hluti sem þarf til að standa sig
vel á móti og því er um að gera að
vera afslappaður og sjálfsöruggur."
— Er ekki stressandi að taka þátt í
svona móti?
„Jú, sérstaklega fyrst. Við byrjuð-
um á gólfæfingum og var mjög mikil-
vægt að standa sig vel í þeim. Að
þeim æfingum loknum var stressið
nánast horfið nema hvað bogahest-
urinn var að angra mig eins og vana-
lega."
Þessir öttu kappi á fimleikamóti íslands árið 1989. Frá vinstri: Guðmundur
Þór Brynjólfsson, Jón Finnbogason, Skarphéðinn Halldórsson, Guðjón Guð-
mundsson, Kristján Stefánsson og Jóhannes Níels Sigurðsson.
Eins gott að réttur endi komi niður
fyrst!
Sigurvegararnir Guðjón og Linda
stíga á kistulok og veita verðlaunum
sínum viðtöku.
Það þarf mikinn styrk til þess að ná
góðum árangri í fimleikum.
40