Íþróttablaðið - 01.04.1989, Side 55
Guðmundur Hrafnkelsson, Valdimar og Bjarki taka far-
angurinn sinn eftir flugið frá Cherbourg til Strassbourg.
Aðstandendur liðsins í ferðinni: Bogdan, Gunnar Þór,
Jón Hjaltalín, Guðjón Guðmundsson og Davíð Sigurðs-
son.
og það eingöngu vegna lélegrar fjar-
stýringar sem Valda gekk erfiðlega að
ráða við, eða það taldi hann okkur
hinum trú um.
í ferðum sem þessum er maturinn
æði þreytilegur og vindgangur leik-
manna því nokkuð tíður. Á fundun-
um vill oft ýmislegt „fjúka" sem ekki
er til að bæta andrúmsloftið og mæl-
ist það misvel fyrir. Eitt sinn þegar
hljómmikill „aftansöngur" stóð sem
hæst missti Bó-Bó þolinmæðina og
sagði að sá sem vogaði sér að láta
eitthvað „fjúka" á næsta fundi yrði
vikið út og fengi ekki að vera með í
næsta leik! Var mikið hlegið að þess-
ari nýju reglu karlsins og voru allir
staðráðnir í að leggja sig fram um að
láta allt „fjúka" sem mögulegt væri á
næsta fundi! Næsti fundur var því
ansi hávaðasamur og fjörugur og ef
Bogdan hefði staðið við orð sín er ég
ansi hræddur um að hann hefði varla
náð saman liði. Ekki var því um neitt
annað að ræða en afnema þessa
reglu. En þetta er lýsandi dæmi um
hverju karlinn getur tekið upp á
þegar skapið erekki sem þest. Nú, en
áfram þar sem frá var horfið með
undirbúninginn. Fljótlega eftir fund-
inn var hádegismatur. Hann er oftast
nær borðaður 5-6 tímum fyrir leik og
er þá um heita máltíð að ræða sem er
yfirleitt reynt að hafa sem orkurík-
asta. Síðan vill Bó-Bó að eftir mat fari
leikmenn tveir og tveir inn á herbergi
þangað til að kaffi kemur sem er yfir-
leitt ca. 2 tímum fyrir leik.
Lagt var af stað til leiks, hálftíma
síðar þar sem einungis 15 mínútna
keyrsla var til íþróttahallarinnar, en
yfirleitt er reynt að mæta 1 klst. og 15
mín. fyrir leik. Á leiðinni vildi Bogd-
an að þögn væri í rútunni og að leik-
menn einbeittu sér að leiknum. Fyrir
leikinn gegn Búlgaríu voru menn
ekki alveg vissir um hvað væri verið
að fara út í en vissu þó innst inni að
sigur ætti að geta unnist. Eftir nokkra
byrjunarörðugleika gengu hlutirnir
upp og góður sigur vannst, 20-12.
Leikurinn var ekki marktækur að
mínu viti því liðið virkaði nokkuð
stressað í upphafi og enn einu sinni
tókst okkur að gera heimsklassa-
markmann úr miðlungsmarkmanni
andstæðinganna. í dagbókina skrif-
aði ég: „Erfitt er að dæma liðið eftir
leikinn en leikmenn hafa greinilega
bæði metnað og vilja og baráttan var
til fyrirmyndar. Létt er yfir hópnum,
„húmorinn" ígóðu lagi og allir reyna
að gera ferðina sem ánægjulegasta.
Aðeins einn bjór
var leyfilegur
Þótt margir virki nokkuð kærulausir
er stutt í alvöruna og innst inni ætla
allir að tryggja íslandi sæti meðal A-
þjóða að nýju."
Á kvöldin er okkur leyft að drekka
einn bjór og fáum við hann yfirleitt
með kvöldmatnum. Sumum finnstað
bjórarnir mættu vera tveir, sérstak-
lega finnst þeim það sem hafa dvalið
erlendis ogeru orðnir vanir bjórnum.
En það verður engu tauti komið við
Bó-Bó og ef hann segir að einn bjór
sé leyfilegur, verða þeir ekki fleiri.
Eins og allir vita er til fjöldinn allur af
bjórtegundum og hvar sem komið er
fær maður að kynnast nýrri tegund
bjórs. Oftast fáum við bjór á flöskum
við matarborðið og vonast allir leik-
menn til að þær séu sem stærstar. Ef
hálfs lítra flöskur birtast hýrnar vel
yfir 16 andlitum og súrnar yfir einu,
en þegar litlir „ræflar" eru bornir á
borðið heyrast 16 óánægjuraddir en
glott birtist á einum viðstöddum. En
reglureru reglur — einn bjórskal það
vera.
Næsti andstæðingur okkar í B-
keppninni var Kuwait. Lið olíufurst-
anna var ekki mikil hindrun og lauk
með stórsigri okkar, 33-14. Leikmenn
Kuwait brotnuðu gjörsamlega og
Kristján Arason gefur eiginhandar-
áritun eftir leik í Cherbourg.
skoruðum við 16 mörk, eða nær
helming markanna úr hraðaupp-
hlaupum. Og svo ég vitni í dagbók-
ina: „Brotnuðu þeir svo gjörsamlega
að ekki stóð steinn yfir steini í liðinu.
Gleymi ég því seint þegar nokkuð var
liðið á seinni hálfleikinn og einu af
okkar fjölmörgu hraðaupphlaupum
var lokið. Þá gekk línumaður þeirra
inn á línuna, horfði á mig bænaraug-
um og gat ég lesið úr augum hans;
Þarf þetta virkilega að vera svona
mikil rassskelling, er ekki komið
nóg?!" En þetta vargóðursiguroggaf
55