Íþróttablaðið - 01.04.1989, Side 57
„Birtu þessa mynd, þá hlýt ég að fá kauphækkun!" Sagði Birgir Sigurðsson
landsliðsmaður og starfsmaður Vífilfells við Ijósmyndarann. Guðmundur og
Héðinn eru einnig í „kókliðinu" að þessu sinni.
flaug í átt að sjónvarpstækjunum og
sumir slökktu til þess að svekkja sig
ekki á leiknum. Úrslitin voru augljós
frá upphafi og kom leikurinn okkur í
virkilega vont skap. Maður vill ekki
trúa því að mútur eigi sér stað í íþrótt-
um en leikurinn sannaði það svo
verður ekki um villst. Því miður eru
peningar farnir að skipta allt of miklu
máli og raunverulegur tilgangur
íþróttakeppnanna vill gleymast.
Leikurinn gegn Sviss var gffurlegt
taugastríð því við vissum að það lið
sem ynni væri öruggt í A-hópinn en
hitt gæti endað í A,-, B- eða jafnvel
C-hópi. Nokkuð mikið var því um
mistökoggæði leiksinsekki mikil. En
taugastríðið vannst 19-18 og við vor-
um svo til öruggir sem A-þjóð. V-
Þjóðverjar unnu Rúmena eins og
áðursagði og voru þá þrjú lið, ísland,
Sviss og Rúmenar með 6 stig og V-
Þýskaland með 4 stig. Ef svo illa færi
að við töpuðum gegn Hollandi og
V-Þjóðverjar ynnu Búlgari myndum
við detta út á kostnað Þjóðverjanna!
M.ö.o. með fjóra unna leiki af fimm
vorum við þrátt fyrir allt ekki búnir að
tryggja okkur. Þann fimmta varð því
að vinna til að allt væri 100% öruggt.
Við þurftum að ná 83% árangri í
keppninni til að tryggja okkur A-sæti!
Þetta sýnir bara hversu lítið má út af
bregða og að búast verður við öllu.
Eftir að við höfðum lagt Sviss að
velli kom einn leikmaður Þjóðverja
inn í klefann til okkar og þakkaði
okkur fyrir sigur gegn Sviss því þar
með töldu Þjóðverjar sig örugga með
A-sætið. Bogdan varð manninum
mjög reiður og sagði honum að leik-
menn sem þyrftu að sigra á mútum
vildi hann ekki hafa inni f klefa hjá
sér. „Hér ræð ég og komdu þér út!"
Að svo mæltu var honum hent út.
Bogdan var greinilega mjög sár út í
Þjóðverjana sem skiljanlegt er enda
varð hann gffurlega glaður þegar í
Ijós kom tveimur dögum seinna að
þeir kæmust ekki í hóp þeirra bestu.
Þegar sigurinn gegn Sviss var í
höfn fór einkennileg tilfinning um
mann. Sigurinn var jú okkar en við
fundum til með Svisslendingum.
Þegar 6 sekúndur voru til leiksloka
voru þeir tveimur leikmönnum fleiri
en við og með boltann. En á einhvern
óskiljanlegan hátt tókst þeim að mis-
nota dauðafæri og sigurinn var okk-
ar. Með jafntefli hefðu bæði liðin ef-
laust tryggt sér A-sæti og V-Þjóðverj-
ar að sama skapi dottið út. Eftir
leikinn fréttum við að Þjóðverjarnir
hefðu verið sannfærðir um að ef leik-
ur okkar við Sviss hefði endað með
jafntefli, sem hann hefði hæglega
getað gert, hefði það verið skipulagt,
eingöngu til að koma þeim út! Marg-
PIZZF\ með SKINKU
___________
- LOFT
Bragógóóur BITI með SKINKU
BORGARNES - BITINN
er tilbúinn á augabragði,
aðeins 3-4 mín. á grillinu og
enn skemmri tíma í örbylgju-
ofninum.
BITINN er með skinku, osti,
ananas, papriku og kryddi.
Reyndu líka hina með
nautahakki og pepperoni.
Mjólkursamlag Borgfirðinga,
Borgarnesi s í mi: 93-71200.