Íþróttablaðið - 01.04.1989, Qupperneq 65
frétíabréf
Umsjón: Stefán Konráðsson
Þátttakendur á grunnstigsnámskeiði ÍSÍ. Anton Bjarnason, námskeiðsstjóri
og Karl Guðmundsson fræðslustjóri ÍSÍ og umsjónarmaður námskeiðanna
er fýrir miðri mynd. Á myndina vantar Olgu Lísu Garðarsdóttur námskeiðs-
stjóra.
Ný tilhögun fræðslunámskeiða
á vegum ÍSÍ
Fræðslunefnd ÍSÍ hefur gengist
fyrir tveimur leiðbeinendanámskeið-
um í íþróttum samkvæmt nýrri til-
högun á námskeiðum íþróttahreyf-
ingarinnar. Þeim þátttakendum sem
komu utan af landi var boðin frí gist-
ing í Hótel ISÍ og einnig fengu allir
þátttakendur frítt fæði þá daga sem
námskeiðið stóð yfir. Það er ljóst að
þetta ágæta framtak fræðslunefndar
ISI er spor í rétta átt í fræðslumálum
íþróttahreyfingarinnar.
A-stig ÍSÍ(samræmdur
bóklegur hluti)
Námskeiðið var haldið dagana 25-
.26. febrúar sl. í íþróttamiðstöðinni
Laugardal. Námskeiðið sem er 20
kennslustundir hófst báða dagana
kl.09 að morgni og stóð til kl.l 7:40
Þátttakendur voru 23 talsins. Kennar-
ar voru Guðmundur Ólafsson íþrótta-
kennari sem jafnframt var náms-
skeiðsstjóri, Magnús Jónatansson
íþróttakennari, Andrés Kristjánsson
sjúkraþjálfari og Jón Gíslason nær-
ingarfræðingur. Nemendur voru
ástundunar- og áhugasamir og tókst
námskeiðið hið besta í alla staði.
Lokaþáttur þessa námskeiðs verður
síðan tíu tíma námskeið í kennslu-
fræði, æfingakennslu o.fl., hjá við-
komandi sérsambandi.
Grunnstig ÍSÍ(samræmdur
hluti)
Námskeiðið, sem ætlað er leið-
beinendum barna og unglinga, var
haldið 3.,4. og 5.mars sl. ííþróttamið-
stöð ÍSÍ í Laugardal. Þátttakendur
voru 26. Kennarar voru Olga Lísa
Garðarsdóttir íþróttakennari,sem
kenndi bóklegu fögin og var jafn-
framt námskeiðsstjóri og Anton
Bjarnason sem kenndi kennslufræði
leikja og annaðist verklega leikja-
kennslu, sem fram fór í íþróttasal
Laugarnesskóla. Hannes Þ. Sigurðs-
son formaður fræðslunefndar ÍSÍ setti
námskeiðið með ræðu. Af viðtölum
við þátttakendur kom fram að al-
menn ánægja var með námskeiðið.
Margir þátttakendur voru utan af
landi og er víst að boð fræðslunefnd-
ar um fría gistingu og fæði hafði hér
veruleg áhrif.Þess má geta að 10 þátt-
takendur þáðu gistingu á Hótel ÍSÍ og
er þá átt við bæði námskeiðin. í lok
beggja námskeiðanna var nemend-
um afhent viðurkenningarskírteini
fyrir þátttökuna. Næsta stig barna- og
unglingaþjálfaranámsins er grunn-
stig sérsambandanna. Mun þar verða
fjallað um byrjendakennslu í öllum
þáttum viðkomandi sérgreinar, fyrir
aldurshópana frá 6-16 ára.
Sambandsstjórnarfundur ÍSÍ.
Sambandsstjómarfundur ÍSÍ verð-
ur haldinn 20. maí nk. í íþróttamið-
stöðinni Laugardal og hefst kl. 10:00.
Dagskrá verður send til héraðs- og
sérsambanda 2 vikum fyrir fundinn.
Allar nánari upplýsingar fást á skrif-
stofu ÍSÍ.
65