Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1989, Side 71

Íþróttablaðið - 01.04.1989, Side 71
menn í hverja stöðu. Með fleiri skipt- ingum verður handknattleikurinn enn hraðari og það vill fólk sjá. Áhorfendur vilja sjá hraðan leik og fleiri mörk og hann nefnir banda- rískan körfuknattleik í þessu sam- bandi. Samanburður er ekki handa- hófskenndur því Bogdan vill ólmur taka upp veigamikla reglu úr körfu- knattleik. Það er nákvæma reglu um hámarkstíma sóknar, en í körfubolta er alkunna að sóknarlið missir knött- inn eftir þrjátíu sekúndur ef það reynir ekki körfuskot. í Sovétríkjun- um hefur svokölluð fjörutíu sek- úndna regla verið við lýði í deildar- leikjum í handknattleik, um árabil. Það skýrir kannski hvers vegna Sov- étmenn áttu ekki í vandræðum með suður-kóreanskan eimreiðarhand- bolta í úrslitaleiknum í Seoul! Snúa verður vörn í sókn Næst lýsir Bogdan yfir áhyggjum varðandi handknattleik á Vestur- löndum. Gerir jafnvel að því skóna að Vesturlönd eigi ekki möguleika gagnvart austantjaldsliðum þegar til lengri tíma er litið. Handan járn- tjalds er afþreying ekki eins fjöl- breytt og hér. Benda má á, að sums- staðar á Vesturlöndum er ekki stundaður handknattleikur svo telj- andi sé, en þar er knattspyrna aðal- boltaíþrótt. Fyrir austan járntjald er handknattleikur í svipuðum gæða- flokki og knattspyrna, jafnvel hærra skrifaður eins og til dæmis í Austur- þýskalandi. Þess vegna vonast hann til að byltingarkenndar breytingar verði til þess að gera handknattleik svo áhugaverðan að hann nái að snúa vörn í sókn á Vesturlöndum. Algert skilyrði telur hann að hægt verði að koma handknattleik í sjón- varp sem víðast, en þar fari fram hinn eiginlega orusta um áhorfend- ur. Greinarhöfundur lýkur úr flösku af áður forboðnum miði á íslandi og reynir að sjá fyrir sér þriðja „hálf- leikinn" í framtíðarhandknattleikn- um. Hvernig myndu áhorfendur í Laugardalshöll bregðast við ef ís- lendingar misstu boltann eftir fjöru- tíu sekúndur í jafnri stöðu gegn „Vesturlönd eiga litla möguleika gagnvart Austantjalds-liðum þegar til lengri tíma er litið," segir Bogdan. Svíum? Hvað í ósköpunum yrði um svissneska landsliðið? Það rifjast upp tíu ára gömul ummæli Vlado Stenzels þjálfara heimsmeistaranna vestur-þýsku, um að lengja beri völl- inn og leika allt að tveimur metrum fyrir aftan mörkin! Að lokum hefst umræða um ís- lenska markverði. Hvernig má það vera að fyrrum landsliðsmarkvörður Pólverja hafi þjálfað á íslandi í rúm- an áratug, en markverðir í sérflokki séu teljandi á fingrum annarrar handar á þessu tímabili í íslenskum handknattleik? Bogdan kemur enn á óvart. Lætur ekki leiðast út í að fjalla um þjálfun markvarða eins og væri það einfalt reikningsdæmi. Nefnir Enginn hefur gerbreytt íslenskum handknattleik eins og Bogdan. hins vegar nöfn þriggja ungra mark- varða, sem hann segir munu verja mark ísiendinga í Heimsmeistara- keppninni á heimavelli eftir sex ár! Lýkur þá skeggræðum um hand- knattleik. Þegar lélegir breskir blaðamenn eiga í vandræðum með að enda greinar, grípa þeir stundum til þess ráðs að enda á orðunum: „The rest is history." Mér liggur við að gera þessi orð að mmum. Þá koma orð Guðjóns Guðmundssonar upp í hugann; „...Enginn hefur gerbreytt íslenskum handknattleik eins og Bogdan. Þegar hann kom til landsins æfðu flest lið tvisvartil fjórum sinnum íviku. Núna æfa öll lið sex til sjö sinnum í viku." Verður Bogdan landsliðsþjálfari áfram eða hverfur hann af landi brott? Um þær mundirsem lokaorðin eru laminn inn á tölvuskjáinn, er Grótta að vinna tvö efstu lið fyrstu deildar. Þjálfari nýliðanna í fyrstu deild, er Árni Indriðason, sem um árabil lék undir handleiðslu Bogdans hjá Vík- ingi. Þorbergur Aðalsteinsson á að baki langan þjálfaraferil þó enn sé hann ungur og meðal atkvæðamestu manna í Allsvenskan f Svíþjóð. Viggó Sigurðsson hefur í hafnfirsku bræðslukeri steypt saman snjöllu liði, sem sæmir hafnfirskri hand- boltahefð. Og svona mætti lengi telja. Hvað sem öllum vangaveltum um landliðsþjálfarastöðuna og framtíð- aráform Bogdans Kowalczky líður, er Ijóst, að verk hans í íslenskum hand- knattleik verða um ókomin ár. 71

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.