Íþróttablaðið - 01.04.1989, Síða 82
að fólk úti í bæ er hætt að geta fylgst
með hvað er að gerast. Einn sagði t.d.
við mig um daginn:„Hva! Njarðvík
er búið að vinna næstum alla leikina í
deildinni í vetur en nú eru þeir ekki
lengur að keppa. Hvers vegna?" Ég
lái þeim ekki sem eiga erfitt með að
átta sig á fyrirkomulaginu."
— Finnst þér ekki ósanngjarnt að
lið sem hefur kannski haft nokkra
yfirburði yfirönnur liðá heilu keppn-
istímabili skuli ekki verða íslands-
meistari?
„Jú, ég verð að viðurkenna það en
eins og fyrirkomulagið er í dag er því
ekki að skipta. Hins vegar mætti gera
mun meira úr deildarmeistaratitlin-
um. Ég hef t.d. ekki hugmynd um það
hvort lið Njarðvíkur var krýnt sem
deildarmeistari og leikmenn heiðr-
aðir. Þó má ekki líta fram hjá því að
fyrirkomulagið með úrslitakeppninni
eykur töluvert áhugann meðal al-
mennings og þess vegna er ég hlynnt-
ur henni þótt það sé sárt fyrir lið eins
og Njarðvík, sem hefur staðið sig
mjög vel í vetur, að falla úr keppn-
inni."
— Hvað kom þér mest á óvart á
keppnistímabilinu?
„Baráttan og liðsheildin skipti mestu
máli í úrslitaleiknum gegn KR."
„Það kom mér mest á óvart að Val-
ur skyldi tryggja sér sæti í úrslita-
keppninni miðað við stöðu þeirra um
síðustu áramót. Þá talaði ég við leik-
mann í liði Vals og var dauft í honum
hljóðið, öfugt við Grindvíkingana
sem töldu sig nokkuð örugga. En
Grindvíkingar eru í svipuðum spor-
um og við vorum í fyrir sex árum
þegar við vorum að berjast fyrir því
að komast á toppinn. Þeir þurfa engu
að kvíða í framtíðinni."
— Kom hápressa KR-inga ykkur í
opna skjöldu í fyrstu leikjunum í úr-
slitakeppninni?
„KR-ingarléku hápressu ínæstsíð-
asta leik sínum í deildinni gegn okkur
og sigrðu. Sama gerðu þeir á móti
Njarðvík og kom það þeim í opna
skjöldu þótt þeir hafi vitað hvernig
KR lék gegn okkur. KR-ingar spiluðu
þessa leikaðferð mjög stíft og oft á
tíðum gróft en munurinn á okkur og
Njarðvík var sá að við létum þetta
ekki fara í skapið á okkur nema í
leiknum í Reykjavík. Njarðvíkingar
trylltust og gátu alls ekki einbeitt sér
að leiknum því allt púðrið fór í að
rífast við dómarana.
Tvær í öruggum vexti
Sparisjóðurinn í Keflavík býður tvær öruggar leiðir til ávöxt-
unar: TROMPBÓK nýtt og betra Tromp - alltaf laus og án út-
tektargjalds. ÖRYGGISBÓK - 12 mánaða bundinn reikning-
ur með stighækkandi vöxtum á allri upphæðinni, eftir því sem
innstæðan hækkar. í fjármálum setjum
við öryggið ofar öðru.
SPARISJÓDURINN
í KEFLAVÍK
Suðurgötu 6, símí 92-15800
Njarðvík, Grundarvegi 23, sími 92-14800
82