Morgunblaðið - 23.01.2020, Síða 49

Morgunblaðið - 23.01.2020, Síða 49
       atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391 • Yfirgripsmikil reynsla af rekstri og þekking á íslensku atvinnulífi. • Þekking á rekstri banka og starfsemi fjármálafyrirtækja. • Reynsla af alþjóðlegum viðskiptum. • Sérþekking á sviði upplýsingatækni. • Sérþekking á sviði áhættustefnu s.s. markaðs- og lánsáhættu. • Reynsla af stjórnun og stefnumótun. • Traust og gott orðspor. • Leiðtogahæfileikar. • Fjárhagslegt sjálfstæði. • Menntun sem nýtist í starfi. Bankasýslan fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum samkvæmt lögum nr. 88/2009 um Bankasýslu ríkisins. Fer stofnunin með 100% eignarhlut í Íslandsbanka hf., 98,2% eignarhlut í Landsbankanum hf. og 49,5% eignarhlut í Sparisjóði Austurlands hf. Við val á einstaklingum sem tilnefndir eru í stjórnir fjármálafyrirtækja tekur valnefndin mið af yfirsýn, þekkingu og reynslu viðkomandi í tengslum við fyrirtækjarekstur og starfsháttum fjármálafyrirtækja. Nefndin leitast við að það sitji sem næst jafnmargar konur og karlar í stjórnum fjármálafyrirtækja. Þá er jafnframt miðað að því að þekking og reynsla stjórnarmanna sé fjölbreytt. Einstaklingar sem vilja gefa kost á sér þurfa að uppfylla margvísleg lagaleg skilyrði, m.a. vegna laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, ásamt því að standast hæfismat Fjármálaeftirlitsins. Nánari upplýsingar um skilyrðin má finna á heimasíðu Bankasýslu ríkisins. Bankasýsla ríkisins leitar að einstaklingum til stjórnarsetu í fjármálafyrirtækjum. Bankasýsla ríkisins er sérstök ríkisstofnun með sjálfstæða stjórn sem heyrir undir fjármála- og efnahagsráðherra og fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum í samræmi við lög, góða stjórnsýslu- og viðskiptahætti og eigendastefnu ríkisins á hverjum tíma. VIÐ MAT Á HÆFI EINSTAKLINGA LÍTUR VALNEFNDIN MEÐAL ANNARS TIL EFTIRFARANDI ATRIÐA: Nánari upplýsingar er að finna á vef Bankasýslu ríkisins www.bankasysla.is Áhugasamir einstaklingar sem telja sig uppfylla framangreind skilyrði eru hvattir til að senda ferilskrár og kynningarbréf ásamt upplýsingum um ofangreind atriði til valnefndar Bankasýslu ríkisins á netfangið valnefnd@bankasysla.is. Óskað er eftir að umbeðnar upplýsingar berist fyrir 29. janúar nk. Nánari upplýsingar veitir Jón G. Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, sími 550-1700. RÁÐNINGARRÁÐGJÖF RANNSÓKNIR Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.