Morgunblaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020 Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 ÚTSALAÁRSINSALLT AÐ 75% AFSLÁTTUR AF YFIR 1000VÖRUM. ALLT AÐ 50.000KR AFSLÁTTURAF YFIR 300 FARTÖLVUM EKKI MISSA AF ÞESSU Opið í dag 10-18 SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Það var ekkert annað í boði að hálfu ríkisins. Sjúkratryggingar sögðu strax í upphafi viðræðna að þeim væri afmarkaður þröngur rammi í fjárlög- um og fyrir lægi að það yrði niður- skurður á þessu ári sem semja yrði um,“ segir Ey- björg Hauksdótt- ir, framkvæmda- stjóri Samtaka fyrirtæka í vel- ferðarþjónustu (SFV), um nýja þjónustusamn- inga við hjúkrun- arheimilin sem gengið var frá í lok síðasta árs. Í yfirlýsingu frá samninganefnd SFV og Sambands íslenskra sveitar- félaga segir að þessir samningar séu mikil afturför frá fyrri rammasamn- ingi sem gilti frá 2016 til 2018, en hjúkrunarheimilin hafi verið nauð- beygð til að skrifa undir þar sem ríkið hafi neytt aflsmunar. Í nýju samning- unum sé ekki gert ráð fyrir að bætt verði við fjármunum til að mæta auk- inni þjónustuþörf þeirra einstaklinga sem muni þurfa að nýta sér þjónustu í hjúkrunar- og dvalarrýmum á samn- ingstímanum. Í því felist að ef íbúar eins hjúkrunarheimilis þurfi aukna þjónustu vegna heilsufarsástæðna, þá mun fjármagn vegna þjónustu við íbúana ekki verða aukið í réttu hlut- falli við þörfina. 43 samhljóða samningar Fram kemur á vef Sjúkratrygg- inga að gerðir hafi verið 43 samhljóða samningar um rekstur og þjónustu hjúkrunarheimila á landinu til næstu tveggja ára en samningslaust hafi verið um þjónustu þeirra á árinu 2019. Samningur hafi verið gerður við hvern rekstraraðila en ekki ramma- samningur við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu og Samband ís- lenskra sveitarfélaga eins og verið hefur. Samningarnir taki alls til 2.468 hjúkrunar- og dvalarrýma og nemi um 32,5 milljörðum króna á ári á verðlagi ársins 2020. Í yfirlýsingu samninganefndar SFV og sveitarfélaganna segir að það gallaða kerfi sem nýju samningarnir byggist á hafi verið notað af hálfu ríkisins við útdeilingu fjármuna áður en gerður var þjónustusamningur við hjúkrunarheimilin árið 2016. Um sé að ræða afturhvarf sem gangi gegn því sjónarmiði að greiðslur fylgi þjón- ustuþegum og séu í samræmi við þeirra þörf. Samninganefndin sé eng- an veginn sátt við þessa niðurstöðu. Meginástæða þess að sú ákvörðun var tekin að skrifa undir samning nú hafi verið sú afstaða ríkisins að um 216 milljónir króna af fjárveitingu sem ákvörðuð var með fjárlögum fyr- ir árið 2019 til reksturs hjúkrunar- heimila, yrði ekki greidd nema gerður yrði samningur. Þá væri óljóst með einingarverðshækkanir og aðrar greiðslur á árinu 2020, ef ekki yrði samið og Sjúkratryggingar myndu setja heimilunum gjaldskrá. Samn- ingsstaða hjúkrunarheimila hafi því ekki verið nein. Styrkja þarf rekstrargrunninn Ítrekað er í yfirlýsingunni að styrkja þurfi rekstrargrunn hjúkrun- arheimila. Það hafi ekki verið gert þrátt fyrir yfirlýsingar þess efnis í stjórnarsáttmála núverandi ríkis- stjórnar. „Þvert á móti er í nýjum samningi hjúkrunarheimilanna fjár- veiting til heimila vegna aukinnar hjúkrunarþyngdar takmörkuð um- fram það sem áður gilti og skerðingar auknar frá því sem áður var til hjúkr- unarheimila sem eru með óbreytta hjúkrunarþyngd. Þriðja árið í röð lækka greiðslur að raunvirði til þeirra hjúkrunarheimila sem eru með íbúa með óbreyttri hjúkrunarþyngd. Á meðan aðrar heilbrigðisstofnanir hafa fengið aukið rekstrarfé undan- farin ár í fjárlögum er rekstrarfé hjúkrunarheimila skorið niður.“ Morgunblaðið/Golli Hjúkrunarheimili Nýi þjónustusamningurinn er gerður við 43 heimili og kemur í stað rammasamnings frá 2016. Nauðbeygð að semja við Sjúkratryggingar  Hjúkrunarheimilin óánægð með nýjan þjónustusamning Eybjörg Hauksdóttir Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Gunnlaugur A. Júlíusson hefur til- kynnt Borgarbyggð að hann muni höfða dómsmál á hendur sveitarfé- laginu vegna uppgjörs á óteknu or- lofi og launum samkvæmt ráðning- arsamningi. Hann mun einnig krefjast bóta vegna uppsagnar sinnar sem hann telur að ekki hafi verið staðið að með löglegum hætti. Gunnlaugur hafði starfað sem sveitarstjóri Borgarbyggðar frá árinu 2016, var endurráðinn eftir kosningar. Honum var sagt upp störfum 12. nóvember sl. vegna þess að sveitarstjórn og Gunnlaugur hefðu „mismunandi sýn á stjórnun sveitarfélagsins“, eins og það var orðað í tilkynningu frá Borgarbyggð og endurtekið í bókun þegar upp- sögnin var staðfest á formlegum fundi sveitarstjórnar tveimur dögum síðar. Í bókun sveitarstjórnarfundar- ins kom fram að uppsögnin hefði ver- ið ákveðin samhljóða á óformlegum fundi sveitarstjórnar 12. nóvember. Borgarbyggð hafnar kröfum Gunnlaugur kveðst eiga inni einn og hálfan mánuð í óteknu orlofi, að minnsta kosti. Hann hefur krafist þess að fá það uppgert ásamt hækk- un launa samkvæmt launaviðmiðun í ráðningarsamningi. Jafnframt hefur hann krafist bóta vegna þess hvernig staðið var að uppsögninni. Honum var gert að skila lyklum og yfirgefa ráðhúsið strax, tveimur dögum áður en uppsögn hans var staðfest með formlegum hætti. „Það er alveg skýrt í 56. grein sveitarstjórnarlaga að sveitarstjórn er ein bær um að taka ákvarðanir tengdar ráðningar- sambandi við sveitarstjóra. Slíkar ákvarðanir verða ekki teknar á óformlegum fundi. Þessu til viðbótar brýtur uppsögnin í bága við kjara- samning þann sem gildir um réttindi mín í starfi,“ segir Gunnlaugur. Kröfum hans var hafnað í bréfi sem lögmaður Borgarbyggðar skrif- aði lögmanni Gunnlaugs í vikunni. Fram kemur sú afstaða að sveitar- stjóri sé pólitískur trúnaðarmaður sveitarstjórnar og sveitarstjórn því heimilt að segja honum upp störfum í samræmi við ráðningarsamning ef sá trúnaður er ekki fyrir hendi. Þetta eigi við hvort sem sveitarstjóri er kjörinn fulltrúi eða ekki. „Hagsmunir umbjóðanda þíns voru tryggðir með ríflegum bið- launarétti samkvæmt ráðningar- samningi. Verður sá biðlaunaréttur að sjálfsögðu virtur. Allri frekari greiðsluskyldu er hafnað,“ segir í bréfi lögmanns Borgarbyggðar en Gunnlaugur hefur biðlaun í sex mán- uði. Gunnlaugur segist hafa átt inni ótekið orlof þegar hann lét af starfi sveitarstjóra á Raufarhöfn fyrir rúmum tuttugu árum. Hann hafi ekki getað tekið það vegna anna. Hann hafi neyðst til að fara með mál- ið fyrir dómstóla og unnið það á svo sannfærandi hátt að sveitarstjórn hafi ekki talið grundvöll til að áfrýja. Hann segir að orlofsmálið hjá Borgarbyggð sé um margt líkt. Hann hafi verið í miklum önnum við að halda stjórnsýslunni gangandi og þurft með samstarfsfólki sínu að leysa erfið mál. Hann hafi ekki getað tekið sumarfrí sitt á meðan. Segir Gunnlaugur að fyrst hann þurfi að fara í mál út af orlofinu hafi verið ákveðið að taka fleiri atriði með. Fer í dómsmál við Borgarbyggð  Fyrrverandi sveitarstjóri krefst orlofs og bóta fyrir ólögmæta uppsögn Gunnlaugur A. Júlíusson Ljósmynd/www.mats.is Úr lofti Borgarnes er langstærsti byggðakjarninn í Borgarbyggð. Sveitarstjóri » Gunnlaugur A. Júlíusson hafði starfað sem sveitarstjóri Borgarbyggðar í þrjú og hálft ár þegar honum var sagt upp störfum í nóvember sl. » Unnið er að ráðningu nýs sveitarstjóra. Spáð var vonsku- veðri í morgun og gul viðvörun gildir fyrir sunn- an- og vestanvert landið, Norður- land vestra og hálendið. Við Faxaflóa má gera ráð fyrir hvassvirði og stormi, að vind- styrkur verði 18-23 m/s. Víða verð- ur éljagangur með skafrenningi og lélegu skyggni svo vegir gætu lokast og samgöngur farið úr skorðum. Sérstaklega gætu ferða- lög um fjallvegi orðið varasöm ef þeim verður þá ekki lokað. Vegna veðurspár var ákveðið hjá Icelandair að aflýsa alls 24 ferðum til og frá Evrópu í dag – og seinka öðrum. Þá var brottförum í Banda- ríkjaflugi síðdegis í gær hnikað til vegna aðstæðna. Vond veðurspá og flugi er aflýst Ísafjörður Vet- urinn er grimmur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.