Morgunblaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell keramik hitarar
Verð kr. 13.940
Verð kr. 3.970
Verð kr. 6.770
Fæst svartur eða hvítur
Fæst rauður eða hvíturAKRÝLSTEINN
•Viðhaldsfrítt efni með mikla endingu
og endalausa möguleika í hönnun
•Sérsmíðum eftir máli
•Margir litir í boði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Eva leysti Loga Bergmann af í Síð-
degisþættinum og það er ljóst að út-
varpið er vettvangur sem hún á
heima á. Þetta verður ekki í síðasta
skipti sem hlustendur K100 fá að
heyra í henni.
Það hefur verið nóg um að vera
hjá Evu upp á síðkastið. Hún er vin-
sæll veislustjóri en hennar aðalstarf
er að reka við hlið móður sinnar
fjölskyldufyrirtækið Ísblóm við
Háaleitisbraut, rótgróin blómabúð
sem opin er alla daga og því nóg að
gera þar. Hún var einnig að ljúka
við upptökur á nýjum sjónvarps-
þáttum sem heita Mannlíf og eru
unnir í samstarfi við samnefnt tíma-
rit en þættirnir fara í loftið á Sjón-
varpi Símans með hækkandi sól.
Það hafði lengi verið draumur hjá
Evu að starfa í sjónvarpi og hún var
í skýjunum með útkomuna þegar
tökum lauk á dögunum. Þættirnir
eru framleiddir af Sagafilm en það
var reynsluboltinn Þór Freysson
sem hafði yfirumsjón með ferlinu.
Þannig að þessi hæfileikaríka
kona er ekki bara flott á samfélags-
miðlum og uppi á sviði, heldur
blómstrar hún í fjölmiðlunum líka.
Í beinni Eva og Siggi Gunnars í
stúdíói K100 í vikunni.
Ruza er rosaleg
Eva Ruza Miljevic, sem slegið hefur í gegn á
samfélagsmiðlum og síðan sem skemmtikraft-
ur, stimplaði sig af krafti inn á K100 í vikunni.
Esjan Eva ásamt töku-
liðinu á toppi Esju.
Kristín Þórhalla Þórisdóttir sem
alltaf er kölluð Kidda Rokk, fram-
leiðandi hjá Sagafilm, ræddi um
þættina við Síðdegisþáttinn á
K100. „Við erum búin að vera að
þróa þetta í mjög langan tíma. Í
þessum þáttum erum við að tala
um umhverfismál og hlýnun jarð-
ar og sögusviðið er Grænland,“
segir Kidda sem talar um að þetta
sé mikil spennusaga þar sem póli-
tísk valdaöfl takast á. Það er
þekkt sænsk leikkona sem mun
fara með aðalhlutverkið í þátt-
unum en hún átti hugmynda að
þeim ásamt sænska framleiðand-
anum Sören Stærmöse.
Þættirnir eiga að gerast á
Grænlandi en voru að mestu
teknir upp hér á Íslandi. „Það er
erfitt að fara til Grænlands og
taka upp þar,“ segir Kidda og
segir að þau hafi búið til græn-
lenskan veruleika hér á landi.
Handrit þáttanna er skrifað af ís-
lenskum höfundum, þeim Birki
Blæ Ingólfssyni, Jónasi Margeiri
Ingólfssyni og Jóhanni Ævari
Grímssyni. Auk þess er einn af
leikstjórum þáttanna, Guðjón
Jónsson, íslenskur.
Þættirnir hefja göngu sína,
eins og áður segir, á RÚV í febr-
úar. Þú getur hlustað á skemmti-
legt viðtal við Kiddu Rokk á
k100.is.
Spenna Sögusviðið er Grænlænd en þættirnir voru teknir að mestu upp á Íslandi, vegna erfiðra aðstæðna á Grænlandi.
Hlýnun jarðar í
spennusagnastíl
RÚV hefur sýningar á nýrri sænsk/íslenskri spennuþáttaröð í febrúar.
Þáttaröðin heitir Thin Ice en þættirnir eru framleiddir af Saga Film og einu
stærsta framleiðslufyrirtæki Svíþjóðar, Yellow Bird. Sögusviðið er Grænland.
Stórleikkona Lena Endre leikur
aðalhlutverk í þáttunum.