Morgunblaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020 Sími 552 2018 info@tasport.is Sjá allar okkar ferðir ogmeiri upplýsingar á 1.-5. október tasport.is Elton John í Barcelona Innifalið: Flug, skattar og gjöld. 20 kg innrituð taska og 10 kg handfarangur. Gisting á 4* hóteli meðmorgunmat í 4 nætur.Miði á Elton John tónleikana 2. október. Rúta á tónleikana og til baka. Rúta til og frá flugvelli í Barcelona. Íslensk fararstjórn. Frekari upplýsingar í síma 552 2018 eða info@tasport.is Verð frá 156.800 Elton John er þessa stundina á ferð og flugi út um allan heimmeð Farewell YellowBrick Road tourinn. Þetta er síðasta tónleikaferðalagið hjá Elton ogmá búast við að nú verði öllu tjaldað til. Hann verðu í Palau Sant Jordi tónleikahöllinni í Barcelona. r Ath. Takmarkaðurfjöldi sæta í boði Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Landhelgisdeilurnar við Breta eru mörgum í fersku minni, en Íslend- ingar færðu landhelgina út í tólf mílur 1958, 50 mílur 1972 og í 200 mílur 1975. Í öll skiptin mótmæltu Bretar harðlega og sendu dráttar- báta og herskip á Íslandsmið til að aðstoða og vernda bresku togar- ana. Óðinn, sem nú er 60 ára, tók þátt í fyrrnefndum þremur þorska- stríðum og lenti tíu sinnum í árekstrum við breskar freigátur, dráttarbáta og togara. Varðskipin beittu meðal annars togvíraklippum frá haustinu 1972 en með þeim voru botnvörpur klipptar aftan úr breskum tog- urum með tilheyrandi tilkostnaði og erfiðleikum fyrir útgerðir. Frá september 1972 fram á mitt ár 1976 tókst íslensku varðskipunum að beita þeim með árangursríkum hætti 130 sinnum gegn landhelgis- brjótum. Óðinn lagði sitt af mörk- um í þessum átökum og klippti aft- an úr 30 erlendum togurum. Dró mörg skip að landi Óðinn reyndist sérlega vel sem björgunarskip og fyrir tveimur ár- um var rifjað upp í samantekt í 200 mílum Morgunblaðsins þegar skip- verjum á Óðni tókst að bjarga 18 skipverjum af togaranum Notts County frá Grimsby í mannskaða- veðri við Snæfjallaströnd 1968. Fleira má finna á ferilskrá varð- skipsins Óðins eins og lesa má um á heimasíðu Landhelgisgæslunnar. Hann dró alls tæplega 200 skip til lands eða í landvar vegna bilana, veiðarfæra í skrúfu eða eldsvoða um borð. Einnig dró hann flutn- inga- og fiskiskip fjórtán sinnum úr strandi. Þá bjargaði skipið áhöfnum strandaðra skipa þrisvar og tvisvar bjargaði það áhöfnum sökkvandi skipa. Óðinn sinnti almennu veiðieftir- liti alla tíð og beindist það bæði að íslenskum og erlendum skipum. Fylgjast þurfti með hvar var veitt og hvernig veiðarfærin voru. Einn- ig var Óðinn oft kallaður til þegar ófærð var í landi og erfiðleikar við fólks- og vöruflutninga, ekki síst í afskekktustu byggðum landsins. Óðinn var smíðaður í Álaborg í Danmörku árið 1959 og kom til landsins 27. janúar 1960. Skipið er 910 tonn að stærð, 63 m á lengd og 10 m á breidd. Fautagott skip Kristján Þ. Jónsson, fyrrverandi skipherra hjá Landhelgisgæslunni, segir í samtali við Morgunblaðið, að Óðinn hafi alla tíð reynst mjög vel. „Í rauninni var Óðinn fauta- gott skip, en það var reyndar mikið atriði hvernig menn hlóðu skipið. Ef allir tankar voru fullir af sjó eða olíu gat hann verið hundleiðinlegur á móti. Skipið varð betra sjóskip eftir að þyrlupallur og skýli voru sett á skipið. Þá var hann ekki með skiptiskrúfur eins og yngri skipin, en menn lærðu á það.“ Kristján var skráður á Óðin í 2.212 daga sem háseti, stýrimaður, yfirstýrimaður og skipherra. Í bók um skipið sem Víkin, Sjóminja- safnið í Reykjavík, gaf út á hálfrar aldar afmæli skipsins rifjar Krist- ján upp er hann, 24 ára gamall stýrimaður á Óðni, leiddi í fyrsta skipti flokk varðskipsmanna við töku á erlendu skipi. Þetta var í maí 1972 og mun skipið hafa verið það síðasta sem tekið var í 12 mílna landhelgi áður en fært var út í 50 mílur 1. september um haust- ið. Kristján segir að skondið atvik hafi komið upp þegar „fjórir korn- ungir guttar“ hafi farið um borð í togarann, hann, Hermann Sigurðs- son, stýrimaður og tveir hásetar á svipuðum aldri. „Þegar við komum inn í brú togarans talaði breski skipstjórinn í VHF-talstöð og til- kynnti félaga sínum á öðrum tog- ara hvað væri um að vera og orðaði það svona: „I have been arrested by bunch of kids with revolver,“ segir í frásögninni í bókinni. Skip- stjóranum hefur greinilega fundist sendisveitin í yngra lagi og með skammbyssu í farteskinu. Togar- inn hét Everton og var færður til hafnar á Seyðisfirði og dæmt í málinu þar. Í pönnukökur um helgar Þrjú sumur 1994-1996 fór Krist- ján sem skipherra með Óðin í Smuguna í Barentshafi. Veiðar á vegum íslenskra útgerða þar voru vægt sagt illa séðar af Norðmönn- um og oft skarst í odda milli Ís- lendinga og Norðmanna. „Fyrsta sumarið voru þetta bölvuð læti, en við reyndum að vera mátulega dipló og tortryggni norsku Strand- gæslunnar minnkaði smám saman. Það endaði með því að þeir leyfðu okkur að fara inn til Hammerfest til að taka olíu og versla,“ segir Kristján. Jafnvel hafi menn farið á milli skipa á sunnudögum til að fá sér pönnukökur hver hjá öðrum. Varðskipið veitti íslenska flotan- um margvíslega aðstoð og meðal annars var læknir um borð í Óðni og þar var sjúklingum sinnt. Óðinn í þremur þorskastríðum  Kom að mörgum erfiðum björgunum  Sendinefndin í yngra lagi  Til aðstoðar í Smugunni Morgunblaðið/Árni Sæberg Sextíu ár Óðinn kom við sögu í þremur landhelgisdeilum og kom að björgunarstörfum í meira en fjóra áratugi. Skipið er nýkomið úr slipp. Ljósmynd/Landhelgisgæslan Þorskastríð Óðinn eftir ásiglingu breska togarans Arctic Corsair 1976. Ljósmynd/Landhelgisgæslan Í návígi Óðinn og bresk freigáta, en tíu sinnum lenti varðskipið í árekstrum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.