Morgunblaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020 www.gilbert.is Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum við okkur í úrsmíði, hönnun og framleiðslu úra N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Kragelund stólar K 406 23. janúar 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 123.62 124.22 123.92 Sterlingspund 161.23 162.01 161.62 Kanadadalur 94.56 95.12 94.84 Dönsk króna 18.36 18.468 18.414 Norsk króna 13.808 13.89 13.849 Sænsk króna 12.994 13.07 13.032 Svissn. franki 127.79 128.51 128.15 Japanskt jen 1.1234 1.13 1.1267 SDR 170.45 171.47 170.96 Evra 137.22 137.98 137.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.7316 Hrávöruverð Gull 1556.25 ($/únsa) Ál 1806.0 ($/tonn) LME Hráolía 65.26 ($/fatið) Brent ● Íbúðaverð hækkaði um 3,5% að meðaltali á milli áranna 2018 og 2019, sem er minnsta hækkun sem orðið hefur á höfuðborgarsvæð- inu síðan árið 1997, ef frá eru talin árin 2009 og 2010 þeg- ar íbúðaverð lækk- aði milli ára. Þetta kemur fram í saman- tekt í Hagsjá Landsbankans. Í Hagsjánni segir einnig að allt síðastliðið ár hafi verðhækkanir verið mjög hóflegar á fasteignamarkaði. Að jafnaði hafi nafnverðshækkanir mælst um 0,2% milli mánaða. „Í Þjóðhagsspá okkar, sem kom út í október, spáðum við 3,6% hækkun íbúðaverðs á árinu, sem er í samræmi við það sem raun- gerðist. Raunverð íbúða stóð nánast í stað milli ára. Það hækkaði aðeins um 0,9% sem er einnig minnsta hækkun á raunverði milli ára síðan 1997.“ Í Hagsjánni segir að raunverð hafi þó lækkað árin 2001 og 2002 og eins 2008-2010. Þá kemur fram að markaðurinn hafi tekið við sér í október 2019 þegar 60% fleiri íbúðir seldust en í október 2018. Ekki er vitað hvað olli aukningunni. Minnsta hækkun íbúða- verðs síðan árið 1997 Íbúðir Verðhækk- anir voru hóflegar. STUTT BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Bankakerfið stóð á útlánabrems- unni á nýliðnu ári. Um það vitna ný- birtar tölur Seðlabankans um útlán bankanna, greint eftir mánuðum á árinu 2019. Þannig drógust jafnt út- lán til fyrirtækja og heimila saman. Þegar litið er til útlána með veði í íbúðarhúsnæði má sjá að samdrátturinn nam 5%. Árið 2018 námu ný útlán í þeim flokki, að frádregnum upp- og umfram- greiðslum, 134,9 milljörðum króna en á árinu 2019 námu þau 128,2 milljörðum króna. Athygli vekur að verðtryggð út- lán til heimilanna dragast skarpt saman milli ára, eða um tæp 20%. Í fyrra veittu bankarnir ný lán í þeim flokki fyrir 41,6 milljarða króna og nam samdrátturinn því 10 milljörð- um í krónum talið. Meiri samdráttur varð í verð- tryggðum útlánum með breytileg- um vöxtum, en þar nam samdrátt- urinn tæpum 24% milli ára. Í flokknum sem ber fasta vexti var samdrátturinn ríflega 9,5% og stóðu þau lán í 14,6 milljörðum þegar síð- astliðið ár var gert upp. Mest í breytilegu óverðtryggðu Mestu breytingarnar milli ára má lesa út úr óverðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum. Þau juk- ust um 144% milli ára. Námu þau 71,8 milljörðum króna á síðasta ári en höfðu aðeins verið 29,4 millj- arðar árið 2018. Á sama tíma varð gríðarlegur samdráttur í veitingu óverðtryggðra lána með föstum vöxtum. Fóru ný útlán í þeim flokki úr 53,9 milljörðum króna niður í 14,8 milljarða á síðasta ári. Sam- drátturinn í þeim lánaflokki varð auðmerkjanlegur í júní síðastliðnum en frá þeim tíma og út árið reynd- ust uppgreiðslur og umfram- greiðslur langtum meiri en ný út- lán. Námu upp- og umframgreiðsl- urnar 7 milljörðum á fyrrgreindu tímabili. Með sama hætti jókst mjög þung- inn í veitingu óverðtryggðra lána með breytilega vexti eftir því sem leið á árið. Á fyrstu sex mánuðum síðasta árs lánuðu bankarnir 21,5 milljarða í þeim flokki en á síðari hluta ársins fóru lánveitingarnar í 50,3 milljarða króna. Bankarnir lánuðu minna til íbúðakaupa 2019 en 2018  Óverðtryggð lán jukust um 4%  Mest aukning í lánum með breytilega vexti 71,8 29,4 14,8 53,9 27,0 35,4 14,616,2 Húsnæðislán heimila 12 9 6 3 0 -3 6 3 0 2018 2019 2018 2019 2018 2019 Með föstum vöxtum Með breytilegum vöxtum Með föstum vöxtum Með breytilegum vöxtum 2018 2019 Ný lán með veði í íbúð að frá dregnum uppgreiðslum 2018-2019 2018 2019 2018 2019 jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. Óverðtryggð lán Óverðtryggð lán alls Verðtryggð lán alls Milljarðar króna Milljarðar króna Milljarðar króna Milljarðar króna Verðtryggð lán Með föstum vöxtum Með breytilegum vöxtum Með föstum vöxtum Með breytilegum vöxtum Heimild: Seðlabanki Íslands Samtök atvinnulífsins sendu í gær frá sér harðorða yfirlýsingu vegna nýrra talna Seðlabankans um útlán bankakerfisins á síðasta ári. Þar kemur fram að mikill samdráttur hefur orðið í nýjum útlánum til fyr- irtækja og segja SA að hann nemi 60% milli áranna 2018 og 2019. Skv. tölum Seðlabankans námu ný útlán til atvinnufyrirtækja að frá- dregnum upp- og umfram- greiðslum 208,7 milljörðum króna árið 2018 en 92,1 milljarði króna á nýliðnu ári. Segja SA „stórtíðindi felast í nýjum tölum“, bankans og „umskiptin skýrast ekki eingöngu af efnahagslægðinni sem gengur yfir“. Til skýringa benda samtökin á að aðgangur að lánsfé hafi minnkað, þrátt fyrir 150 punkta lækkun stýrivaxta á síðasta ári. SA benda á að stjórntæki Seðla- bankans hafi ráðandi áhrif á út- lánagetu bankanna. Eiginfjárkröfur hafi verið hertar og að enn eigi að bæta þar í með hækkun sérstaks sveiflujöfnunarauka um 0,25 pró- sentur í næsta mánuði. Það leggist ofan á fyrri eiginfjárauka, banka- skatt og aðra sérskatta sem legg- ist þungt á rekstur bankanna. „Þessir þættir skekkja ekki að- eins samkeppnisstöðu banka á út- lánamarkaði heldur skerða einnig afkomu þeirra.“ Benda samtökin á að breytingar á útlánamarkaði bitni helst á litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem ekki eigi kost á því að fjármagna sig með öðrum hætti en þeim að leita til bank- anna. „Í ljósi þessarar þróunar hvetja Samtök atvinnulífsins Seðlabank- ann til þess að bregðast við þess- um aðstæðum með lækkun stýri- vaxta á næsta vaxtaákvörðunar- fundi, hinn 5. febrúar nk.“ Jafnframt skora SA á bankann að endurskoða áform um hækkun eig- infjárauka bankanna. Kalla eftir stýrivaxtalækkun MINNI AÐGANGUR AÐ LÁNSFÉ SKÝRIR SAMDRÁTT Í ÚTLÁNUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.