Morgunblaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 28
Morgunblaðið/Árni Sæberg Afmæli Hollvinir Óðins hittust um borð í gær og rifjuðu upp gamla tíma. Sigling er fyrirhuguð á mánudag. 60 ár eru frá því að skipið kom til landsins. Ljósmynd/Sjóminjasafnið-Roman Gerasymenko Glaðleg áhöfn Grunnskólakrakkar bregða á leik í Óðni. Yfir þúsund nemendur heimsækja skipið á hverjum vetri. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Hollvinir varðskipsins Óðins og fleiri fagna því þessa dagana að 27. janúar eru 60 ár frá því að skipið kom til landsins. Meðal annars verður skip- inu siglt fyrir eigin vélarafli á mánu- daginn, 27. janúar, „Hér um borð er mikið líf þessa dagana og vélarnar eiga eftir að mala eins og í gamla daga,“ sagði Guðmundur Hallvarðs- son, fyrrverandi alþingismaður og formaður Hollvinasamtaka Óðins, í samtali í vikunni. Ríkisstjórnin afhenti hollvina- samtökunum Óðin 2008 og frá sama tíma hefur skipið verið hluti af sýn- ingu Sjóminjasafnsins. Safnið er varðveisluaðili skipsins og sér um rekstur þar sem það liggur við Grandagarð. Hollvinirnir sjá hins vegar um ýmislegt viðhald. Á heima- síðu safnsins segir að Óðinn sé einn glæsilegasti sýningargripur safnsins. Samkvæmt upplýsingum frá safn- inu heimsóttu Óðin 39.284 íslenskir gestir og 13.245 erlendir gestir á tíma- bilinu frá 1. júlí 2014 til 20. janúar 2020. Þá eru allir meðtaldir t.d. skóla- hópar en 1.100-1.300 grunnskólabörn heimsækja skipið á hverjum vetri. Minjasafn um þorska- stríð og björgunarsögu „Árið 2002 blasti við að varðskipið Óðinn yrði selt úr landi þegar þjón- ustu þess hjá Landhelgisgæslunni lyki. Mörgum áhugamönnum um varðveislu sögufrægra og merkra skipa fannst ekki koma til greina að skip með slíka sögu yrði látið fara úr landi og glatast. Hollvinasamtökin voru stofnuð með það markmið að leiðarljósi að fá skipið til afhendingar og eignar og gera að minjasafni um þorskastríðin og björgunarsögu Landhelgisgæslunnar,“ segir á heimasíðu safnsins. Guðmundur segir að fyrir um fjór- um árum hafi tveir vélstjórar byrjað að huga að vélunum í Óðni. Smátt og smátt hafi fjölgað í hópnum og und- anfarið hafi átta vélstjórar, flestir á eftirlaunum, unnið í sjálfboðavinnu alla mánudaga í vélarrúmi skipsins. Sem dæmi megi nefna að skipt hafi verið um sjóloka og rör sem farin voru að tærast, auk þess sem dyttað hafi verið að ýmsu öðru. Óðinn var tekinn í slipp í haust þar sem skipið var málað og botnhreinsað, en ekki var talin þörf á öxuldrætti. „Staðan á skipinu er sú að það er í ótrúlega góðu standi miðað við ald- ur,“ segir Guðmundur. „Í haust var skrokkurinn þykktarmældur og hvergi virðist vera tæring. Nú erum við búnir að prufa vélarnar og á mánudag á að sigla. Ekki verður þó hætt á að sigla frá Óðinsbryggju þar sem ekki er skiptiskrúfa í skipinu. Það gæti haft í för með sér fjórar míl- ur áfram eða aftur á bak, sem gæti verið verra fyrir nærstadda báta eða gesti Kaffivagnsins. Þess í stað fáum við dráttarbát frá höfninni til að draga Óðin út á ytri höfnina og svo sjáum við til hvert verður farið.“ Tók togara í landhelgi í síðustu ferðinni Síðasta sjóferð Óðins í þágu Land- helgisgæslunnar var farin í júní 2006, en þá var stefnan tekin á Bretlands- eyjar í kurteisisheimsókn. Á leiðinni var ákveðið að sigla um svæði þar sem erlendir togarar voru grunaðir um að halda sig án leyfis og tilkynn- inga. Stóð Óðinn færeyskan togara að því að sigla inni í íslenskri efna- hagslögsögu án þess að tilkynna sig eða hafa veiðileyfi, var hann tekinn í landhelgi eins og talað var um áður fyrr, segir í frétt á heimasíðu Gæsl- unnar. Í gær hittust hollvinir Óðins í af- mæliskaffi um borð og fljótlega verð- ur hóað í öldungaráð Landhelgis- gæslunnar, fulltrúa stjórnvalda, Reykjavíkurborgar, Faxaflóahafna og aðra velunnara Óðins. Guðmundur segir að frá upphafi hafi hollvinirnir notið skilnings og aðstoðar ríkis og borgar. Eins og áður sagði er Guðmundur formaður hollvinasamtakanna, en samkvæmt lögskráningarbókum Óðins, starfaði hann í 158 daga sem háseti á Óðni 1963-64 áður en hann hóf nám í Stýrimannaskólanum. Sig- rún Magnúsdóttir, áður ráðherra og borgarfulltrúi, er varaformaður. Vélarnar eiga eftir að mala á ný  Hollvinir Óðins ætla að sigla skipinu fyrir eigin vélarafli  Glæsilegur sýningargripur í Víkinni Mörg handtök Hollvinirnir eiga mörg handtök um borð í Óðni. Á myndinni eru Guðmundur Hallvarðsson og Ingólfur Kristmundsson vélstjóri. 28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma  SJÁ SÍÐU 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.