Morgunblaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 59
DÆGRADVÖL 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020
„VANDAMÁLIÐ ER ÞAÐ AÐ „JAHÚ-
SKEIÐINU” FYLGJA ALLTAF MARGIR
MÁNUÐIR AF „RÓLEG NÚ, KJELLA!”.”
„FINNURÐU EITTHVAÐ NÚNA?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sjá hana hvert sem
þú lítur.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ER AÐ SPÁ Í AÐ
FÁ MÉR NÝJAN BÍL ÍSBÍLL?
SJÁÐU
RISA-
ÍSPINNANN
Á ÞAKINU!
SKIPBROTS-
MENN!
VELKOMNIR
TIL REGNBOGA-
EYJAR!
HÉR ERU ENGIN
SLAGSMÁL, RIFRILDI
EÐA ÓNÆRGÆTNI.
VIÐ LIFUM Í FRIÐI
OG SPEKT!
HELJAR!
VÁ! HLJÓMAR EINS OG VIÐ
HÖFUM DÁIÐ OG
FARIÐ TIL …
unum til að hittast og kynnast starfi
hvet annars og þar með að styrkja
norræna leikskóla. Þetta verkefni er
svolítið mitt barn og ég átti þátt í að
koma því af stað.“
Helstu áhugamál Kristlaugar eru
útivist, lestur, myndlist, ferðalög,
matreiðsla og golf. „Ég á síðan gam-
alt hús að hluta í Ólafsfirði og finnst
alltaf gaman að koma þangað.“
Fjölskylda
Kristlaug er tvígift, fyrrverandi
eiginmaður hennar er Þröstur
Emilsson, f. 5.9. 1963, og fyrrver-
andi eiginmaður hennar er Hjörleif-
ur Hjálmarsson, f. 4.6. 1961.
Börn Kristlaugar eru 1) Gerður
Rogers, f. 16.6. 1978, búsett í Brook-
field í Connecticut, Bandaríkjunum.
Maki er Christopher James Rogers
og dóttir þeirra er Maia Katrín
Rogers, f. 29.2. 2008; 2) Katrín
Björg Andersen, f. 15.8. 1986, prent-
smiður, búsett í Mosfellsbæ. Maki er
Karl Ágústsson kennari og sonur er
Óðinn Andri Andersen, f. 30.4. 2005.
Bræður Kristlaugar eru Sigurður
Svavarsson, f. 26.3. 1954, vélfræð-
ingur, búsettur í Noregi; Gunnar
Þór Svavarsson, f. 22.7. 1956,
bakarameistari, búsettur í Reykja-
vík, og Ari Svavarsson, f. 22.4. 1964,
myndlistarmaður, búsettur á
Laugarvatni.
Foreldrar Kristlaugar voru hjón-
in Gerður Sigurðardóttir, f. 11.9.
1929, d. 18.8. 1999, handavinnukenn-
ari og kenndi við grunnskóla á
Akureyri, og Svavar Guðni Gunn-
arsson, f. 10.7. 1931, d. 12.3. 2013,
bifvélavirkjameistari og rafvirkja-
meistari, síðar kennari við Verk-
menntaskólann á Akureyri. Hann
var listmálari og stofnaði Listhúsið í
Ólafsfirði.
Kristlaug Þórhildur
Svavarsdóttir
Guðný Þórdís Magnúsdóttir
húsfreyja á Fáskrúðsfi rði
Indriði Finnbogason
sjómaður og verkamaður
á Fáskrúðsfi rði
Finnbogi Jóhann Indriðason
veitingamaður og verkamaður á Fáskrúðsfi rði
Svavar Guðni Gunnarsson
kennari á Akureyri, kjörforeldrar
hans voru Gunnar Eiríksson og
Þórhildur Sigurðardóttir Kjerúlf
Björg Lilja Jónsdóttir
húsfreyja á Fáskrúðsfi rði
Þórunn Sigríður Jóhannesdóttir
húsfreyja í Fljótum, síðar á
Sauðárkróki
Jón Þorbergur Jónsson
bóndi í Fljótum, fórst
með þilskipinu Maríönnu
Guðfi nna Björnsdóttir
húsfreyja í Ólafsfi rði
Baldvin Ólafur Baldvinsson
bóndi í Ólafsfi rði
Sigurður Gunnlaugur Baldvinsson
útgerðarmaður í Ólafsfi rði
Kristlaug Kristjánsdóttir
húsfreyja í Ólafsfi rði
Ólöf Sesselja Kristjánsdóttir
húsfreyja á Nípá í Köldukinn
Jón Kristján Jónsson
bóndi á Nípá í Köldukinn, síðar
bóndi í N-Dakota, BNA
Úr frændgarði Kristlaugar Svavarsdóttur
Gerður Sigurðardóttir
kennari á Akureyri
Bjarni Sigtryggsson skrifar áBoðnarmjöð að bústaður um-
talaðra hjóna í Bretlandi sé sagður
vera „cottage“.
Karlsson úr koti er flúinn,
kannski er sælan nú búin.
Hann brátt þarf að vinna
og barni að sinna,
auði og aðalstign rúinn.
Gunnar J. Straumland yrkir og
kallar „Ráðherraheyrn“:
Sáttur ég sit hér á þingi
því samræðan öll fer í hringi.
Ég hlusta á þá
sem hlusta mig á,
sagði hann Sigurður Ingi.
Þeim sem mér þýlyndir hrósa
ég þakka, ef flokkinn minn kjósa.
En sum þó mig gruna
um græsku og muna.
Úti þau öll mega frjósa.
Um hálendið hættum að kýta
því hægt er það ennþá að nýta.
Ég heyri nú raddir
svo helst verða gladdir
allir sem afréttinn bíta.
Einar Ól. Sveinsson segir í grein
sinni „Undan og ofan af um íslensk-
ar bókmenntir síðari alda“: „Þegar
Árni Böðvarsson kvað:
„Tiggjar kanna tjöldin náðu
tóku Móins ljósa beð,
gersemanna gnóttir þáðu,
greipar snjóinn líka með,“
þá skildu það bæði karlar og
kerlingar, að tiggjar voru kon-
ungar, Móins beður var gull og
greipar snjór þýddi silfur.“
Einar Ólafur segir, að Sveinbjörn
Egilsson hafi haft miklar mætur á
rímnaháttum alþýðunnar. – „Og
hann kveður vísu eins og þessa –
það er morgunn, og hann er að bíða
eftir að birti (Sveinbjörn fór á fætur
klukkan 5):
Hugurinn líður hér og þar,
hvikull eftir vanda;
ég er að bíða birtunnar,
búinn upp að standa.“
Fnjóskur orti:
Braga oft ég bið um lið,
brenndur harmi sárum,
bara til að banda við
bölsýni og tárum.
Sigmundur Benediktsson afsak-
aði á netinu innsláttarvillu. –
„Svona átti hún að vera eins og
flestir hafa sjálfsagt séð“, skrifar
hann:
Ferskeytlan jafnt forn og ný
flétta kærra þátta,
hún er fersk og fáguð í
fjölda bragarhátta.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af karlssyni og afréttinni