Morgunblaðið - 23.01.2020, Side 27
FRÉTTIR 27Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020
Óðals ostaídýfa
sem talað verður um
Tilvalinn í ostaídýfuna um helgina
gottimatinn.is
Nýtt
Theodór Kr. Þórðarson
Borgarnesi
Einn morguninn í sl. viku vaknaði
fréttaritari Morgunblaðsins við að
höggfleygur hjólaskóflu var byrj-
aður að berja klöppina framan við
húsið hans, sem stendur fremst á
Miðnestá neðst í Borgarnesi, en hús
sitt nefnir hann Ystu Nöf. Mundi
hann þá um leið að búið var að vara
hann við þessum framkvæmdum. En
tilfinningin sem hann fékk var að
hann væri núna að færast enn nær
brúninni.
Að sögn starfsmanna Borgar-
byggðar felst aðgerðin í því að
breikka göngustíginn og gera hann
akfæran fyrir slökkvibíl og aðra
stærri bíla sem þurfa að geta farið
inn í Englendingavíkina (Kaup-
félagsfjöruna) sjávarmegin ef þörf
krefur. En ekki stendur til að opna
þessa leið fyrir almennri bílaumferð.
Fyrir alla innfædda sem og marga
yngri Borgnesinga er sárt að horfa
upp á að nagað sé úr þeim holtum og
hæðum sem einkenna bæjarstæðið,
ég tala nú ekki um að fyllt sé frekar
upp í víkur og voga með brotnu
grjóti. En flestir gera sér jú grein
fyrir því að við lifum að miklu leyti í
manngerðu umhverfi þar sem þarf
að uppfylla kröfur um aukið öryggi
og Evrópustaðla.
Beint fyrir neðan þetta rask, í
gömlu hlöðnu steinbryggjunni, er að
finna steinkarlinn, sem minnir suma
á Rocky Balboa hans Sylvester Stal-
lone og aðra á Robert Mitchum.
Steinkarlinn fylgist áhyggjufullur
með framkvæmdunum og vonar ef-
laust að yfir hann komi ekki ný-
brotsið grjót sem skemmi þá á hon-
um dýrmætt andlitið.
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Akfær
göngustíg-
ur lagður í
Borgarnesi
Framkvæmdir Vinnuvél notuð til að breikka göngustíg út í Englendingavík.
Andlit Steingerður Rocky eða
Robert Mitchum, það er spurningin.
Þjófnaður úr verslun í Reykja-
nesbæ hefur verið kærður til lög-
reglunnar á Suðurnesjum. Eftir-
litsmyndavélar í versluninni sýna
hvar karlmaður kom inn með inn-
kaupakerru, fyllti hana af varningi,
gekk að sjálfsafgreiðslukassa, tók
þar burðarpoka sem hann lagði of-
an á vörurnar í kerrunni og gekk
svo út með hana án þess að borga.
Meðal þess hann tók voru 19
pakkar af kjúklingabringum og
kassi af Pepsi Max, svo og mikið
magn af matvælum og hreinlæt-
isvörum, að því er fram kemur í
dagbók lögreglunnar á Suðurnesj-
um.
Maðurinn sem grunaður er hefur
komið við sögu á höfuðborgarsvæð-
inu vegna þjófnaðarmála.
Stal nítján pokum af
kjúklingabringum
Morgunblaðið/Golli
Karlmaður hefur verið ákærður fyr-
ir kynferðisbrot gegn andlega og lík-
amlega fötluðum karlmanni í þrí-
gang árið 2016.
Í ákæru málsins er sakborning-
urinn sagður hafa notfært sér fötlun
mannsins til að fróa honum án þess
að hann gæti spornað við háttsem-
inni eða skilið þýðingu hennar. Er
hann því talinn hafa notfært sér
freklega þá aðstöðu sína að mað-
urinn hafi verið háður sér.
Málið var þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær en auk þess sem
saksóknari fer fram á að sakborn-
ingurinn verði dæmdur til refsingar.
Þá fer fórnarlambið fram á að fá
greiddar miskabætur upp á 2,5 millj-
ónir króna.
Ákærður
fyrir brot
gegn fötluð-
um manni