Morgunblaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2020 um áður en var nýfluttur á Flateyri haustið 1995, rétt áður en snjóflóðið mannskæða féll þar. Hann keypti svo húsið á Suðureyri 2004 og bjó þar þá um tíma en flutti svo annað en hélt húsinu. Guðmundur flutti aftur á Suðureyri á liðnu sumri. er hér utan við þorpið á leiðinni inn í Staðardal. Það var greinilegt að ald- an hafði farið þar upp fyrir veg,“ sagði Guðmundur. Hann sagði að skiljanlega væri uggur í mörgum eft- ir þessa lífsreynslu Guðmundur bjó á Suðureyri á ár- Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Flóðbylgjan skall á húsinu með lát- um. Það kom mikill dynkur, þetta var gífurlegt högg,“ sagði Guðmundur Ágústsson sem býr á Aðalgötu 49 á Suðureyri ásamt Margréti Sigurðar- dóttur. Þau voru bæði heima og á fót- um þegar flóðalda skall á húsinu upp úr klukkan 23.00 hinn 14. janúar. „Allt í einu var eins og húsið væri lamið að utan. Þetta var dálítið óþægilegt.“ Húsið er tveggja hæða steinhús og klætt með garðastáli. Það stendur ut- arlega í þorpinu á Suðureyri beint á móti þar sem snjóflóð féll úr Norður- eyrargili í sjó fram hinum megin Súg- andafjarðar. Framan við húsið er Að- algatan, svo smá grasbali og þar fyrir neðan er lágur grjótgarður meðfram sjónum á löngum kafla. Snjóruðn- ingur af götunni hafði safnast upp við grjótgarðinn. Aldan skaust þar yfir og alveg upp að húsinu. Þegar flóð- bylgjan hjaðnaði var gatan full af sjó og dýpkaði hann eftir því sem innar dró í þorpinu. Þar var vatnið hné- djúpt og jafnvel dýpra um tíma. Frussaðist upp á gluggana Guðmundur sagði að sjórinn hefði frussast upp á gluggana á efri hæð- inni. Lítið eitt af sjó komst inn í and- dyri á neðri hæðinni. Bíll stóð uppi á gangstétt framan við húsið og aftur- endinn á honum kastaðist til um tvo metra. Stigbretti þeim megin sem flóðið kom laskaðist og festingar slitnuðu. „Ég hefði ekki viljað vera úti á götu þegar flóðbylgjan kom. Fullorðinn maður hefði kannski staðið þetta af sér, en ekki barn,“ sagði Guðmundur. Sem betur fer var enginn á ferli enda leiðindaveður og orðið áliðið. Við næsta hús innan við hús Guðmundar stóð fólksbíll fastur í skafli. Hann dældaðist aðeins við höggið frá flóð- bylgjunni, enda gat hann ekki hagg- ast. Guðmundur sagði að bæjar- starfsmenn hefðu verið fljótir að koma á vélskóflu og ryðja sjónum leiðir. Aldan upp fyrir veg „Ég keyrði nýlega út eftir Aðalgöt- unni og alveg að brimbrjótnum sem Gífurlegt högg kom á húsið þegar flóðaldan skall á því  Íbúar við Aðalgötu á Suðureyri fundu greinilega fyrir flóðbylgjunni Morgunblaðið/RAX Suðureyri Guðmundur Ágústsson og Margrét Sigurðardóttir búa við Aðalgötu á Suðureyri og voru á meðal þeirra íbúa sem fengu að kenna á flóðbylgjunni sem myndaðist eftir að stórt snjóflóð féll handan Súgandafjarðar. Borgarstjórn felldi á fundi sínum í fyrradag tillögu borgarfulltrúa Sósí- alistaflokks Íslands um að gerð yrði úttekt á afleiðingum þess ef stærstu fyrirtækin í Reykjavík, sem fengið hefðu úthlutað fiskikvóta í gegnum skip sín, flyttu starfsemina úr sveitarfélaginu. Tillagan var felld með 12 atkvæð- um borgarfulltrúa meirihlutaflokk- anna gegn atkvæðum borgarfull- trúa Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Miðflokks- ins sátu hjá við afgreiðslu málsins. Borgarfulltrúar meirihlutans bókuðu að fjölbreytileiki í störfum í Reykjavík gerði það að verkum að borgin væri ekki jafn viðkvæm fyrir tilfærslum fiskveiðiheimilda og mörg önnur sveitarfélög. „Þrátt fyr- ir að um 10,6% fiskveiðiheimilda sé úthlutað til skipa sem eiga hér heimahöfn eru einungis um 2% at- vinnutekna borgarbúa sem stafa af fiskveiðum og -vinnslu. Því er það ekki forgangsmál að rannsaka þessa kerfislegu áhættu,“ sagði m.a. í bókun meirihlutans. Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, bókaði að henni þætti miður að til- lagan hefði ekki hlotið brautar- gengi. Úttektin yrði framkvæmd með það að leiðarljósi að kanna áhrif þess á atvinnuöryggi þeirra sem störfuðu hjá umræddum sjávarút- vegsfyrirtækjum og í fyrirtækjum sem þjónustuðu þau. Reynslan hefði sýnt að þessar breytingar gætu átt sér stað fyrirvaralaust og þá væri mikilvægt að borgin væri tilbúin og ræddi hvernig skyldi bregðast við ef slíkt gerðist. sisi@mbl.is Borgarstjórnin vildi ekki úttekt  Ekki forgangsmál að rannsaka áhættu af brotthvarfi fiskveiðikvóta Morgunblaðið/Ernir Fuglar í görðum verða taldir helgina 24.-27. janúar. Þeir sem hafa áhuga á að telja gesti í görðum sínum velja stund og stað og fylgjast með garð- inum í einn klukkutíma einhvern fyrrnefndra daga. Oft er gott að velja klukkutíma í ljósaskiptunum á morgnana, eða fyrir rökkur þegar fuglarnir eru að ná sér í forða fyrir kalda vetrarnóttina, segir í frétt frá Fuglavernd. Þátttakendur skrá hjá sér hvaða fuglar koma í garðinn og skrá mesta fjölda af hverri tegund á meðan at- hugunin stendur yfir. Talningin mið- ar við þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir. Að lokinni athugun skal skrá niðurstöður raf- rænt á vefnum www.fuglavernd.is, þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar. Telja fugla í görðum Morgunblaðið/Ómar Gestur Margir gefa smáfuglunum reglulega við heimili sín. Flugeldi var kastað inn um opinn glugga íbúðarhúsnæðis á Suður- nesjum um síðustu helgi, þar sem hann sprakk. Minni háttar skemmd- ir urðu af þessu athæfi. Lögreglan á Suðurnesjum hafði uppi á þeim sem þarna voru að verki og reyndust það vera nokkur ungmenni. Þá var tilkynnt um skothvelli við Garðskagavita. Í því tilviki reyndist vera um flugeldaskot að ræða. Lög- regla bendir á að öll meðferð flug- elda sé óheimil nema á tímabilinu 28. desember til 6. janúar að báðum dögum meðtöldum. Flugeldi kastað inn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.