Morgunblaðið - 28.03.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2020
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Hreint upplausnarástand er nú uppi í
stjórn SÁÁ, Samtaka áhugafólks um
áfengis- og vímuefnavandann. Þrír
stjórnarmenn af níu sögðu sig úr
stjórninni í gær og fleiri íhuga stöðu
sína. Tengjast hræringarnar þeirri
ákvörðun Valgerðar Á. Reynisdóttur,
yfirlæknis og forstjóra Vogs, að segja
upp störfum fyrir samtökin. Ákvörð-
un sína tilkynnti hún framkvæmda-
stjórn SÁÁ skriflega í kjölfar stjórn-
arfundar þar sem samþykkt var
tillaga Arnþórs Jónssonar, formanns
SÁÁ, um að segja upp átta starfs-
mönnum samtakanna. Í bréfinu segir
Valgerður að þar sé um „lykilstarfs-
menn á meðferðarsviði“ að ræða og
að ákvörðunin hafi verið tekin „án
faglegrar umræðu eða faglegs álits á
afleiðingum þeirra uppsagna sérstak-
lega,“ eins og það er orðað í bréfinu.
Takast á við aðsteðjandi vanda
Ákvörðunin um uppsagnirnar
tengist þeim aðsteðjandi rekstrar-
vanda SÁÁ sem framkvæmdastjórn-
in hefur haft til umfjöllunar nú í mars-
einstaklingar allir störfum sem ekki
falla beint undir þjónustusamning við
heilbrigðisráðherra og er greitt fyrir
þau með sjálfsaflafé SÁÁ.
Ákvörðunina tók formaðurinn í
trássi við vilja yfirlæknisins. Segir
hún í uppsagnarbréfi sínu að hún sé
sammála þeirri skoðun stjórnar að
bregðast þurfi skjótt við yfirvofandi
tekjutapi sem leiða muni að öllu
óbreyttu til verulegra breytinga á
rekstri stofnunarinnar. „Hins vegar
get ég ekki fellt mig við að hvorki
stjórnendur né samstarfsfólk á með-
ferðarsviði hafi verið gefið tækifæri á
að setja fram sínar tillögur né að setja
fram sitt faglega mat á þeim tillögum
sem bornar voru undir stjórn [...].“
Samhliða uppsögnunum átta var
einnig ákveðið að færa starfshlutfall
starfsmanna SÁÁ niður um 20%.
Ekki mun hafa verið ágreiningur um
þá ráðstöfun á fundi framkvæmda-
stjórnar eða af hálfu yfirlæknis.
Þrír stjórnarmenn ganga út
Uppsögn Valgerðar hafði strax
mikil áhrif á framkvæmdastjórnina
og í gærmorgun tilkynnti Jón H. B.
Snorrason saksóknari, sem setið hef-
ur í stjórninni um langt árabil, að
hann hefði sagt sig frá trúnaðarstörf-
um á vettvangi SÁÁ. Í samtali við
mbl.is í gærmorgun vildi hann ekki
tjá sig um ástæður afsagnarinnar.
Heimildir Morgunblaðsins herma
hins vegar að óánægja með fram-
komu formanns samstakanna í garð
yfirlæknisins sé ástæðan fyrir
ákvörðun Jóns.
Í lok dags í gær barst formanni og
framkvæmdastjórn einnig erindi frá
Einari Hermannssyni og Heklu Jós-
epsdóttur þar sem þau sögðu sig
einnig úr stjórninni. Eru þá sex
fulltrúar eftir í framkvæmdastjórn-
inni að formanninum meðtöldum.
Heimildir Morgunblaðsins herma að
fleiri stjórnarmenn íhugi nú stöðu
sína vegna þróunar mála.
Staðfest er að endurtekið var kall-
að eftir því í gær að Arnþór boðaði þá
þegar til stjórnarfundar til þess að
ræða uppsögn yfirlæknisins. Ítrekað-
ar tilraunir framkvæmdastjórnar-
manna til þess að ná sambandi við for-
mann báru þó ekki árangur og enn er
óljóst hvenær framkvæmdastjórnin
mun ræða málið næst. Hins vegar er
ljóst að fundurinn verður fámennari
en tíðkast hefur, enda þriðjungur
stjórnarinnar horfinn á braut á innan
við sólarhring.
Sálfræðingarnir út úr húsi
Í gær barst framkvæmdastjórn
SÁÁ einnig ályktun frá þeim sex sál-
fræðingum og lýðheilsufræðingi sem
sagt var upp störfum. Í þeim hópi er
m.a. dr. Ingunn Hansdóttir, yfirsál-
fræðingur SÁÁ. Í erindinu er van-
trausti lýst yfir á framkvæmdastjórn
samtakanna. Þar segir jafnframt að
þau rök sem borin hafi verið fram við
uppsagnirnar gefi þeim tilefni til að
ætla að þeir tveir sálfræðingar sem
starfi hjá SÁÁ en nú eru í fæðingar-
orlofi muni einnig fá reisupassann
Upplausnarástand
á vettvangi SÁÁ
mánuði. Gera áætlanir hennar ráð
fyrir því að mikill samdráttur verði í
sjálfsaflafé SÁÁ vegna útbreiðslu
kórónuveirunnar og þeirra sam-
félagslegu áhrifa sem hún muni hafa.
Meðal annars er í uppnámi Álfasalan,
sem hefur verið umfangsmesta fjár-
öflunarverkefni samtakanna í rúma
þrjá áratugi. Gera áætlanir stjórnar-
innar ráð fyrir að tekjusamdrátturinn
vegna kórónuveirunnar nemi um 150
milljónum króna, en það jafngildir
10% af heildarrekstrarkostnaði Vogs,
Víkur og göngudeilda.
Þegar formaður SÁÁ hafði fengið
tillögu sína samþykkta á símafundi
stjórnar var átta starfsmönnum sagt
upp störfum, þar af sex sálfræðingum
og lýðheilsufræðingi. Gegna þessir
Arnþór
Jónsson
Valgerður Á.
Reynisdóttir
Hekla
Jósepsdóttir
Jón H. B.
Hermannson
Einar
Snorrason
Þórarinn
Tyrfingsson
Þrjú hætta í framkvæmdastjórn vegna óánægju með framgöngu formannsins
Sjö fráfarandi starfsmenn lýsa vantrausti á framkvæmdastjórn samtakanna
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég höfða nú bara til samvisku og
heiðarleika fólks og hvet launþega til
að vera vakandi fyrir þessu. Við er-
um að nýta fjár-
muni úr sameigin-
legum sjóðum til
að koma okkur í
gegnum þetta.
Ríkissjóður verð-
ur rekinn með 200
milljarða halla og
við erum að
teygja okkur til-
tölulega langt,“
segir Ásmundur
Einar Daðason,
félags- og barnamálaráðherra.
Mikil ásókn hefur verið í úrræði
stjórnvalda um greiðslu atvinnuleys-
isbóta til þeirra sem taka á sig skert
starfshlutfall vegna áhrifa kórónu-
veirunnar. Hins vegar hefur borið á
því að atvinnurekendur hafi lækkað
starfshlutfall starfsmanna en krefjist
vinnuframlags umfram hið nýja hlut-
fall sem ákveðið hefur verið. Þetta
kom fram í tilkynningu frá BHM og
BSRB í gær.
„Það er með öllu óviðunandi að
fyrirtæki reyni að nýta sér aðstæður
starfsmanna sem eru að leggja sitt af
mörkum til að vinnustaðurinn kom-
ist í gegnum tímabundna erfiðleika
með því að taka á sig kjaraskerð-
ingu,“ sagði í tilkynningunni.
Höfum opnað kerfið fyrir nema
Alls höfðu yfir 14 þúsund umsókn-
ir um minnkað starfshlutfall borist
til Vinnumálastofnunar um miðjan
dag í gær. Ásmundur Einar sagði í
samtali við Morgunblaðið að gleði-
legt væri að sjá að þessi nýja laga-
setning virkaði vel. Hann kannast þó
við umræðu þess efnis að úrræðið
næði ekki til allra. Til að mynda
námsmanna í hlutastörfum.
„Atvinnuleysistryggingakerfið
hefur ekki verið opið fyrir náms-
menn. Atvinnuleysisbætur hafa ver-
ið hugsaðar fyrir fólk í atvinnuleit en
ekki fólk í fullu námi. Við höfum hins
vegar opnað kerfið fyrir þá nú, það
er nýmæli. Það eru alltaf einhverjir
sem lenda sitt hvorum megin við lín-
una þegar hún er dregin. Við höfum
vökult auga með því ásamt Vinnu-
málastofnun hvort ástæða sé til að
bregðast við einu dæmi eða öðru.“
Höfða til heið-
arleika fólks
Ásmundur
Einar Daðason
Dæmi um misnotkun hlutastarfaleiðar
Skipholti 50b • 105 Reykjavík • Sími 569 0900
lifbank@lifbank.is • www.lifbank.is
Ársfundur 2020
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna
Til stendur að ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna verði
haldinn miðvikudaginn 29. apríl næstkomandi kl. 17.15 á
Icelandair Hotel Reykjavík Natura, Þingsal 2-3.
Dagskrá:
1. Venjuleg störf ársfundar skv. 6. gr. samþykkta sjóðsins
2. Önnur mál
Vakin er athygli á að á fundinum fer fram kosning þriggja
stjórnarmanna af sex og skulu tilkynningar um framboð vegna
stjórnarkjörs, ásamt upplýsingum um starfsferil, berast skrif-
lega til skrifstofu sjóðsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir árs-
fund skv. 2. grein samþykkta sjóðsins.
Hugsanleg frestun
Í ljósi þess ástands sem skapast hefur vegna útbreiðslu COVID-19
og samkomubanns sem sett hefur verið í tengslum við það
er hætt við að fundinum kunni að verða frestað. Komi til þess
verður það auglýst sérstaklega með upplýsingum um breyttan
fundartíma og fundarstað. Eru sjóðfélagar hvattir til að fylgjast
með heimasíðu Lífeyrissjóðs bankamanna www.lifbank.is.