Morgunblaðið - 28.03.2020, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2020
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Mikil sala!
Góður sölutími framundan.
Óskum eftir öllum tegundum
eigna á skrá.
HA
PPATALA
•
D
AGSINS
ER
•
TIL HAMINGJU – ÞÚ HEFUR FUNDIÐ HAPPATÖLUNA!
Farðu inn ámbl.is/happatala og gefðu upp töluna til að komast í pottinn.
Vinningshafar verða dregnir út í þættinum Ísland vaknar á K100 í fyrramálið.
Að sjálfsögðu hvetjum við þig til að taka þátt alla fimmtudaga og laugardaga
næstu vikurnar, því þú gætir unnið glænýjan Samsung Galaxy S20+.
21
Meir en 25.000 manns hafa látist
Boris Johnson greinist með kórónuveiruna Dauðsföllum fjölgar mjög á Spáni og á Ítalíu en nýjum
tilfellum fækkar Útgöngubann framlengt í Frakklandi fram til 15. apríl Dýpri kreppa en 2009
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Rúmlega 25.000 manns hafa nú látist
af völdum kórónuveirufaraldursins.
Tilfellum hefur fjölgað ört undan-
farna viku og eru nú rúmlega 550.000
skráð tilfelli í heiminum. Fjölgunin
hefur verið mest í ríkjum Evrópu og
svo í Bandaríkjunum, þar sem skráð
tilfelli tóku stórt stökk í fyrrinótt, og
eru nú fleiri tilfelli skráð þar en í
Kína, upphafslandi faraldursins.
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, tilkynnti í gær að hann
hefði greinst jákvæður af kórónu-
veirunni. Fann hann fyrir mildum
einkennum, og var forsætisráð-
herrann kominn í einangrun í emb-
ættisbústað sínum við Downing-
stræti 10, þaðan sem Johnson hyggst
áfram stýra aðgerðum breskra
stjórnvalda gegn kórónuveirunni.
Skömmu eftir tilkynningu John-
sons var tilkynnt að Matt Hancock,
heilbrigðisráðherra Bretlands, væri
einnig veikur, og vangaveltur voru
hvort Rishi Sunak fjármálaráðherra
og aðrir í æðstu stöðum Bretlands
þyrftu að fara í sóttkví.
Johnson er annar þjóðarleiðtoginn
sem greinist með kórónuveiruna, en
Serge Telle, forsætisráðherra
Mónakó, veiktist um miðjan mars.
Ríkisstjórn Bretlands samþykkti
fyrr í vikunni, áður en vitað var um
veikindi Johnsons, að Dominic Raab
utanríkisráðherra myndi gegna emb-
ætti forsætisráðherra ef Johnson
yrði óvinnufær.
Michel Barnier, aðalsamninga-
maður Evrópusambandsins í viðræð-
um þess við Breta, sendi batakveðjur
til Johnsons, en Barnier greindist
sjálfur með veiruna 19. mars. David
Frost, aðalsamningamaður Breta,
hefur einnig sýnt einkenni.
Alls hafa nú 11.658 tilfelli kórónu-
veirunnar verið staðfest á Bretlands-
eyjum og hafa 578 látið lífið í faraldr-
inum til þessa. Fyrr í vikunni var
greint frá því að Karl, prins af Wales
og ríkisarfi Bretlands, hefði einnig
greinst með veiruna, en hann er með
„mild einkenni“.
Mikil aukning á Spáni
Flest andlátin sem skráð hafa ver-
ið til þessa hafa verið í ríkjum Evr-
ópu, en þar hafa rúmlega 17.300
manns dáið af völdum kórónu-
veirunnar. Nær helmingur dauðsfall-
anna í Evrópu til þessa hefur verið á
Ítalíu, þar sem rúmlega 8.200 manns
hafa dáið. Nýtt met var slegið þar í
gær, en tilkynnt var að 969 manns
hefðu látist þar á undanförnum sólar-
hring.
Andlátum fjölgaði einnig mikið á
Spáni í gær, en 769 manns höfðu þá
látist á undangengnum sólarhring.
Er það mesta mannfall sem Spán-
verjar hafa séð í faraldrinum til
þessa, og hafa nú 4.858 látist á Spáni.
Eitthvað virtist þó hafa hægst um í
fjölgunum tilfella á Spáni og Ítalíu.
Nærri 1.700 manns hafa látist á
Frakklandi og hafa stjórnvöld ákveð-
ið að framlengja útgöngubann sitt til
15. apríl hið minnsta. „Við erum nú í
krísu sem mun vara, í ástandi sem
mun ekki batna á næstunni,“ sagði
Edouard Philippe, forsætisráðherra
Frakklands, í gær.
Andlát 16 ára stúlku þar í landi
hefur vakið mikinn óhug meðal
Frakka, en stúlkan, sem einungis
hefur verið nafngreind sem Julie, var
ekki með neina undirliggjandi sjúk-
dóma svo vitað sé. Þá var hún ein-
ungis með hósta í fyrstu, sem síðan
snarversnaði, þar til hún dó á mið-
vikudag, innan viku frá fyrstu ein-
kennum.
Erum komin í kreppuástand
Kristalina Georgieva, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, sagði í gær að það væri ljóst
að hagkerfi heimsins væru komin í
kreppu. Rúmlega 80 ríki hafa þegar
sótt um fjárhagsaðstoð til sjóðsins.
Varaði Georgieva við því að krepp-
an nú yrði dýpri en sú sem skók
heiminn árið 2009, þar sem hið
óvænta stopp í eftirspurn hefði leikið
mörg minna þróaðra hagkerfa
heimsins illa. Áætlaði Georgieva að
fjárþörf þessara ríkja myndi nema að
minnsta kosti 2.500 milljörðum
bandaríkjadala.
AFP
Faraldur Prestur í Bergamo á Ítalíu horfir yfir líkkistur í kirkju sinni.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Meira en 500 manns hafa nú látist í
New York-ríki af völdum kórónu-
veirunnar, samkvæmt Andrew
Cuomo ríkisstjóra, en alls hafa
44.635 smitast af henni í ríkinu. Er
það rétt tæplega helmingur allra til-
fella í Bandaríkjunum, en þau hafa
tekið mikið stökk síðustu daga og
stefna nú hraðbyri á að verða fleiri
en 100.000 talsins, eftir að hafa verið
um 68.000 á fimmtudaginn.
Cuomo sagði að fjölgun dauðsfalla
í ríkinu stafaði af því að sífellt fleiri
sjúklingar þyrftu nú á öndunarvél að
halda, og þeir þyrftu að eyða lengri
tíma í henni. „Við gerum ráð fyrir að
sú tala haldi áfram að hækka. Þetta
eru slæmar fréttir, þetta eru sorg-
lega fréttir, þetta eru verstu tíðindin
– en þau voru ekki ófyrirséð heldur,“
sagði Cuomo.
Fjögur ný sjúkrahús
Góðu fréttirnar voru hins vegar
þær að svo virtist sem að hægjast
væri ögn á fjölda nýrra tilfella frá
degi til dags, og þá væri verið að
reisa fjögur ný sjúkrahús í hverfum
New York-borgar til bráðabirgða til
þess að takast á við vandann, í Man-
hattan, Bronx, Brooklyn og Queens.
Þá mun sjúkraskip bandaríska flot-
ans leggjast við bryggju í New York
á mánudaginn, en í því eru 1.000
sjúkrarúm og 1.200 læknar og hjúkr-
unarfræðingar.
Er gert ráð fyrir að faraldurinn
muni ná hámarki í New York-ríki
eftir þrjár vikur og verða skólar þar
lokaðir til 15. apríl að minnsta kosti.
Cuomo hrósaði sérstaklega verk-
fræðingadeild Bandaríkjahers fyrir
snörp og snögg viðbrögð við að reisa
hin tímabundnu sjúkrahús. „Þetta er
lúmsk skepna. Þetta verður ekki
stutt verkefni,“ sagði Cuomo þegar
hann ávarpaði hermennina. „Ég
segi, vinir mínir, að við förum í dag
og lúskrum á kórónuveirunni.“
Neyðarpakkinn samþykktur
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
staðfesti í gær frumvarp öldunga-
deildarinnar um neyðaraðstoð
stjórnvalda upp á 2.200 milljarða
bandaríkjadala handa fólki og fyrir-
tækjum í Bandaríkjunum. Eftir
langar umræður í öldungadeildinni
tók innan við sólarhring að fá sam-
þykki fulltrúadeildarinnar. Donald
Trump Bandaríkjaforseti lýsti því
yfir í gær að hann myndi staðfesta
frumvarpið um leið og það kæmi á
borð til hans.
100 milljarðar bandaríkjadala
munu renna til sjúkrahúsa víðs veg-
ar um Bandaríkin, um 500 milljarðar
verða veittir í lán til stórfyrirtækja,
þar á meðal flugfélaga, og 377 millj-
arðar verða settir í styrki til smærri
fyrirtækja sem hafa orðið illa úti
vegna veirunnar. Þá fær hver full-
orðinn einstaklingur 1.200 dali, og
hvert barn 500 bandaríkjadali á
mánuði tímabundið.
Þá verða atvinnuleysisbætur
hækkaðar tímabundið, en 3,3 millj-
ónir manns hafa nú sótt um bætur í
Bandaríkjunum, sem er hið mesta
sem sögur fara af vestanhafs.
Reisa fjögur tímabundin
sjúkrahús í New York
Hver fullorðinn Bandaríkjamaður fær 1.200 bandaríkjadali
AFP
New York Verkfræðingar Bandaríkjahers eru að reisa fjögur ný sjúkrahús.
Herinn mun tryggja það að
ferðafólk sem snýr aftur heim til
Ástralíu virði þær reglur sem
gilda um sóttkví. Þetta kom fram
í máli Scotts Morrison, forsætis-
ráðherra Ástralíu, í gær þegar
hann kynnti nýjar og strangari
aðgerðir til þess að berjast við
útbreiðslu kórónuveirunnar.
Rúmlega tveir þriðju af öllum
tilfellum Ástralíu hafa verið rak-
in til ferðalaga Ástrala erlendis,
og er öllum sem snúa aftur heim
gert að sitja heima í 14 daga
sóttkví. Brögð hafa hins vegar
verið að því að þeim tilmælum sé
ekki fylgt, og verða nú allir
ferðalangar
settir á hótel í
tvær vikur í
þeirri borg þar
sem þeir stíga
aftur fæti á
ástralska
grund. Þá mun
lögreglan, með
aðstoð hersins,
ganga milli
húsa þeirra
sem þegar eru í sóttkví og at-
huga hvort viðkomandi er ekki
heima við. Liggja þungar fjár-
sektir við brotum á sóttkví í
Ástralíu.
Herinn framfylgir sóttkví
Scott
Morrison