Morgunblaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2020 Ránarvellir 15, 230 Keflavík Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Raðhús á einni hæð, á góðum stað í Keflavík. Mikið endurnýjað 4ra herbergja raðhús á einni hæð á vinsælum stað í Keflavík. Skóli og leikskóli í göngufæri. Myndir og lýsing á eignasala.is Verð kr. 42.500.000 110 m2 Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 19. 0-0 Hb6 20. Dc2 Hh8 21. a4 Ke8 22. Hb4 Rc6 Reynir að hrekja hrókinn í burtu. -Sjá stöðumynd- 23. f4! En Vachier-Lagrave hirðir ekk- ert um hrókinn. Eftir 23. … Rxb4 24. cxb4 Da6 25. b5 Db7 26. f5 er hvíta sóknin of sterk. 23. … Re7 24. Hfb1 f5 25. Hb5 Da6 26. Bc1! Lipurlega leikið. Biskupinn er á leið til a3. 26. … Kf7 27. Ba3 Hhb8 28. Bxe7 Kxe7 29. g4! Nú kemur berlega í ljós hversu slæm peðastaðan svarts er á kóngsvæng. Ef 29. … fxg4 þá 30. Hxb6 Hxb6 31. Hf1 og svartur ræður ekki við hótunina 33. Dg6 eða 33. f5 eftir atvikum. 29. … Hxb5 30. axb5 Hxb5 31. gxf5 Hxb1 32. Dxb1 exf5 33. Rg3 Db6 34. Rxf5+ Kf8 35. Da1 De6 36. Rg3! Dg4 37. Kg2 Dxf4 38. Dxa7 Ke7 39. Da3 Kd8 40. Dd6! Eins og Magnús Carlsen benti á í útsendingu Chess24.com þá get- ur svartur ekki losað sig út úr leppuninni, kóngsleik til e8 eða c8 er svarað með 41. De6+ eða 41. Dc6+ og síðan 42. Dxd5 o.s.frv. 40. … g5 41. hxg6 h5 42. g7 – og Nepo gafst upp. Skákin blómstrar á netinu Taflmennska á netinu er stund- uð grimmt þessa dagana. Iðkend- unum á vinsælasta vefnum Chess- .com fjölgar um tugi þúsunda á degi hverjum. Fyrir skák- áhugamenn hér á landi er ekki slæmt að geta gengið að aðstoð vísri hjá mönnum á borð við Tóm- as Veigar Sigurðarson, Halldór Grétar Einarsson og Ingvar Þ. Jó- hannesson. Stjórnarmenn í Tafl- félagi Reykjavíkur, Kristófer Gautason, formaður skákdeildar Blika, og ýmsir fleiri hafa verið duglegir við að skipuleggja stór skákmót. Á dögunum fékk Jó- hanna Björg Jóhannsdóttir lands- liðshóp kvenna og nokkrar yngri stúlkur til að taka þátt í svo- nefndu „Arena“-móti á Chess.com en það keppnisform nýtur mikilla vinsælda um þessar mundir. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Segja má að góð- mennska sé ómissandi næringarefni fyrir hug og hjarta. Lítið góð- verk getur komið af stað keðjuverkun og hvatt aðra til að leggja lið og láta gott af sér leiða. Þeir sem þiggja góðmennsku vilja yfir- leitt bera hana áfram, að sögn James Fowler, prófessor við Háskólann í Kali- forníu, San Diego. Í rannsóknum sínum fann Fowler að það að þiggja góðverk veitir innblástur til að gefa af sér. Hér er því um að ræða já- kvæð gáruáhrif. Víma gefandans En hvaðan kemur þessi jákvæði kraftur? Rannsóknir Emory- háskólans leiddu í ljós að þegar við sýnum annarri manneskju gæsku og kærleik örvast vellíðanar- og umb- unarstöð heilans og gefur frá sér dópamín, sem er taugaboðefni sem framkallar ánægju og ylja hjartarót- unum. Sálfræðingar hafa kallað þetta fyrirbæri „vímu gefandans“. Vellíðanartilfinningin er einnig af- leiðing endorfína sem líkaminn framleiðir, m.a. þegar við stundum líkamlega hreyfingu eða kynlíf, en einnig þegar við látum gott af okkur leiða. Auk þess losar um oxýtósín, sem er hormón sem m.a. styrkir hjartað og eflir tilfinningabönd. Það ætti því ekki að koma á óvart að rannsókn við Harvard-háskólann frá 2010, sem var framkvæmd í 136 löndum, sýndi að fólk sem var örlátt var hamingjusamast allra. Sannast með því gamla máltækið um að sælla er að gefa en þiggja. Hluti þess að upplifa vellíðan þeg- ar við gefum af okkur er að við vitum að við lyftum upp anda einhvers. Að þiggja gjöf, fá aðstoð eða mæta hvetjandi brosi virkjar vellíðanar- og umbunarstöð heilans og það eru þessar jákvæðu tilfinningar sem halda keðjuverkuninni gangandi. Rannsókn við Harvard-háskólann sem framkvæmd var 2007 leiddi í ljós að manneskja sem er nýbúin að upplifa góð- mennsku er sæl og þakklát, sem gerir hana líklegri til að gefa af sér og sýna öðrum kærleik. Góðmennska ýtir undir fleiri góðverk En þetta er ekki allt og sumt. Áhrif góð- mennsku geta verið það mikil að við þurfum ekki einu sinni að vera bein- tengd góðverkinu til að verða fyrir áhrifum af því. Það að verða vitni að góðverki framkallar tilfinningahæð og getur veitt okkur innblástur til að gefa af okkur og gera eitthvað gott fyrir aðra manneskju. Góðmennska getur þannig ýtt undir fleiri góð- verk. Við gerum oft eins og fyrir okkur er haft og þegar við verðum vitni að góðverki finnum við fyrir hlýju í hjartastað. Undanfarnar vikur höfum við orð- ið vitni að óteljandi góðverkum, sem eru kærkomin á þessum krefjandi tímum. Látum þessa góðmennsku veita okkur innblástur og sýnum náungakærleik, velvild og vináttu okkur sjálfum og samfélaginu til heilla. Það jafnast ekkert á við góð- verk. Eftir Ingrid Kuhlman »Rannsókn við Har- vard-háskólann frá 2010 sýndi að fólk sem var örlátt var hamingju- samast allra. Sannast með því gamla máltækið um að sælla er að gefa en þiggja. Ingrid Kuhlman Höfundur er framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar og með meistara- gráðu í hagnýtri jákvæðri sálfræði. Góðverk eru smitandi Björn Jónsson fæddist 28. mars 1854 á Litla-Hamri í Eyjafjarðarsveit. Foreldrar hans voru hjónin Jón Ólafs- son, f. 1832, d. 1913, hrepp- stjóri þar og Halldóra Ás- mundsdóttir, f. 1829, d. 1890. Björn hóf prentnám 1871 á Akureyri hjá Birni Jónssyni, ritstjóra Norðanfara, og fór svo til Kaupmannahafnar til frekara náms 1875. Björn kom til Reykjavíkur þaðan 1877 og vann í tvö ár þar hjá Einari Þorsteinssyni en fór aftur norður 1879 og keypti prentsmiðju Norðra og Austuramtsins. Hún nefndist eftir það Prentsmiðja Björns Jónssonar og starfaði til 1987. Björn var eigandi hennar til dánardags en frá 1905 var Þórhallur Bjarnarson prentari meðeigandi hennar. Björn gaf einnig út blöðin Fróða, Stefni, Norðra og Akureyrarpóstinn og var rit- stjóri þeirra. Hann var bæjar- fulltrúi á Akureyri um tíma og löggæslumaður. Eiginkona Björns var Guð- rún Helga Helgadóttir, f. 1861, d. 1906, húsfreyja og sonur þeirra var Helgi, f. 1891, d. 1943, prentsmiðju- stjóri, en hann tók við af föður sínum. Björn lést 5.10. 1920. Merkir Íslendingar Björn Jónsson Morgunblaðið/Edda Sveinsdóttir Stund milli stríða Jóhanna Björg við taflið. Hún er ritari á gjörgæsludeild Landspítalans og blés til Arena-móts á netinu með landsliðshópi kvenna og nokkrum stúlkum af yngri kynslóðinni. Áskorenda- mótinu frestað í miðjum klíðum Degi eftir að fyrri hlutaáskorendakeppninnar íYekaterinburg lauk tókforseti FIDE, Arkady Dvorkovich, af skarið og tilkynnti að mótinu yrði frestað og að dag- setning framhaldsins yrði tilkynnt síðar. FIDE hafði fyrr í vikunni fylgt í fótspor skipuleggjanda Ól- ympíuleikanna í Tókýó og frestað Ólympíuskákmótinu fram á næsta ár en það átti hefjast í Rússlandi í ágúst nk. Lengi vel virtist forseti FIDE vera í einhverri afneitun með alvarleika útbreiðslu COVID-19 og í yfirlýsingu sl. fimmtudag vísaði hann fyrst og fremst til þess ófremdarástands sem væri í samgöngumálum í Rúss- landi. En aðstæður á keppnisstað voru alls ekki boðlegar og sá sem snemma náði forystunni, Ian Ne- pomniachtchi, gekk um sviðið hóst- andi þurrum hósta og þó að hann hefði farið a.m.k. tvisvar í læknis- skoðun þá lá einhvern veginn í loft- inu að gripið yrði inn í atburða- rásina. En í „hálfleik“ er staðan þessi: 1.- 2. Nepomniachtchi og Vach- ier-Lagrave 4 ½ v. (af 7) 3.-6. Giri, Grischuk, Caruana og Wang 3 ½ v. 7.-8. Liren Ding og Alekseenko 2½ v. Nepo var kominn með vinnings forskot eftir sjöttu umferð. En helsti keppinautur hans gaf engin grið: Áskorendamótið í Yekaterin- burg 2020; 7. umferð: Vachier Lagrave – Ian Nepo- mniachtchi Frönsk vörn 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 c5 5. a3 Bxc3 6. bxc3 Re7 7. h4 Dc7 8. h5 Þessi peðaframrás hefur þann til- gang að veikja varnir svarts og þá einkum peðatöðuna á kóngsvæng. 8. … h6 9. Hb1 b6 10. Dg4 Hg8 11. Bb5 Kf8 12. Bd3 Ba6 13. dxc5 Bxd3 14. cxd3 Rd7 15. d4 bxc5 16. Dd1 Da5 17. Bd2 Hb8 18. Re2 c4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.