Morgunblaðið - 28.03.2020, Side 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2020
Áföll sem dynja yfir, eins og
faraldurinn sem nú herjar á
heimsbyggðina og er kenndur við
kórónu, geta kallað fram bestu
hliðar mannskepnunnar.
Síðustu daga og vikur höf-
um við séð og lesið fréttir um
alls kyns góðverk og aðstoð sem
hinir og þessir inna af hendi til
aðstoðar samborgurum sínum.
Margt af þekktasta íþrótta-
fólki heims veit ekki aura sina tal
og það er gott að sjá fréttir af
mönnum eins og Cristiano Ron-
aldo og Lionel Messi þar sem
þeir gefa svimandi háar fjár-
hæðir til styrktar heilbrigðiskerf-
unum á Íberíuskaganum.
Auðvitað má segja sem svo
að það sé ekki mikið mál fyrir þá
að gefa til baka eitthvað af þeim
öllum þeim auðæfum sem
streyma inn á bankareikningana
þeirra frá unnendum íþróttar-
innar um allan heim.
Margt íþróttafólk, sem og
þjálfarar, líka hér á landi, hafa
gefið eftir hluta af sínum launum
til að hægt sé að halda félögum
þeirra gangandi, þó þar sé um að
ræða fólk sem aðeins þénar ör-
lítið brotabrot af þeim upp-
hæðum sem áðurnefndar stjörn-
ur fá í sinn hlut.
Í ræðu og riti má sjá vanga-
veltur um að nú muni íþrótta-
heimurinn sem slíkur breytast til
hins betra. Kröfur muni minnka
og fjármagni verði varið á skyn-
samlegri hátt en áður. Kaupverð
á knattspyrnumönnum muni til
dæmis hríðfalla og laun þeirra
lækka.
Mörg félög þurfa að endur-
skipuleggja sig frá grunni, ef þau
komast í gegnum „skaflinn“.
Kannski var kominn tími til þess
hvort sem var? Kannski verður
umhverfið á einhvern hátt heil-
brigðara að þessum ósköpum
loknum? Kannski verður mesta
áskorunin sú að láta ekki allt
saman sigla aftur í sama farið?
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
HÖFUÐÁVERKAR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Í síðasta mánuði var gripið til að-
gerða á Bretlandseyjum varðandi
hættuna á höfuðáverkum í knatt-
spyrnunni. Skólabörnum hefur nú
verið meinað að skalla knöttinn á
æfingum og er þar miðað við 12 ára
aldurinn.
Sama viðmið hefur verið notað
hérlendis en frá því var greint í
vetur að börn skalla ekki knöttinn á
æfingum hjá knattspyrnudeild
Breiðabliks. Eftir því sem Morgun-
blaðið kemst næst eru ekki skipu-
lagðar skallaæfingar hjá börnum 12
ára og yngri hjá knattspyrnu-
félögum á Íslandi. Bandaríkjamenn
riðu á vaðið fyrir nokkrum árum og
bönnuðu börnum yngri en 12 ára að
skalla knöttinn.
Enska knattspyrnusambandið
hefur nú brugðist við en rannsóknir
benda til þess að atvinnumenn í
knattspyrnu eigi á hættu að þróa
með sér heilabilun fyrir aldur fram.
Grunsemdir um slíkt hafa legið fyr-
ir í nokkurn tíma en viðamikil rann-
sókn sem gerð var í Skotlandi
bendir til þess að slíkar áhyggjur
eigi við rök að styðjast.
Skallatækni kennd
Greint var frá niðurstöðum þeirr-
ar rannsóknar í Morgunblaðinu 23.
október síðastliðinn. Var hún fram-
kvæmd af Glasgow-háskólanum og
niðurstöður hennar eru megin-
ástæða þess að enska knattspyrnu-
sambandið og systursambönd í
Skotlandi og Norður-Írlandi hafa
nú tekið þessa ákvörðun. Enda
voru niðurstöðurnar ekki skemmti-
legar. Knattspyrnumenn eru lík-
legri til að fá taugasjúkdóma og lík-
legri til að látast úr heilabilun,
meira að segja mun líklegri en þeir
sem ekki stunda knattspyrnu af
kappi.
Ekki er látið staðar numið við 12
ára aldurinn í þeim aðgerðum sem
nú er gripið til á Bretlandseyjum
heldur eru tilmæli þess efnis að
ekki sé lögð mikil áhersla á skalla-
tækni fyrr en knattspyrnufólk nær
16 ára aldri. Á aldrinum 13 til 16
ára á þó að kenna leikmönnum
skallatækni en slíkar æfingar verða
ekki umfangsmiklar og langt á milli
þeirra.
Smávægileg en ítrekuð högg
Gera má ráð fyrir því að víða í
knattspyrnuhreyfingunni bíði fólk
átekta. Rannsóknin í Skotlandi var
nauðsynlegt skref í þá átt að fræð-
ast um afleiðingar þess að skalla
knöttinn ítrekað um margra ára
skeið. Hér er ekki verið að skoða
stök og þung höfuðhögg, sem eru
vitaskuld alvarleg, heldur síendur-
tekið áreiti fyrir höfuðið sem veldur
því að heilinn hristist ef til vill eilít-
ið í hvert skipti.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu var þúfan sem velti
hlassinu vestan hafs í Bandaríkj-
unum. Leikmenn í NFL fengu hver
af öðrum heilabilun langt fyrir ald-
ur fram. Eftir umfangsmiklar
krufningar snemma á þessari öld
kom í ljós að heilinn í þeim var
álíka illa farinn og í hnefaleikurum
sem hafa verið krufnir. Slíkt ástand
var kallað boxers brain en fékk
heitið CTE eftir uppgötvanirnar í
Bandaríkjunum. Heilabilunina
mátti rekja til margítrekaðra högga
sem leikmenn urðu fyrir á æfingum
og í keppni en ekki endilega vegna
dramatískra atvika þar sem leik-
menn fengu alvarlegan heilahrist-
ing.
Watson bætist í hópinn
Í framhaldinu fóru margir að
velta fyrir sér áhrifum þess fyrir
atvinnumenn í knattspyrnu að
skalla knöttinn. Nokkur dæmi eru
um ótímabæra heilabilun hjá fyrr-
verandi knattspyrnumönnum.
Þekktustu dæmin frá Bretlands-
eyjum þar sem aðstandendur tjáðu
sig í fjölmiðlum eru Jeff Astle,
Nobby Stiles og nú síðast Dave
Watson.
Astle var miðherji WBA sem lést
59 ára að aldri og hafði heilabilun
þá hrjáð hann um fimm ára skeið.
Stiles, einn þriggja Englendinga
sem bæði hafa orðið heimsmeist-
arar og Evrópumeistarar, þjáist af
heilabilun og hafa fjölskyldu-
meðlimir kallað eftir rannsóknum á
höfuðáverkum í knattspyrnunni.
Í síðasta mánuði var greint frá
því að Dave Watson, fyrrverandi
landsliðsfyrirliði Englendinga, glími
við heilabilun og hafi gert um árabil
en hann er 73 ára. Í tilkynningu frá
eiginkonu hans kemur fram sú
skoðun hennar að ástand Watsons
sé líklega CTE og sé tilkomið eftir
að hafa skallað knöttinn ítrekið á
knattspyrnuferlinum. Watson var í
liði Sunderland sem varð bik-
armeistari 1973. Ástæða þess að
eiginkona Watsons tilkynnti nú um
stöðuna er sú að Sunderland hefur
ákveðið að velja Watson í heiðurs-
höll félagsins.
Skýrari mynd fæst vonandi
Ljóst má vera að vangaveltur um
heilsufar knattspyrnufólks þegar
ferlinum sleppir munu verða áfram
í umræðunni á Bretlandseyjum.
Fleiri rannsóknir verða vafalaust
gerðar sem ættu að færa fólk nær
einhverri vitneskju um hvort
hættulegt sé að skalla knöttinn
ítrekað og hversu hættulegt.
Eins og sakir standa bendir
margt til þess að svo sé en nokkur
flækjustig eru enn til staðar. Til
dæmis sú staðreynd að knettirnir
voru annars konar fyrir mörgum
áratugum og urðu grjótharðir í
bleytu. Hvort það hafi áhrif á eftir
að koma betur í ljós með fleiri
rannsóknum en þrátt fyrir aukna
tækni er ljóst að knettir sem not-
aðir eru í meistaraflokkum eru enn
mjög harðir.
Bretar fylgja fordæmi
Bandaríkjamanna
Börnum í knattspyrnu meinað að skalla knöttinn á Bretlandseyjum
Morgunblaðið/Eggert
Skallaeinvígi Leikmenn úr Stjörnunni og Þór/KA reyna að skalla knöttinn í Garðabænum árið 2013.
Körfuknattleiksdeild Þórs Þorláks-
hafnar og Friðrik Ingi Rúnarsson
hafa komist að samkomulagi um að
slíta samstarfinu vegna þeirrar
óvissu sem nú ríkir í samfélaginu.
Hafnarfréttir greindu frá þessu í
gær. Friðrik, sem er 52 ára Njarð-
víkingur og einn reyndasti körfu-
knattleiksþjálfari landsins, tók við
þjálfun karlaliðs Þórs af Baldri Þór
Ragnarssyni fyrir tímabilið og var
liðið í níunda sæti Dominos-
deildarinnar þegar tímabilið var
blásið af vegna kórónuveirunnar
fyrr í þessum mánuði.
Friðrik Ingi hættir
í Þorlákshöfn
Morgunblaðið/Eggert
Farinn Friðrik Ingi Rúnarsson hef-
ur sagt skilið við Þór í Þorlákshöfn.
Forráðamenn ensku úrvalsdeildar-
innar funduðu í gær vegna út-
breiðslu kórónuveirunnar og kom-
ust að niðurstöðu um að leikjum
deildarinnar væri ekki lengur frest-
að til 30. apríl heldur ótímabundið.
Verður fundað aftur í næstu viku og
reynt að komast að frekari niður-
stöðu um framhald deildarinnar.
Segir í yfirlýsingu frá deildinni í
gær að félögin munu vinna saman
við að komast að niðurstöðu. Æ
fleiri félög í ensku úrvalsdeildinni
vilja aflýsa yfirstandandi tímabili
vegna veirunnar.
Ekki lengur frest-
að til 30. apríl
AFP
England Liverpool er með 25 stiga
forskot á toppi deildarinnar.
Íslenska kvenna-
landsliðið í knatt-
spyrnu sígur niður
um eitt sæti á
heimslista FIFA
sem gefinn var út í
gær í fyrsta skipti
á árinu 2020. Ís-
land var í 18. sæti
listans þegar hann
var síðast gefinn
út, í desember
2019, en er núna í nítjánda sætinu. Það
er Suður-Kórea sem fer upp fyrir Ís-
land og í 18. sætið, og fer reyndar líka
upp fyrir Sviss sem sígur niður í það
20. í staðinn. Íslenska liðið hefur leikið
þrjá leiki á þessu ári, alla á alþjóðlegu
móti á Spáni í byrjun mars. Þar vann
það Norður-Írland 1:0 og Úkraínu 1:0
en tapaði 0:1 gegn Skotlandi. Ein
breyting er meðal liðanna í efstu sæt-
unum. Þar eru Bandaríkin og Þýska-
land í tveimur þeim efstu sem fyrr en
Frakkland fer upp fyrir Holland og í
þriðja sætið. Svíþjóð, England og
Ástralía koma þar á eftir en Brasilía
kemst að hlið Kanada í 8.-9. sætinu. Þá
fer Norður-Kórea upp fyrir Japan og í
tíunda sætið. Þar á eftir koma Nor-
egur, Spánn, Ítalía, Kína, Danmörk,
Belgía, og svo Suður-Kórea og Ísland
númer 18 og 19.
Íslenska lið-
ið niður um
eitt sæti
Sara Björk
Gunnarsdóttir