Morgunblaðið - 28.03.2020, Page 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2020
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • tonastodin.is
Trommur
Fyrir byrjen
dur og leng
ra komna
meiriháttar
úrval
FRÉTTASKÝRING
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Bóksala á netinu hefur margfaldast
hér á landi eftir að samkomubanni
var komið á, eins og við var að bú-
ast, enda engar fjöldasamkomur í
boði. Blaðamaður hafði samband við
nokkur af helstu forlögum landsins
og einnig Heimkaup og forvitnaðist
um neyslu bóka á tímum kórónu-
veirufaraldurs.
Sala aldrei verið meiri
Dögg Hjaltalín, framkvæmda-
stjóri Sölku, segir að hún og útgef-
andi Sölku, Anna Lea Friðriks-
dóttir, hafi orðið
varar við aukna
sölu bóka á vef
útgáfunnar. „Við
höfum verið með
vefverslunina í
mörg ár og hefur
salan aldrei verið
jafnmikil og síð-
ustu daga. Fólk
er einnig að
panta fleiri bæk-
ur og sumir jafn-
vel alveg heilu kassana af bókum.
Við ákváðum að framlengja
afsláttartilboð sem voru á Bóka-
markaðinum í Laugardal og gæti
það einnig verið ástæða þess hversu
margir eru að kaupa bækur á net-
inu,“ segir Dögg og bætir við að
matreiðslubækur séu vinsælasti
bókaflokkurinn á vef Sölku þessa
dagana og barna- og handavinnu-
bækur njóti einnig vinsælda. Bókin
Bakað úr súrdeigi rjúki út og því
virðist sem allir séu farnir að baka
úr súrdeigi nú þegar þeir hafi næg-
an tíma til þess heima fyrir.
„Einnig er greinilegt að fólk vill
gera vel við sig í mat og seljast mat-
reiðslubækurnar hennar Evu Lauf-
eyjar líka mjög vel,“ segir Dögg og
nefnir einnig bók með hugmyndum
um útiveru með börnum sem sé vin-
sæl. „Við höfum séð undanfarna
daga að pantanirnar eru að stækka
og fólk er að kaupa fleiri bækur í
einu og ég tel að það verði þróunin á
næstunni. Við erum smátt og smátt
að átta okkur á því að við verðum
með nægan tíma til að glugga í bæk-
ur á næstunni.“
Margföld netsala
Egill Örn Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Forlagsins, segir að
sala í gegnum vefverslun Forlagsins
hafi margfaldast á undanförnum
dögum og vikum og suma dagana
hafi hún verið meira en tíföld miðað
við marsmánuð í fyrra.
„Þegar við sáum í hvað stefndi
fyrir nokkrum vikum hófum við
markvisst átak við að kynna vef-
verslunina, sem hefur satt að segja
gengið langt framar vonum. Á
heimasíðunni seljum við bækur allra
útgefenda, og er að finna yfir fimm
þúsund titla á forlagid.is,“ segir
Egill. „Þannig
bættum við út-
keyrslu á höfuð-
borgarsvæðinu til
muna í síðustu
viku og erum
núna í sumum til-
vikum að ná að
afhenda bækur
samdægurs, en í
langflestum til-
vikum náum við
afhenda bækur til viðskiptavina
daginn eftir að pöntun er gerð.
Sömuleiðis hófum við mikið átak í
að kynna betur úrval bæði raf- og
hljóðbóka, en ég ímynda mér að
margir geri sér ekki grein fyrir því
að úrval í báðum flokkum er orðið
gríðarlegt og hægt að gera mjög góð
kaup.
Í síðustu viku ákváðum við að
gefa þrjár hljóðbækur og um leið og
kynningin hófst fór heimasíða
Forlagsins algerlega á hliðina enda
ásóknin rosaleg. Við gáfum þannig á
fyrstu tveimur til þremur dögunum
yfir þúsund hljóðbækur til viðskipta-
vina, sem svo hafa fjölmargir keypt
sér fleiri hljóðbækur í kjölfarið,“
segir Egill. „Þannig að það er sann-
arlega ljós í myrkrinu, eins og sakir
standa, hversu vel þetta hefur geng-
ið og ég á ekki von á öðru en að það
haldi áfram. Og þó svo að við verð-
um kannski að skella tímabundið í
lás, harðni aðgerðir Almannavarna,
verður alltaf hægt að kaupa sér bæði
raf- og hljóðbækur á netinu. Það er
gott til þess að vita að fjölmargir Ís-
lendingar eru að leita sér afþrey-
ingar við bóklestur og hlustun á
meðan þetta fár gengur yfir.“
Áskrifendum fjölgar
og fjórföld sala hjá Eddu
María Rán Guðjónsdóttir hjá
Angústúru segir forlagið bjóða upp á
bækur í áskrift, þýðingar á merkum
bókum frá ýmsum heimshornum, og
áskrifendum að
þeim hafi fjölgað
mikið undanfarið.
„Fólki finnst sér-
staklega kær-
komið að fá
heimsenda nýja
bók á þessum
tímum – algjör
himnasending!
Netsala hefur
einnig aukist og
ég spái því að hún
eigi eftir að gera það enn frekar, nú
þegar flestir hafa komið sér vel fyrir
heima með nóg að bíta og brenna. Í
samkomubanni er upplagt að leyfa
sér að gleyma sér í góðri bók,“ segir
María.
Nafna hennar, María B. Johnson,
sölu- og markaðsstjóri Eddu útgáfu
sem gefur m.a. út
Andrés Önd, seg-
ir að sala á alls
kyns afþreying-
arefni, þrauta-
bókum og kross-
gátubókum á vef
útgáfunnar,
edda.is, hafi tölu-
vert aukist.
„Þrautabækur og
krossgátubækur
Moggans rjúka út núna. Bæði hefur
salan aukist á netinu hjá okkur og
eins til verslana og óhætt er að segja
að salan á netinu hefur fjórfaldast
hjá okkur miðað við sama tíma í
fyrra,“ segir María.
Áttföld sala en þrengir
að starfsemi bókabúða
Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá
Bjarti & Veröld, hefur sömu sögu að
segja og aðrir útgefendur. „Sala á
bókum á netinu hefur margfaldast
hjá okkur. Salan á fyrsta ársfjórð-
ungi á bjartur-verold.is er um það
bil áttfalt meiri
en á sama tíma í
fyrra og hefur
langmest aukn-
ing verið nú í
mars. Að sama
skapi hefur sala í
verslunum dreg-
ist saman og
munar þar að
sjálfsögðu mestu
um Leifsstöð,
þar sem ævin-
lega selst mikið af kiljum. Til að
koma til móts við lesendur höfum
við ákveðið að fella niður send-
ingarkostnað á bókum innanlands.
Við höfum líka fengið fjölda nýrra
áskrifenda í neon-bókaklúbbnum en
þar bjóðum við splunkunýjar þýð-
ingar á því sem hæst ber í bók-
menntum heimsins hverju sinni.
Klúbburinn hefur verið starfandi í
nálega aldarfjórðung og sendir frá
sér fjórar til sex bækur á ári,“ segir
Pétur Már.
„Það er ljóst að bókaútgefendur
sem aðrir munu taka á sig mikið
högg vegna minni sölu á næstunni.
Þrengjast mun að starfsemi bóka-
búða eins og annarra verslana á
næstu vikum. Salan mun þá færast
í enn meiri mæli yfir á netið, enda á
þjóðin mjög erfitt með að vera
bókalaus. Þó að þrengi að sölu-
möguleikum okkar látum við þó
ekki deigan síga. Í vikunni dreifum
við nýrri kilju, Þöglu stúlkunni eftir
Hjorth og Rosenfeldt en það er
verðlaunaþýðandinn Snæbjörn
Arngrímsson sem snarar bókinni
um réttarsálfræðinginn Sebastian
Bergman á íslensku,“ segir Pétur
Már.
Snörp aukning
Guðmundur Magnason, fram-
kvæmdastjóri Heimkaupa sem
selja m.a. bækur
á netinu, segist
hafa séð snarpa
aukningu milli
vikna, vel rúm-
lega tvöfalda sölu
eða 125% frá ell-
eftu viku til
þeirrar tólftu.
Allt stefni í enn
meiri sölu í vik-
unni sem nú er að
líða. Guðmundur
bendir á að sumar af þessum seldu
bókum séu rafbækur og enga vír-
usa þar að finna. Hann bætir við að
aldrei hafi selst eins mörg púsluspil
og nú.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bókatíð Þó að sala bóka dragist saman í verslunum á tímum samkomubanns og fjöldatakmarkana í verslunum eykst hún mjög á netinu.
Dögg
Hjaltalín
María B.
Johnson
Egill Örn
Jóhannsson
Pétur Már
Ólafsson
María Rán
Guðjónsdóttir
Guðmundur
Magnason
Sprenging í sölu bóka á netinu
Bóksala á netinu hefur margfaldast á síðustu vikum Sala hjá Forlaginu hefur allt að tífaldast
miðað við sama tíma í fyrra sé litið til einstakra daga Sumir panta heilu kassana af bókum