Morgunblaðið - 28.03.2020, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 28.03.2020, Qupperneq 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2020 Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • tonastodin.is Trommur Fyrir byrjen dur og leng ra komna meiriháttar úrval FRÉTTASKÝRING Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Bóksala á netinu hefur margfaldast hér á landi eftir að samkomubanni var komið á, eins og við var að bú- ast, enda engar fjöldasamkomur í boði. Blaðamaður hafði samband við nokkur af helstu forlögum landsins og einnig Heimkaup og forvitnaðist um neyslu bóka á tímum kórónu- veirufaraldurs. Sala aldrei verið meiri Dögg Hjaltalín, framkvæmda- stjóri Sölku, segir að hún og útgef- andi Sölku, Anna Lea Friðriks- dóttir, hafi orðið varar við aukna sölu bóka á vef útgáfunnar. „Við höfum verið með vefverslunina í mörg ár og hefur salan aldrei verið jafnmikil og síð- ustu daga. Fólk er einnig að panta fleiri bæk- ur og sumir jafn- vel alveg heilu kassana af bókum. Við ákváðum að framlengja afsláttartilboð sem voru á Bóka- markaðinum í Laugardal og gæti það einnig verið ástæða þess hversu margir eru að kaupa bækur á net- inu,“ segir Dögg og bætir við að matreiðslubækur séu vinsælasti bókaflokkurinn á vef Sölku þessa dagana og barna- og handavinnu- bækur njóti einnig vinsælda. Bókin Bakað úr súrdeigi rjúki út og því virðist sem allir séu farnir að baka úr súrdeigi nú þegar þeir hafi næg- an tíma til þess heima fyrir. „Einnig er greinilegt að fólk vill gera vel við sig í mat og seljast mat- reiðslubækurnar hennar Evu Lauf- eyjar líka mjög vel,“ segir Dögg og nefnir einnig bók með hugmyndum um útiveru með börnum sem sé vin- sæl. „Við höfum séð undanfarna daga að pantanirnar eru að stækka og fólk er að kaupa fleiri bækur í einu og ég tel að það verði þróunin á næstunni. Við erum smátt og smátt að átta okkur á því að við verðum með nægan tíma til að glugga í bæk- ur á næstunni.“ Margföld netsala Egill Örn Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Forlagsins, segir að sala í gegnum vefverslun Forlagsins hafi margfaldast á undanförnum dögum og vikum og suma dagana hafi hún verið meira en tíföld miðað við marsmánuð í fyrra. „Þegar við sáum í hvað stefndi fyrir nokkrum vikum hófum við markvisst átak við að kynna vef- verslunina, sem hefur satt að segja gengið langt framar vonum. Á heimasíðunni seljum við bækur allra útgefenda, og er að finna yfir fimm þúsund titla á forlagid.is,“ segir Egill. „Þannig bættum við út- keyrslu á höfuð- borgarsvæðinu til muna í síðustu viku og erum núna í sumum til- vikum að ná að afhenda bækur samdægurs, en í langflestum til- vikum náum við afhenda bækur til viðskiptavina daginn eftir að pöntun er gerð. Sömuleiðis hófum við mikið átak í að kynna betur úrval bæði raf- og hljóðbóka, en ég ímynda mér að margir geri sér ekki grein fyrir því að úrval í báðum flokkum er orðið gríðarlegt og hægt að gera mjög góð kaup. Í síðustu viku ákváðum við að gefa þrjár hljóðbækur og um leið og kynningin hófst fór heimasíða Forlagsins algerlega á hliðina enda ásóknin rosaleg. Við gáfum þannig á fyrstu tveimur til þremur dögunum yfir þúsund hljóðbækur til viðskipta- vina, sem svo hafa fjölmargir keypt sér fleiri hljóðbækur í kjölfarið,“ segir Egill. „Þannig að það er sann- arlega ljós í myrkrinu, eins og sakir standa, hversu vel þetta hefur geng- ið og ég á ekki von á öðru en að það haldi áfram. Og þó svo að við verð- um kannski að skella tímabundið í lás, harðni aðgerðir Almannavarna, verður alltaf hægt að kaupa sér bæði raf- og hljóðbækur á netinu. Það er gott til þess að vita að fjölmargir Ís- lendingar eru að leita sér afþrey- ingar við bóklestur og hlustun á meðan þetta fár gengur yfir.“ Áskrifendum fjölgar og fjórföld sala hjá Eddu María Rán Guðjónsdóttir hjá Angústúru segir forlagið bjóða upp á bækur í áskrift, þýðingar á merkum bókum frá ýmsum heimshornum, og áskrifendum að þeim hafi fjölgað mikið undanfarið. „Fólki finnst sér- staklega kær- komið að fá heimsenda nýja bók á þessum tímum – algjör himnasending! Netsala hefur einnig aukist og ég spái því að hún eigi eftir að gera það enn frekar, nú þegar flestir hafa komið sér vel fyrir heima með nóg að bíta og brenna. Í samkomubanni er upplagt að leyfa sér að gleyma sér í góðri bók,“ segir María. Nafna hennar, María B. Johnson, sölu- og markaðsstjóri Eddu útgáfu sem gefur m.a. út Andrés Önd, seg- ir að sala á alls kyns afþreying- arefni, þrauta- bókum og kross- gátubókum á vef útgáfunnar, edda.is, hafi tölu- vert aukist. „Þrautabækur og krossgátubækur Moggans rjúka út núna. Bæði hefur salan aukist á netinu hjá okkur og eins til verslana og óhætt er að segja að salan á netinu hefur fjórfaldast hjá okkur miðað við sama tíma í fyrra,“ segir María. Áttföld sala en þrengir að starfsemi bókabúða Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá Bjarti & Veröld, hefur sömu sögu að segja og aðrir útgefendur. „Sala á bókum á netinu hefur margfaldast hjá okkur. Salan á fyrsta ársfjórð- ungi á bjartur-verold.is er um það bil áttfalt meiri en á sama tíma í fyrra og hefur langmest aukn- ing verið nú í mars. Að sama skapi hefur sala í verslunum dreg- ist saman og munar þar að sjálfsögðu mestu um Leifsstöð, þar sem ævin- lega selst mikið af kiljum. Til að koma til móts við lesendur höfum við ákveðið að fella niður send- ingarkostnað á bókum innanlands. Við höfum líka fengið fjölda nýrra áskrifenda í neon-bókaklúbbnum en þar bjóðum við splunkunýjar þýð- ingar á því sem hæst ber í bók- menntum heimsins hverju sinni. Klúbburinn hefur verið starfandi í nálega aldarfjórðung og sendir frá sér fjórar til sex bækur á ári,“ segir Pétur Már. „Það er ljóst að bókaútgefendur sem aðrir munu taka á sig mikið högg vegna minni sölu á næstunni. Þrengjast mun að starfsemi bóka- búða eins og annarra verslana á næstu vikum. Salan mun þá færast í enn meiri mæli yfir á netið, enda á þjóðin mjög erfitt með að vera bókalaus. Þó að þrengi að sölu- möguleikum okkar látum við þó ekki deigan síga. Í vikunni dreifum við nýrri kilju, Þöglu stúlkunni eftir Hjorth og Rosenfeldt en það er verðlaunaþýðandinn Snæbjörn Arngrímsson sem snarar bókinni um réttarsálfræðinginn Sebastian Bergman á íslensku,“ segir Pétur Már. Snörp aukning Guðmundur Magnason, fram- kvæmdastjóri Heimkaupa sem selja m.a. bækur á netinu, segist hafa séð snarpa aukningu milli vikna, vel rúm- lega tvöfalda sölu eða 125% frá ell- eftu viku til þeirrar tólftu. Allt stefni í enn meiri sölu í vik- unni sem nú er að líða. Guðmundur bendir á að sumar af þessum seldu bókum séu rafbækur og enga vír- usa þar að finna. Hann bætir við að aldrei hafi selst eins mörg púsluspil og nú. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bókatíð Þó að sala bóka dragist saman í verslunum á tímum samkomubanns og fjöldatakmarkana í verslunum eykst hún mjög á netinu. Dögg Hjaltalín María B. Johnson Egill Örn Jóhannsson Pétur Már Ólafsson María Rán Guðjónsdóttir Guðmundur Magnason Sprenging í sölu bóka á netinu  Bóksala á netinu hefur margfaldast á síðustu vikum  Sala hjá Forlaginu hefur allt að tífaldast miðað við sama tíma í fyrra sé litið til einstakra daga  Sumir panta heilu kassana af bókum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.