Fréttablaðið - 05.09.2020, Side 34

Fréttablaðið - 05.09.2020, Side 34
Í mínum huga hefur aldrei komið upp efi. Það er bara Mikael sem á hjarta mitt. Hann hefur alltaf verið sá eini og ég hef aldrei verið skotin í öðrum. Hann er svo yndislegur, aðlaðandi og skemmti- legur, gerir mig endalaust glaða og kemur mér alltaf til að hlæja. Það er enginn betri en Mikael og ég fæ aldrei leiða á honum. Þetta er ein- læg og sönn ást,“ segir Iðunn Lilja Sveinsdóttir, sem gafst æskuást- inni sinni, Mikael Snæ Gíslasyni, í Sauðárkrókskirkju fyrir viku. Þau Iðunn Lilja og Mikael Snær bjuggu beint á móti hvort öðru í sömu götu á Sauðárkróki frá því þau voru á fjórða árinu. „Við vorum í sitthvorum leik- skólanum en lékum okkur saman í götunni heima og mér fannst hann alltaf svo skemmtilegur. Á fyrsta deginum í sex ára bekk í Árskóla ákvað ég svo að við yrðum kærustupar og það hefur haldist allar götur síðan,“ segir Iðunn Lilja, yfir sig hamingjusöm. „Ég hreinlega get ekki hætt að hugsa um yndislegan brúðkaups- daginn og skoða myndirnar. Þetta var besti dagur lífs míns. Loksins erum við hjón og höfum undanfarna hveitibrauðsdaga ekki getað hætt að kalla hvort annað eiginmann og eiginkonu; að segja maðurinn minn og konan mín með réttu,“ segir Iðunn Lilja. Draumadísin eina Mikael Snær hugsaði ekki mikið út í alvöruna þegar hann samþykkti að þau Iðunn yrðu kærustupar fyrsta skóladaginn í Árskóla. „Mér fannst þetta bara skemmti- leg hugmynd, en man að ég vildi ólmur verða kærasti Iðunnar Lilju. Þegar við urðum unglingar tók sambandið á sig alvarlegri blæ þótt við vissum ekkert hvað við værum að pæla, né að það þyrfti vinnu í að viðhalda ástarsambandi. Allt kostaði það alls kyns tilfinninga- rót en þá hjálpaði hvað við vorum góðir vinir. Við fundum sterkt að á milli okkar var ekki eingöngu sak- laus vinátta heldur raunveruleg ást á hvort öðru,“ útskýrir Mikael. Hann veit upp á hár hvers vegna hann elskar Iðunni Lilju. „Mér finnst hún skemmtileg, fyndin og falleg. Hún er hjartahlý, ofurlítið feimin og það er mjög gaman að vera í kringum hana. Það er sannur heiður að þekkja Iðunni Lilju og komast að því í alvöru hver hún er. Það er alltaf meira og meira að elska. Hún er draumadísin mín og ég þurfti ekki að leita lengra.“ Ástarjátningar í 8. bekk Iðunn Lilja segir þau Mikael hafa áttað sig á því í 6. bekk að tilfinn- ingar þeirra til hvors annars væru ósviknar. „Þá fór ég í tveggja vikna utan- landsferð og þegar ég kom til baka fundum við hversu heitt við söknuðum hvors annars. Því varð fljótt mikil alvara í unglingasam- bandinu og við urðum enn vissari í okkar sök. Í 8. bekk bættust við einlægar ástarjátningar og það var stórt skref að segjast elska hvort annað,“ segir Iðunn Lilja, sem flutti í burtu frá Sauðárkróki í 7. bekk og ekki aftur norður fyrr en eftir útskrift frá listnámsbraut Fjöl- brautaskólans í Breiðholti. „Allan tímann vorum við samt par, héldum miklu sambandi og hittumst eins oft og við gátum. Það var auðvitað erfitt að geta ekki verið saman hvern dag þegar Iðunn Lilja bjó á Akureyri eða fyrir sunnan, en sambandið var aldrei í hættu, þótt sem unglingur hafi maður stundum gert of mikið úr litlu tilefni,“ segir Mikael. „Á unglingsárunum vildi pabbi líka passa upp á stelpuna sína og Mikael fékk að vita að hann mætti ekki særa mig eða fara illa með mig. Mikael er ekki þannig gerður; hann fékk gott uppeldi hjá móður sinni og reyndist þess verðugur að eiga mig,“ segir Iðunn Lilja og brosir að minningunni. Fyrsta bónorðið í Kringlunni Tilhugalíf brúðhjónanna ungu, sem nú eru 22 ára, hefur staðið yfir í sextán ár. „Við vissum alltaf að við yrðum hjón og vildum eiga ævina saman,“ segir Iðunn Lilja. „Því var óþarfi að bera fram bónorð en Mikael bað mín nú samt í tvígang, þegar við vorum sautján ára og nítján ára.“ Mikael tekur við: „Fyrsta bónorðið átti sér stað þegar við vorum í Kringlunni. Þá varð mér litið inn í hringabúð og hugsaði með mér að ég vildi biðja Iðunnar Lilju. Þetta var um sumar, ég nýbúinn að fá útborgað og tilbú- inn að kaupa handa henni dálítið dýran hring. Þegar ég kom út úr búðinni spurði Iðunn mig hvað ég hefði verið að gera þar inni. Ég fór með það sama niður á annað hnéð, í eina sekúndu því við erum bæði feimin og mér fannst það aðeins of neyðarlegt í miðri Kringlunni, en ég rétti fram hringinn og spurði hvort hún vildi ekki einhvern tímann verða konan mín. Iðunn Lilja svaraði strax játandi og þessu fylgdi hvorki stress né óvissa hjá mér, því svarið lá fyrir. Við vorum bara sautján ára, yfir okkur ást- fangin, og ekkert lá á ef hún bara vildi einhvern daginn verða mín,“ segir Mikael, sællar minningar. Seinna bónorðið fékk Iðunn Lilja þegar Mikael kom heim úr útskriftarferð með Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. „Þá hafði hann keypt fallegan hring með mánaðarsteininum mínum úti og bað mig að giftast sér í herberginu mínu, sem var allt í drasli. Fyrir mér var það afar rómantískt og ég sagði vitaskuld strax já,“ segir Iðunn Lilja sæl. Fara aldrei ósátt að sofa Brúðkaupsdagurinn var 29. ágúst. „Við völdum 29. ágúst því það er dagurinn sem Mikael bað mín fyrst. Það er líka brúðkaupsdagur langömmu minnar og langafa. Ég heiti eftir langömmu, en þegar hún dó lét langafi pabba minn fá giftingarhringinn hennar með þeim orðum að ég ætti að bera hann þegar ég gifti mig,“ upplýsir Iðunn Lilja af væntumþykju. Þau Mikael ákváðu að efna til gleðistundar og gera alvöru úr brúðkaupinu í sumar, þar sem árið væri búið að vera óvenjuleiðinlegt og erfitt vegna heimsfaraldursins. „Við skipuðum brúðkaupsgest- unum á annan hvern kirkjubekk til að tryggja tveggja metra regl- una, en brúðkaupsveislan bíður betri tíma þegar bóluefni verður komið eða veiran hverfur. Fólkið hans Mikaels fékk tertu og drakk með okkur kaffi eftir athöfnina og um kvöldið snæddum við kvöldverð með fólkinu mínu sem kom að sunnan,“ segir Iðunn Lilja, sem klæddist dýrindis brúðar- kjól í bleikum tón sem hún fann í versluninni Loforði í Hafnarfirði. „Brúðkaupsdagurinn var mjög skemmtilegur og það er mjög góð tilfinning að vera orðin hjón,“ segir Mikael. „Því fylgir meiri dýpt og þótt maður hafi oft sagt það áður, að við yrðum saman að eilífu, þá er allt önnur upplifun að gifta sig og staðfesta þá áætlun lífsins með heilögu hjónabandi,“ segir Mikael. Iðunn Lilja tekur undir orð eiginmanns síns. „Okkar daglega líf hefur kannski lítið breyst en mér finnst samband okkar nú innihalda enn meiri ást og umhyggju, sem og mikla vellíðan og sælu. Því fylgir líka öryggi og traust að vera komin á þennan stað, að hafa ákveðið að vera saman um aldur og ævi. Við erum mjög góðir vinir og þótt við verðum stöku sinnum ósátt, eins og á við um flesta, höfum við sett okkur eina reglu sem við hvikum ekki frá, og það er að leggjast aldrei til hvílu að kvöldi ósátt við hvort annað. Við berum líka mikla virðingu fyrir hvort öðru sem er mikilvægt veganesti í hjónabandi.“ Voru að vísu marggift fyrir Brúðkaupsferðin bíður þar til hægt verður að ferðast áhyggjulaust um heiminn á ný. „Okkur langar í brúðkaupsferð til Nýja-Sjálands. Það er drauma- staður okkar beggja því þar voru uppáhaldsbíómyndir okkar hjóna teknar upp, Lord of the Rings. Við erum samstíga og einhuga par, en andstæður þegar kemur að áhugamálum að öðru leyti, Mikael er vísindamaður og ég myndlistar- maður,“ segir Iðunn Lilja, sem hefur áframhaldandi myndlistarnám í næstu viku á meðan Mikael lærir líftækni við Háskólann á Akureyri. Þau eiga margar rómantískar minningar eftir langa samfylgd. „Við erum til dæmis marggift,“ segir Mikael. „Minn besti vinur, sem var svaramaður í brúð- kaupinu, stundaði að gefa okkur saman í gegnum æskuárin þegar við Iðunn báðum hann að gifta okkur æ ofan í æ. Þá fór hann í skikkju, sagði nokkur vel valin orð og gifti okkur í litlum krúttlegum athöfnum úti í skógi og víðar,“ segir Mikael og horfir ástleitnum augum á eiginkonu sína. „Í dag er ég búinn að vera eiginmaður í eina viku. Það er aðeins meira fullorðins en að vera kærasti. Upp úr stendur sú yndis- lega tilfinning að vera kvæntur góðri konu. Framtíðin er svo bara hús, krakkar og hundur, líklegast á Akureyri eða heima á Króknum.“ Iðunn Lilja hefur lokaorðið: „Það er ólýsanlegt að vera orðin ráðsett frú með sína einu sönnu ást samferða út lífið. Ég hlakka mikið til framtíðarinnar og held að við eigum besta líf í heimi fram undan, umvafið eldheitri ást og umhyggju.“ Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Fyrsti kossinn sem nýgift hjón var einstakur. MYND/ÍRIS ÖSP SVEINBJÖRNSDÓTTIR Kærustuparið Iðunn Lilja og Mikael Snær á barnsaldri. MYND/ÚR EINKASAFNI Framhald af forsíðu ➛ Aðalfundur Heyrnarhjálpar félags heyrnarskertra á Íslandi verður haldinn þriðjudaginn 15. september 2020 í Safnaðarheimili Langholtskirkju kl. 20.00 Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Lagabreytingar Önnur mál Rittúlkur á staðnum og boðið upp á kaffi og meðlæti Allir velkomnir. Stjórnin. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.