Fréttablaðið - 05.09.2020, Page 52

Fréttablaðið - 05.09.2020, Page 52
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarf- semi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af trausti, fagmennsku, þekkingu og framsækni. Helstu verkefni og ábyrgð: • Ber ábyrgð á uppbyggingu og þróun skrifstofu skila- valds í samræmi við lög nr. 70/2020 um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja. • Stýrir og leiðir skrifstofu skilavalds Seðlabanka Íslands. • Ber ábyrgð á gerð skilaáætlana, undirbúning og gerð tillagna að ákvörðunum um lágmarkskröfur um eiginfjárgrunn lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og yfirferð virðismats. • Gerir tillögur að ákvörðunum um beitingu skilaúrræða og skilaheimilda. • Byggir upp sterka liðsheild sérfræðinga. • Tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi á sviði skilavalds og ber ábyrgð á samskiptum við og upplýsingagjöf til alþjóðlegra eftirlitsaðila á því sviði. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is og er umsóknarfrestur til og með 15. september 2020. Með umsókn um störfin þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd. Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upp- lýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veita Haukur C. Benediktsson, framkvæmdastjóri á sviði fjármálastöðugleika, (haukur.c.benedikts- son@sedlabanki.is) og Íris Guðrún Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs, (iris.g.ragnarsdottir@sedlabanki.is). Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða öflugan og traustan einstakling í starf forstöðumanns skrifstofu skilavalds á sviði fjármálastöðugleika. Viðkomandi heyrir beint undir seðlabankastjóra við framkvæmd verkefna skilavalds. Í kjölfar gildistöku nýrra laga nr. 70/2020 um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja er Seðlabanka Íslands falið skilavald, þ.e. stjórnsýsluvald, til að grípa til aðgerða og sinna undirbúningi og framkvæmd skilameðferðar lána- stofnana og verðbréfafyrirtækja. Markmið laganna er að varðveita fjármálastöðugleika og lágmarka neikvæðar af- leiðingar fjármálaáfalla með því að vernda tryggðar innstæður og fjárfesta eignir viðskiptavina og nauðsynlega starfsemi fyrirtækja og lágmarka hættu á að veita þurfi fjárframlög úr ríkissjóði. Af því tilefni er sett á fót skrifstofa skilavalds innan Seðlabankans. Til að tryggja þekkingu og skilvirkni við störf skrifstofunnar er hún staðsett á sviði fjármálastöðugleika, en skrifstofan er sjálfstæð í þeim störfum sem tengjast verkefnum skilavalds og heyrir í þeim tilvikum undir seðlabanka- stjóra. Fjármálastöðugleikasvið er eitt af sjö kjarnasviðum Seðlabanka Íslands. Sviðið fylgist með þróun fjármálakerfisins bæði hér á landi og erlendis, styrk þess og skilvirkni og áhrifum efnahagslegra þátta á kerfið í heild sinni. Meginviðfangsefni sviðsins er greining á áhættu í fjármálakerfinu og þátttaka í mótun varúðarreglna fyrir fjármálakerfið. Sviðið tekur einnig þátt í stefnumótun um uppbyggingu og markmið fjármálakerfisins, mótun varúðartækja og umgjörð fjármálastöðug- leika á Íslandi. Forstöðumaður skrifstofu skilavalds Hæfnikröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Sterkir leiðtogahæfileikar og víðtæk stjórnunarreynsla. • Víðtæk reynsla og þekking á fjármálakerfinu og fjár- málamörkuðum. • Metnaður til að setja á fót og sinna daglegri starfsemi skrifstofu skilavalds og undirbúningi ákvörðunartöku. • Yfirgripsmikil greiningarfærni og þekking á efnahags- reikningi lánastofnana og verðbréfafyrirtækja. • Reynsla og þekking af opinberri stjórnsýslu er kostur. • Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. • Færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu. • Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri í starfi. 2019 - 2022 Við ráðum WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS Stjórnendaleit Reynsla og gott tengslanet sérfræðinga Ráðum skilar árangri þegar finna þarf æðstu stjórnendur eða fólk í stjórnir fyrirtækja. Ráðningar millistjórnenda og sérfræðinga Góður gagnagrunnur, gott tengslanet og ára­ löng reynsla á ráðningarmarkaði eykur líkurnar á því að finna hæfasta einstaklinginn í starfið. Almennar ráðningar á markaði Öflun umsækjenda í almenn störf er ein helsta áskorun fyrir tækja í dag. Þekking á markaðnum er því mikilvæg og þar skiptir reynslan miklu máli. Með leit í gagna grunni eða aug lýsingu í viðeigandi miðlum aðstoðar Ráðum fyrirtæki við að finna hæfasta ein staklinginn í starfið. Sveigjanleg nálgun Sérstaða Ráðum liggur í sveigjanlegri nálgun á ráðningar verkefnið. Fyrir utan að sjá um allt ráðningar ferlið komum við til móts við þarfir fyrir tækja með því að sjá um hluta þess ef þörf krefur, t.d. bakgrunns kannanir, hæfnis mat eða starfs tengdar æfingar. Matstæki Ráðum notast við nýjustu aðferðir við að meta hæfni og persónuleikaþætti sem geta skipt sköpum í ráðningum. Ráðum er í sam starfi við banda ríska mannauðs lausna fyrirtækið CEB sem er í farar broddi í persónu leika prófum og öðrum mats tækjum sem eru sér stak lega hönnuð til að greina sérstöðu og hæfileika ein staklinga áður en ráðning fer fram. Þannig er hægt að finna hæfasta einstaklinginn með talsverðri ná kvæmni. Persónu leika matið OPQ32 og DSI (Dependa bility & Safety Index) skimunar prófið hafa t.d. verið stöðluð og staðfærð að íslenskum markaði. Ráðgjöf við starfslok Viðskilnaður fyrirtækis við starfsmann skiptir höfuð máli þegar fyrirtækið á frum kvæðið að starfs lokum. Ráðum býður upp á við tal við ráð gjafa sem felur m.a. í sér upplýsingar um atvinnu markaðinn, ráðgjöf varðandi starfs­ ferilskrá og kynningarbréf og hagnýt atriði varðandi starfs leit og atvinnu viðtöl. Ráðum býður upp á ráðgjöf og ráðningar þjónustu sniðna að þörfum viðskiptavinarins. Til hvers að auglýsa ? Ef þú auglýsir sjálf-/ur eftir starfsmanni eyðir þú verulegum tíma í úrvinnslu innsendra umsókna. Okkar styrkur er öflugur gagnabanki og yfir tveggja áratuga reynsla við að þjónusta fyrirtæki við leit að starfsmanni. Sparaðu þér tíma, kostnað og fyrirhöfn - leitaðu aðstoðar fagmanna með langvarandi reynslu af ráðningarmálum. STRÁ Starfsráðningar ehf. - Suðurlandsbraut 30 - sími 588-3031 stra@stra.is - gudny@stra.is - www.stra.is. Með starf fyrir þig Starfsemi STRÁ ehf. býr að aldarfjórðungs reynslu og þekkingu á sviði starfs- manna- og ráðningarmála en stofan hefur unnið fyrir mörg helstu og leiðandi fyrirtæki landsins um árabil. Rík áhersla er lögð á trúnað varðandi vörslu gagna og upplýsinga bæði gagnvart umsækjendum, sem og vinnuveitendum. Ánægðir viðskiptavinir til margra ára hafa notið þjónustu STRÁ, en stofan hefur jafnframt umsjón með ráðningum í sérfræði- og stjórnunarstöður. www.stra.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.