Vísbending - 20.12.2016, Side 25
HVERT LIGGUR ÞIN LEIÐ?
Það hefur verið œvintýralegur uppgangur hjá ferðaþjónustunni
hér síðustu fimm ár. Nú má cetla að tœplega tvcer milljónir
ferðamanna heimsceki okkur í ár. Og við erum líka á faraldsfceti.
Aldrei höfum við Islendingar farið eins margar ferðir út í heim eins
og á liðnu ári.
En hvert fara flestir heimshomaflakkarar?
Frakkland trónir á toppnum, en þangað
komu 83,7 milljónir ferðamanna i fyrra.
Bandaríkin eru númer tvö, en þangað
komu sléttar 75 milljónir. Spánn situr í
bronssætinu, en þangað komu 65 milljónir
manna, tíu milljónum fleiri en sóttu Kína
heim. ítalia er í fimmta sæti með 48,5 milljón
ferðamenn. Núnier sex er Tyrkland, með
39,8 milljón heimsóknir. Þrjátíu og þijár
milljónir ferðamanna heimsóttu Þýskaland,
hálfri milljón meira en Stóra-Bretland sem
vermir áttunda sætið á heimsvísu. Númer m'u
er Rússland, með 32,4 milljónir ferðamanna,
og í tíunda sæti, Mexíkó en þangað komu
29,3 milljónir í fyira, iitlu meira en til Hong
Kong, sem er sú borg sem flestir ferðamenn
heimsóttu, en þangað komu 27,7 milljónir
manna í fyrra. London er í öðra sæti með 10
milljónum færri ferðamenn, eða 17,4, aðeins
fleiri en Singapúr með sínar sléttu sautján
milljónir. Bankok kernur svo í fjórða sæti
með 16,2 milljónir, meira en milljón fleiri
en komu til Parísar, en þangað komu sléttar
fimmtán milljónir í fyrra, eða 41 þúsund
manns á dag að meðaltali. 19