Náttúruvernd - 01.06.1932, Blaðsíða 34
34
hjálpa dýrinu, þó hann sæi það nokkra hættu. Eftir langa mæðu
tókst honum að bjarga dýrinu úr ánni. Kýrin lét í Ijósi þakk-
læti sitt með því að núa höfðinu upp við manninn, krafsa með
framfótunum utan í föt hans og sýna honum vinahót með ýmsu
öðru látæði sínu.
Vafalaust gætu elgir ekki síður en hreindýr, lifað á heið-
um og öræfum hér á landi. Og er hér með vakin athygli ríkis-
stjórnarinnar á að láta flytja hingað til lands minnsta kosti
fjögur pör af þessari fágætu dýrategund.
Árið 1930 heimsóttu 2818618 menn 23 þjóðgarða í Banda-
ríkjunum. Flestir komu í Yosemit þjóðgarðinn. þeir voru 438566
að tölu.
ping Bandaríkjanna hefir veitt 40 þús. dollara til flytja 30
sauðnaut frá Grænlandi til Alaska. Er hugmyndin að koma þar
upp sauðnautarækt.
Fuglaverndarfélagið Audubon Society, í Bandaríkjunum
taldi 8303 ársfélaga og 2584 æfifélaga árið 1930. Auk þess eru í
félaginu sérstakar deildir eða klúbbar. þeir voru 8882 talsins
og félagatal þeirra 385845. Klúbbar þessir eru einkum í barna-
skólunum.
Algengt er, að menn fara á helgum dögum upp um heiðar
og fjöll eða út á sjó, til að skjóta fugla. þessa iðju hafa menn
oft á hendi um hámessutímann. Helgi sunnudagsins fær ekki
að ná til saklausu smælingjanna í náttúrunni. Meðan þjónar
kirkjunnar blessar söfnuðinn ríður skot af á einhvern saklausan