Náttúruvernd - 01.06.1932, Blaðsíða 16

Náttúruvernd - 01.06.1932, Blaðsíða 16
16 ala það upp — skýla því meðan það er ungt og veita því forsælu. Barrfelli (lævirkjatré) má gróðursetja með greni og fjallafuru, en síður með öðrum trjátegundum. Fjallafuru má gróðursetja með öllum trjátegundum að kalla má. Birki er sjaldan sett með barrtrjám. Það hýðir af þeim barrið og brumið, ef það stendur nálægt þeim. Hver trjátegund er venjulega gróðursett í röð út af fyrir sig. Ýmsar gróðursetningaraðferðir má við hafa. Skal hér aðeins drepið á þrjár hinar helztu, gróðursetning í höggnar holur, grafnar -holur og með hnaus. Gróðursetning í höggnar holur. Þá er plöntugref notað. Grasrótin er skorin af dálítidi rúðu, 31—35 sm. á hlið. Þvínæst er höggvin hola 18—20 sm. breið 25 sm. djúp (auðvitað því dýpri og breiðari, sem plantan er stærri, sem á að gróðursetja). Einn veggur holunnar er gerður lóðréttur. Verður holan að lenda í miðri rúðunni. Moldina, sem höggvin er upp, verður að mylja vel, tína úr henni steina, harða köggla, mosa, strá og annað rusl, því að ekkert þessháttar má liggja við ræt- ur plöntunnar. Á eftir þeim, sem heggur holumar, kemur sá er gróðursetur. Hann krýpur við plöntuholuna, tekur piöntu með vinstri hendi og leggur rótina upp að lóðrétta veggnum, greiðir vel úr henni, og sópar síðan fyrst smá- gerðustu moldinni að rótunum og þá hinni grófari, og þrýstir henni vei að þeim. Vanti mold til að fylla holuna, þarf að fá hana annarsstaðar að, úr aukaholu. Þegar búið er að þrýsta moldinni vel að rótunum og fylla hoiuna, er að lokum stígið kringum plötuna, með fætinum, til að þrýsta moldinni vel niður. Eigi má setja piöntuna dýpra en hún hefir áður staðið — moldin ekki látin ná lengra

x

Náttúruvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúruvernd
https://timarit.is/publication/1477

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.