Fjölrit RALA - 15.02.1995, Page 49
Efnasamsetning
47
vaxtartímann. Það var einungis fyrir magnesíum að merkja mátti lægra hlutfall er leið
á sumarið (22. mynd).
Magn trénisþátta jókst er leið á vaxtartímann 1987. NDF (tréni í frumuveggjum)
sem var að meðaltali um 30% af þurrefni plantnanna um mánaðarmótin maí-júní var
orðið rúm 45% í lok ágúst. Samsvarandi breytingar mátti sjá á magni ADF, sem fór
úr 25% í 35% af þurrefni. Lignín jókst úr u.þ.b. 3% upp í u.þ.b. 7% á sama tímabili
(15. mynd, b).
Breytingar á magni trénisþátta voru misjafnar eftir plöntuhlutum. í blaðhluta
plantnanna breyttust NDF, ADF og lignín lítið yfir athugunartímann 1988. Stönglar
sýndu hins vegar mikla aukningu í NDF og ADF. Það var u.þ.b. 20% um
mánaðarmótin maí-júní en var komið upp í u.þ.b. 53% og 40% um miðjan júlí. Eftir
það dró úr aukningunni. Lignín jókst í stönglum er leið á sumarið, úr 1% upp í u.þ.b.
10% í ágústlok. Hjá blómhluta plantnanna var hlutfall NDF og ADF um 30% við
fyrstu mælingu. Síðan minnkaði hlutfallið niður í 25-20% um miðjan júlí. Það jókst
aftur eftir það, og var komið í 50-35% í lok vaxtartímans. Hlutfall ligníns í þurrefni
blómhluta breyttist hins vegar lítið (17. mynd).
Trénisþættir ofanjarðarhluta lúpínuplantna 1991 breytast einnig á svipaðan hátt og
áður var lýst. Breytingarnar voru aftur á móti alveg í gagnstæða átt þegar litið var á
rætur plantnanna 1991. Um miðjan júní var NDF og ADF í hámarki í rótum, með 55
og 40% af þurrefni rótanna. Hlutfallið lækkaði er leið á vaxtartímann og var komið
niður í 35 og 25% í byrjun september (21. mynd).