Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Blaðsíða 38
36 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
2.3. Flatarmálsmælingar og útreikningar.
Flatarmál gróðurhverfa á kortunum frá
1960 til 1977 var mælt á sama hátt (með
flatarmálsmæli - planimeter) til að leiða í
ljós breytingar, sem urðu á þessum 17
árum. Mælingum gróðurhverfa fyrir ofan
og neðan 200 m hæð var haldið aðskildum.
Oft þekur gróður landið ekki algjörlega
af ýmsum ástæðum, t. d. í nýgræðum eða
þar sem gróðurþekjan hefur rofnað af
völdum ofbeitar, vatns og vinda eða, eins
og algengt er í Þjórsárdal, af völdum vik-
ur- og öskufalls, svo að eitthvað sé nefnt. I
slíkum tilvikum er metið, hversu mikið er
ógróið, og er það sýnt á gróðurkortinu með
sérstökum bókstöfum (x, z, þ). X táknar,
að allt að V3 hluti landsins sé ógróinn, Z,
að allt að því helmingur sé ógróinn, Þ, að
allt að því 2/3 hlutar landsins séu ógrónir.
Við umreikning slíkra svæða í algróið land
er reiknað með, að 84% yfirborðs þess
lands, sem merkt er X, séu gróin og að
jafnaði 50% af yfirborði lands merkt Z, en
að gróðurþekja sé 16% á landi merktu Þ.
Flatarmál allra svæða, sem eru gróin að
einhverju leyti, er umreiknað í algróið
land, áður en beitargildið er reiknað út.
3. GRÓÐURBREYTINGAR
3.1. Flatarmál Pjórsárdalsgirðingar.
Flatarmál lands innan Þjórsárdals-
girðingar er mælt á tvennan hátt. Annars
vegar fæst heildarflatarmálið með því að
leggja saman flatarmál hinna einstöku
reita á hvoru korti, en hins vegar með því
að mæla flatarmál svæðisins í heild. Ekki
fæst nákvæmlega sama útkoma með þess-
um aðferðum, þar sem mælitæknin er ekki
nógu fullkomin til þess, en munur er þó
ekki mikill (3. tafla).
Flatarmál gróðurkorts frá 1977 var
mælt afafriti, er gert var eftir frumkortinu.
Við samanburð þeirra mælinga við gróð-
3. TAFLA.
Flatarmálsmælingar af gróðurkortum 1960 og 1977.
TABLE 3.
Areal measurements form vegetation maps 1960 and 1977.
Hæð yfir sjó Elevation above sea level Heildarmæling Total area ha. Reitarmæling Sumfor each plant communities ha. Mismunur Difference %
Gróðurkort 1960 < 200 m 3379,5 3400,6 0,6
Vegetation map > 200 m 3360,5 3347,4 0,4
Gróðurkort 1977 < 200 m 3441,0 3445,2 0,1
Vegetation map > 200 m 3390,1 3882,7 0,2
urkortið frá 1960 kom í ljós, að afritið hafði
tognað um sem nemur u. þ. b. einum
millimetra miðað við kortlögð svæði. Af
þessum sökum verður því munur
reitarmælinga á kortum frá 1960 til 1977
sem tognuninni nemur. Munurinn er
svipaður í báðum hæðarflokkum, 1,1%
neðan 200 m og 1,2% ofan við 200 m.
3.2. Mælingar 1960.
Kortið frá 1960 sýnir gróðurfar í daln-
um eftir 22 ára friðun. A þeim tíma hefur
líklega ekki orðið jafnmikil uppgræðsla í