Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Blaðsíða 80
78 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
UMRÆÐUR OG ÁLYKTANIR
a) Ahrif aldurs og burðartíma á afurðir.
Ljóst er, að mjólkurskeiðsafurðir verður á
sama hátt og ársafurðir að leiðrétta fyrir
áhrifum kerfisbundinna umhverfisþátta,
svo sem aldurs og burðartíma.
Aldursáhrifin hjá fyrstakálfskvígum eru
áhrif vegna mismikils þroska þeirra við
burð, sem stafar af breytileika í aldri.
Ákaflega lítið er um það vitað, hversu
mikið tillit bændur hér á landi taka til
þroska kvígna, þegar þær eru sæddar
fyrsta sinni. Hið greinilega samhengi, sem
fram kemur í þessum gögnum milli burð-
artíma og aldurs og þekkt er úr fyrri rann-
sókn (Þórður G. Sigurjónsson, 1973),
bendir eindregið til þess, að val á heppi-
legum burðartíma ráði þar miklu um.
Víða erlendis er brjóstummál mælt og
skráð í skýrsluhaldi, og gerir það mögu-
legar beinni leiðréttingu með tilliti til
þroska gripanna. Hinn litli munur í af-
urðum, sem fram kom hjá kvígum, sem
báru 23 til 27 mánaða, getur þó verið
bending um, að nokkurt tillit sé tekið til
þroska þeirra, þegar ákveðið er, hvenær
þeim skuli haldið.
Á margan hátt er auðveldast að leið-
rétta fyrir aldursáhrifum með notkun að-
hvarfsstuðla, og virðist þar nægja að nota
línulegan stuðul. Líklega er rétt að láta
óleiðréttar afurðir kvígna, sem bera á
aldrinum 23 til 27 mánaða, og leiðrétta
afurðir annarra kvígna að 26 mánaða
burðaraldri með línulegum stuðli.
Vert er þó að hafa í huga í sambandi við
leiðréttingu fyrir aldri, að sérstakt sam-
band hlýtur ætíð að verða á milli þroska
kvígna undan tilteknum nautum og þess,
hversu ört þær koma á skýrslu.
Áhrif burðatíma á afurðir eru enn meiri
en aldursáhrif. Lagt er til, að leiðrétt verði
18. TAFLA.
Margfoldunarstuðlar til leiðréttingar á áhrifum
burðartíma.
TABLE 18.
Multiþlicative correction factors for effect of month of
calving.
Burðarmánuður Month of calving Stuðull Correction factor
Jan.-febr 0.945
Mars-apríl 1.040
Maí-júní 1.100
Júlí-ágúst 1.040
Sept.-okt 0.958
Nóv.-des 0.950
fyrir burðartímaáhrifúm með notkun
margföldunarstuðla þeirra, sem sýndir
eru í 18. töflu, en þeir eru bein umreiknun
stuðla, sem sýndir eru í 4. töflu. Afurðir
eru leiðréttar að meðaltali til að draga úr
skekkjuáhrifum þeirra. Þessir
burðartímastuðlar eru verulega frá-
brugðnir þeim stuðlum, sem fundnir eru
fyrir ársafurðir fullvaxinna kúa hér á landi
(Magnús B. Jónsson, 1968, Jón Viðar
Jónmundsson e.t al., 1977a). Allar líkur
eru til, að mestur hluti mismunarins ráðist
af skekkju í burðartímastuðlum fyrir árs-
afurðir vegna svokallaðra „skýrsluárs-
áhrifa“. Einnig er hugsanlegt, að burðar-
tímaáhrif séu að einhverju leyti önnur hjá
fullvöxnum kúm en fyrsta kálfs kvígum.
Kann það m. a. að stafa af áhrifum frá
fyrra mjólkurskeiði fullorðinna kúa, sem
ekki er til að dreifa um fyrstakálfskvígur.
Eigi að nota mjólkurskeiðsafurðir sem
mælikvarða á afurðagetu fullorðinna kúa,
er því ljóst, að nota verður leiðréttingar-
stuðla fyrir aldurs- og burðartímaáhrif,
sem metnir eru fyrir fullorðnar kýr.