Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Blaðsíða 63

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Blaðsíða 63
ÍSL. LANDBÚN. J. AGR. RES. ICEL. 1980 12,1: 61—83 Rannsókn á afurðatölum fyrir fyrstakálfskvígur JÓN VlÐAR JÓNMUNDSSON Búnaðarfélag Islands Bœndahöllinni, Reykjavík YFIRLIT Ritgerðin greinir frá niðurstöðum rannsókna á afurðatölum fyrir fyrstakálfskvígur, þar sem mjólkur- skeiðsafurðir eru lagðar til grundvallar. Gögnin í rannsókninni eru fengin úr skýrslu nautgriparæktarfélag- anna á árunum 1974—1977. Samtals náði rannsóknin til 2957 kvígna á 316 búum. Méðaltal mjólkur- skeiðsafurða (305 dagar) var 2842 kg, hæsta dagsnyt 15,54 kg, meðalaldur við burð 26,6 mánuðir og dagar frá fyrsta til annars burðar 392. Metnir voru stuðlar fyrir áhrif burðartíma og burðaraldurs og eru þeir sýndir í töflu. Kvígur sem bera á miðjum vetri skila mestum afurðum, en sumarbærur minnstum. Afurðir reyndust aukast um 28 kg fyrir hvern mánuð sem kvígurnar eru eldri, þegar þær bera fyrsta kálfi. Leiðrétt varfyrir búsáhrifin með aðhvarfsstuðli afurða að búsmeðaltali fullmjólka kúaá búinu. Aðhvarfs- stuðullinn reyndist 0.57 fyrir mjólkurmagn. Áhrif burðarmánaðar á frjósemi reyndust vera til staðar og var munur á tímalengd milli burða á bestu og lakasta burðartíma 39 dagar. Mjólkurskeiðsafurðir aukast um 1.62 kg fyrir hvern dag sem tími milli burða eykst. Arfgengi reyndist 0.17 fyrir mjólkurmagn, 0.07 fyrir mjólkurfitu, 0.13 fyrir hæstu dagsnyt og 0.08 fyrir tímalengd milli burða. Metnir voru framlengingarstuðlar til að meta mjólkurskeiðsafurðir á grundvelli hluta mjólkurskeiðsins. Til þess var beitt tveim aðferðum. Stuðlar metnir sem margfoldunarstuðull fyrir þann hluta mjólkur- skeiðsins sem lokið er, en hin aðferðin byggir á að nota síðustu mælingu til að meta það mjólkurmagn, sem kvígan á eftir að mjólka á mjólkurskeiðinu. Stuðlarnir sem byggja á síðustu mælingu reyndust gefa heldur betra mat á þeim hluta sem ólokið er. Niðurstöðurnar eru síðan ræddar með hliðsjón afnýtingu þeirra í kynbótastarfmu í nautgriparækt hér á landi. INNGANGUR Kynbótastarfsemi í nautgriparækt hér á landi er stunduð á félagslegum grundvelli. Síðustu áratugi hafa orðið mjög víðtækar breytingar í kynbótastarfinu. Með sæð- ingarstarfseminni breyttust mjög mögu- leikar kynbótastarfsins. Langmikilvægasti hlekkurinn í starfinu er úrval nautanna, sérstaklega að lokinni afkvæmarannsókn. Hver árangur þess úrvals verður, ræðst verulega af áreiðanleika afkvæmadóms- ins. Rannsóknir, sem gerðar voru á afurðatölum frá nautgriparæktarfélögun- um (Jón Viðar Jónmundsson et. al., 1977a), bentu til, að með því að leggja til grundvallar afurðir skýrsluársins væru í upplýsingunum tilteknar skekkjur, sem
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.