Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Side 57

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Side 57
GRÓÐURBREYTINGAR í ÞJÓRSÁRDAL 55 Inni í miðri ræktun í beitarhólfinu haustið 1976. Höfundur við eina af bifreiðum RALA, í gróskumiklu grasinu. Cultivated grazing area with luxurious grass. The author is standing by the automobile. 4. BEITARHÓLF Á SYÐSTA HLUTA GNÚPVERJAAFRÉTTAR Beitarhólf á syðsta hluta Gnúpverja- afréttar, sem í raun er efri hluti hins eigin- lega Þjórsárdals, er tæplega 3500 hektarar að flatarmáli. Það er land, sem friðað var frá 1938 til 1977. 1977 var fé rekið af fjalli fyrr en venjulega, og var því beitt skamman tíma í þessu lokaða hólfi. Svæðið er innan gömlu Þjórsárdalsgirð- ingarinnar, sem Skógrækt ríkisins girti 1938, en ofan nýju girðingarinnar, er nú afmarkar Þjórsárdal (sjá 1. mynd). Höfundur gerði gróðurkort af beitar- hólfmu sumarið 1978, en á grundvelli þess og gamla gróðurkortsins frá 1960 var borið saman flatarmál gróins lands og beitarþol svæðisins 1960 og 1978. Niðurstöður flatarmálsmælinga og fóð- Ljósmynd Einar Gíslason. urgildisútreikninga er að finna í 15.—18. töflu. Árið 1960 reyndist beitarþol dalsins vera 40351 beitardagar, sem samsvarar því, að þar mætti beita um 2000 fjár þrjár vikur eða 2700 hálfan mánuð án skaða fyrir gróðurinn. Átján árum síðar er beitarþol hólfsins orðið 73144 beitárdag- ar, en það samsvarar um 3500 fjár miðað við þriggja vikna beit eða.4900 miðað við hálfsmánaðar beitartíma, en það er sá tími, sem hólfið er nú notað til beitar á hausin. Þess ber að geta, að þær rannsóknir Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, sem útreikningarnir styðjast við, gera ráð fyrir jafnri beit allt sumarið. En þar sem beitartíminn í hólfinu er einungis síð-

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.