Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Síða 69

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Síða 69
RANNSÓKN Á AFURÐATÖLUM 67 Á mjólkurmagn og magn mjólkurfitu eru burðartímaáhrifin mjög skýr. Kvígur, sem bera að vori og sumri, skila minnstum afurðum, en þær kvígur, sem bera að hausti og fram á miðjan vetur, skila mest- um afurðum. Þessar niðurstöður eru í góðu samræmi við niðurstöður þeirra Þórðar G. Sigurjónssonar (1973) og Guðmundar Steindórssonar (1970). í þessum gögnum eru burðatímaáhrifin þó hlutfallslega minni. I áðurnefndum rann- sóknum eru áhrif burðartímans metin óháð aldri og búum, og má ætla, að það verði til þess, að hin raunverulegu burðartímaáhrif verði eitthvað ofmetin. Aftur á móti eru þau burðartímaáhrif, sem hér eru fundin, verulega frábrugðin því, sem fundizt hafa í eldri íslenzkum rannsóknum, þar sem unnið hefur verið með ársafurðir kúnna (MagnúS B. JÓNSSON, 1968, JÓN VIÐAR JÓNMUNDSSON et. al., 1977a). Ætla verður þó, að þau áhrif, sem hér eru fundin, séu hin raun- verulegu burðartímaáhrif, en frávikin, sem fundin eru í ársafurðir, skýrist af ,,skýrsluársáhrifum“, sem eru skýrð nán- ar og rædd áður (Jón Viðar Jónmunds- SONet. a., 1977a). Þessar niðurstöður sýna ljóslega, hversu ársafurðir eru vandmeð- farnar sem mælikvarði á kynbótagildi ein- staklingsins. Eins og margoft hefur verið bent á (Magnús B. Jónsson, 1968, Jón Viðar Jónmundsson et. al., 1977a) eru líkur til, að burðartímaáhrifin megi að mestum hluta rekja til munar á fóðrun og meðferð gripanna eftir árstímum. Rétt er að benda á, að áhrif burðartímans, sem fundin eru hér, eru hlutfallslega minni en þau, sem fundin eru í gögnum, þar sem með eru fullorðnar kýr (MagnúS B. Jónsson, 1968, JÓN Viðar Jónmundsson et. al., 1977a). Það styður þá tilgátu, að þessi áhrif séu að mestum hluta vegna munar á fóðrun og meðferð, því að sökum þess, hve fyrstakálfskvígur hafa flatari mjólkurkúrfu en fullorðnar kýr, verða þær síður háðar mun á fóðrun en þær. Burðartímaáhrifin, sem fundin eru um hæstu dagsnyt, styðja það einnig, að þau séu að mestu leyti fóðrunaráhrif. Burð- artíminn hefur mun minni áhrif á hæstu dagsnyt en heildarafurðamagnið. Aftur á móti kemur í ljós, að kvígur, sem bera í maí og júní, komast til jafnaðar í mesta dagsnyt, þó að þær skili minnstum heildarafurðum. Þessar kvígur komast í hæstu dagsnyt á þeim tíma, sem ætla má, að gæði beitar séu í hámarki, en margar þeirra verða aftur á móti hart úti í veikasta hlekkfóðrunarinnarhjámörgumbændum, þ. e. haustfóðruninni, og leiðir það til þess, að heildarafurðir þeirra verða litlar. Magnús B. Jónsson (1968) fann í sinni rannsókn á afurðatölum um kýr á Suður- landi, að kvígur, sem báru í júní, komust í hæstu dagsnyt. Þórður G. Sigurjónsson (1973) fann aftur á móti hæstu dagsnyt hjá þeim kvígum, sem báru í febrúarmánuði. Burðartímaáhrifin í þessum göngum voru einnig metin með aðhvarfsstuðlum að burðarmánuði í fyrsta og öðru veldi. I 5. töflu eru þessir stuðlar sýndir. Þar sést einnig, að með þeirri aðferð næst ekki eins vel að eyða áhrifúm burðartímans, þó að munurinn sé svo lítill, að ekki er líklegt, að hann geti leitt til alvarlegrar skekkju. Stuðlar þeir, sem metnir voru fyrir áhrif af aldri kvígunnar við burð á afurðir, eru sýndir í 6. töflu. Aldursáhrifin voru einnig metin með aðhvarfslíkingum, og eru þeir aðhvarfsstuðlar sýndir í 7. töflu. Um afurðamagn kemur í ljós, að afurðir vaxa með hækkandi aldri kvígunnar við burð fram yfir 30 mánaða aldur. Enginn munur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.