Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Page 72

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Page 72
70 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR 8. TAFLA. Áhrif búsmeðaltals á afurðir. TABLE 8. Effect of herd average. bi bi Mjólk 0.883±0.246 0.00004±0.00003 Milk yield (kg) 0.569±0.024 Hæsta dagsnyt 0.0031 ±0.0010 0.000001 ±0.000001 Maximum daily yield (kg) 0.0023±0.0001 Mjólkurfita 0.762 ±0.190 0.000444 ±0.00060 Milkfat (kg) 0.621 ±0.021 nota búsmeðaltal heilsárskúa þess bús, sem kýrin er frá, til leiðréttingar og nota til þess aðhvarf eigin afurða að búsmeðaltali. Þetta er sú aðferð, sem einföldust er í framkvæmd með nýtingu á niðurstöðum miðað við skýrsluhald nautgriparæktar- innar. Aðferð þessi hefur verið notuð í rannsóknum víða erlendis (Syrstad, 1964, Rönningen, 1967, Auran, 1973, Danell, 1976). Akveðið var að nota búsmeðaltal fyrir heilsárskýr á búinu á þeim ársfjórðungi, sem kvígan ber fyrsta kálfi. Þetta búsmeð- altal var valið afþeirri ástæðu, að ætla má, að í því séu minni kerfisbundnar sveiflur en í búsmeðaltali fyrir árskýr. Auk þess er gripurinn þá sjálfur ekki með í þessu bús- meðaltali, en aftur á móti í meðaltali árs- kúa. Búsmeðaltal er til í skýrslunum bæði um mjólkurmagn og magn mjólkurfitu. Aftur á móti er ekkert búsmeðaltal til um hæstu dagsnyt; þar var því notað búsmeð- altal um mjólkurmagn. Aðhvarfsstuðlarnir, sem fundust í þessari rannsókn, eru sýndir í 8. töflu. Boglínusamband reyndist ekki (P > 0,05) fyrir neinn af þessum eiginleikum. Nánast engar hérlendar rannsóknir eru til samanburðar. MagnúS B. JÓNSSON (1968) reiknaði aðhvarf hæstu dagsnytjar að búsmeðaltali og fékk stuðulinn 0,143 kg/100 kg, en það er allverulega minna en það, sem er í þessum gögnum. Mikið er til af rannsóknum erlendis. I norskum rannsóknum (Syrstad, 1964, Rönningen, 1967, Auran, 1973) er þessi aðhvarfsstuðull á bilinu 0,7-0,8. í því búsmeðaltali, sem þeir nota, eru líklega afurðir fyrstakálfskvígna með. I rannsókn í Svíþjóð (Danell, 1976) og í Kanada (Gravir og Hickman, 1967) er þessi að- hvarfsstuðull mjög líkur því sem hér er fundið, en í báðum þessum rannsóknum eru bendingar um, að stuðullinn geti verið breytilegur eftir árstímum. I eldri bandarískum rannsóknum (Henderson et. al., 1954) þar sem afurðir kúnna í búsmeðaltali voru leiðréttar að fullorðinsaldri, reyndist þessi stuðull um 0,6. c) Tímabil milli burða. Frjósemi íslenzkra nautgripa hefur nánast ekkert verið rannsökuð, og ekkert beint tillit er tekið til hennar við val kynbóta- gripa. Meðan úrval er gert eftir ársafurð- um, fer aftur á móti tæpast hjá því, að verulegt óbeint tillit sé tekið til frjósemi við úrval gripa.

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.